Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Heimsmyndir - Helga Þórey
    Föstudagur 11. október
    Heimsmyndir - Helga Þórey
    Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir kom í þáttinn að rýna í unglingabækur frá 8. og 9. áratug síðustu aldar. Hver var siðferðisboðskapur þessara bóka? Var hann heldur kristilegur og íhaldssamur stundum?
    59 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 41
    Föstudagur 11. október
    Vikuskammtur: Vika 41
    Í vikuskammt að þessu sinni koma þau Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir, Sæþór Benjamín Randalsson, Grímur Atlason og Sólveig Arnarsdóttir að ræða fréttir vikunnar.
    1 hr 39 min
  • Rauða borðið 10. okt - Fósturvísamálið. neytendur, spilling, fréttir frá Gaza, sýndarmennska
    Fimmtudagurinn 10. október
    Fósturvísamálið. neytendur, spilling, fréttir frá Gaza, sýndarmennska
    Hallur Hallsson blaðamaður segir frá fósturvísamálinu, ótrúlegri sögu þess og viðbrögðum sem hann hefur fengið við frásögnum sínum. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna fer yfir neytendamál og Björn Þorláksson segir okkur frá bók sinni um spillingu á Íslandi. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir við Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóra Ríkisútvarpsins um fréttaflutning frá Gaza og Einar Baldvin Brimar höfundur og Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri verksins Nauðbeygð Messa nýrra tíma segja okkur frá erindi þess og uppfærslu.
    4 hr 7 min
  • Grimmi og Snar - #25 Hver er maðurinn? 👞🩴👟
    Fimmtudagur 10. október
    Grimmi og Snar - #25 Hver er maðurinn? 👞🩴👟
    Helgi Örn Pétursson gamall meðlimur Singapore sling 🧵🪡🕸️losnaði Við jakkafötin þegar hann fór að vinna hjá Utanríkisráðuneytinu
    🏴‍☠️🇪🇺🇮🇸
    Ekki missa af viðtali við karlmann sem kann að fara í splitt og spíkat í hausnum
    😵‍💫👀🧔🏻‍♂️
    1 hr 21 min
  • Rauða borðið 9. okt - Viðreisn, framleiðni, pólitík, gæsla, heimsmálin, flugvöllur og kannabis
    Miðvikudagurinn 9. október
    Viðreisn, framleiðni, pólitík, gæsla, heimsmálin, flugvöllur og kannabis
    Það hefur skapast örlítil ólga í Viðreisn eftir að Jón Gnarr sóttist óvænt eftir oddvitasæti í Reykjavík án þess að hafa nokkru sinni verið í flokknum. Þorbjörg Gunnlaugsdóttir þingmaður ræðir gusuganginn. Þórólfur Matthíasson prófessor greinir efnahaginn; hagvöxt, verðbólgu og vexti. Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Erna Bjarnadóttir varaþingkona Miðflokksins ræða við Sigurjón Magnús Egilsson um stjórnmál. Katrín Oddsdóttir mannréttindalögfræðingur telur að vopnaburður og öryggisgæsla í kringum ráðherra kunni að hafa gengið út í öfgar. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi ræðir heimsmálin á tímum stríðs og þjóðarmorðs. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur lýsir furðu sinni á umræðu um samgöngur og náttúruhamfarir þessa dagana. Hvassahraun er galin hugmynd. Magnús Þórsson prófessor á Rhode Island skýrir hvað cannabis science eru.
