Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Lilja Ingólfsdóttir
    Laugardagurinn 5. október
    Helgi-spjall: Lilja Ingólfsdóttir
    Lilja Ingólfsdóttir segir okkur frá æsku sinni og tengslunum við Ísland og fólkið sitt hér, mótun og þroska, leið sinni að bíómyndinni Elskuleg sem fjallar um þránna eftir ást og vandanum við að þiggja hana og veita.
    1 hr 45 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 40
    Föstudagurinn 4. október
    Vikuskammtur: Vika 40
    Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Anita Da Silva Bjarnadóttir öryrki og ungur Roði, Grímur Hákonarson leikstjóri, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Margrét Manda Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af hrörnun ríkisstjórnar, innanflokksátökum, vaxandi stríðsógn og háum vöxtum.
    1 hr 17 min
  • Rauða borðið 3. okt - Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræði
    Fimmtudagurinn 3. október
    Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræði
    Við byrjum á Radíó Gaza: María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir um ástandið í Mið-Austurlöndum við Margréti Marinósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margréti Guðmundsdóttur mannfræðing sem báðar þekkja þennan heimshluta vel. Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi er búinn að stofna Lýðræðisflokkinn. Hann kemur og segir okkur frá flokknum, hægrinu og samfélaginu. Benjamín Julian verkaefnastjóri í verðlagseftirliti Alþýðusambandsins segir okkur frá verðsamkeppni á matvörumarkaði og hvernig búðir geta haldið uppi verði þar sem samanburður er illframkvæmanlegur. Í lokin koma ungir sagnfræðingar, Unnur Helga Vífilsdóttir, Þórey Einarsdóttir og Kolbeinn Sturla G. Heiðuson, og segja okkar frá rannsóknum sínum og stöðu sögunnar í samtímanum.
    3 hr 22 min
  • Rauða borðið 2. okt - Krakkaþing, elítur, eftirlaunafólk, búddistar og Einar Sigurður
    Miðvikudagurinn 2. október
    Krakkaþing, elítur, eftirlaunafólk, búddistar og Einar Sigurður
    Krakkaþing Fíusólar hefur skilað niðurstöðum sínum. Tinna Sigfinnsdóttir framhaldsskólanemi og Guðmundur Brynjar Bergsson grunnskólanemi segja okkur frá þeim ásamt Þórunni