    4 hr 47 min
  • Rauða borðið 8. okt - Kennarar, hjúkrunarfræðingar, svefn, karlar, klassík og vopn
    Þriðjudagurinn 8. október
    Kennarar, hjúkrunarfræðingar, svefn, karlar, klassík og vopn
    Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræða kjarabaráttu sinna félaga. Erla Björnsdóttir sálfræðingur og sérfræðingur í svefni segir að margir Íslendingar þurfi að sofa meira - ekki síst ungt fólk. Við höldum áfram að ræða karlmennsku með Bjarna Karlssyni presti og guðfræðingi. Karl Pétur Jónsson ráðgjafi, Ingólfur Gíslason prófessor og Jökull Sólberg Auðunsson ráðgjafi ræða við okkur út frá lúxuskarlinum. Sigrún Eðvaldsdóttir mun spila fiðlukonsert Brahms með Sinfóníunni á fimmtudaginn og kemur að Rauða borðinu ásamt Tryggva M. Baldvinssyni listræns ráðgjafa sveitarinnar og ræðir við klassíska tónlist við okkur og tónlistarnemana Sóley Lóu Smáradóttur og Sól Björnsdóttir. Í lokin segir Hildur Þórðardóttir fyrrum forsetaframbjóðandi okkur frá undirskriftasöfnun gegn vopnasendingum til Úkraínu.
    4 hr 8 min
  • Reykjavíkurfréttir 8. okt - Talað og tekið á málum
    Þriðjudagur 8. október
    Talað og tekið á málum
    Borgarstjórnarhópur Sósíalista fer yfir það helsta sem hefur átt sér stað innan borgarinnar á liðnum dögum; tillögu um mælingar á þáttum er tengjast gjaldfrjálsum máltíðum svo hægt sé að fylgjast með þróun þeirra þátta, svo sem næringargildi, gæði og magn. Við munum einnig fjalla um tillögu Sósíalista um samvinnuvettvang við stéttarfélögin sem fékk brautargengi innan borgarinnar sem og breytingar á gjaldskrá í akstursþjónustu fatlaðra, þar sem loks á að miða gjaldið við það sem þekkist hjá Strætó bs
    27 min
  • Rauða borðið: Vinstrið, pólitíkin, kannabis, þjóðarmorð og rauðar heimsbókmenntir
    Mánudagurinn 7. október
    Vinstrið, pólitíkin, kannabis, þjóðarmorð og rauðar heimsbókmenntir
    Við höldum fund með rótum Vg: Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingkona, Einar Ólafsson skáld og bókavörður, Margrét Pétursdóttir verkakona og Guðmundur Auðunsson hagfræðingur, sem öll hafa verið í Vg, ræða um stöðu vinstrisins í dag. Í Þinginu ræðir Björn Þorláks við Ólaf Harðarson stjórnmálafræðing. VG og framtíð ríkisstjórnarinnar ber þar hæst. Við ræðum hamp og kannibis við fjórar konur: Lára Bryndís Pálmadóttir hefur tekið inn cbd-olíu vegna verkja, Brynhildur Arthúrsdóttir er móðir stúlku með flogaveiki sem hefur líka notað cbd, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er aðstandandi sjúklings sem tók inn kannabisolíur og Þórunn Jónsdóttir er stofnandi og varaformaður Hampfélagsins og stendur fyrir ráðstefnu um hamp. María Lilja ræðir við mótmælendur á tímamótum sem hafa staðið vaktina með Palestínu síðasta árið. Bókmenntafræðingarnir Anna Björk Einarsdóttir og Benedikt Hjartarson eru gestaritstjórar Ritsins sem fjalla um rauða heimsbókmenntirnar. Þau segja okkur frá áhrifum þeirra á menningu og pólitík.
    4 hr 38 min
  • Synir Egils 6. okt - Pólitískar hræringar og Hrun
    Sunnudagurinn 6 . október:
    Synir Egils: Pólitískur hræringar og Hrun
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Bryndís Haraldsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins, Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri hjá Eflingu og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni, veika stöðu ríkisstjórnar og flokkanna sem að henni standa. Þeir bræður fara yfir pólitíkina og ræða síðan um arfleið Hrunsins. Guðrún Johnsen hagfræðingur, Jón Þórisson arkitekt og Þorvaldur Logason sagnfræðingur ræða hvað hrundi og hvort nokkuð hafi verið reist við.
    2 hr 47 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners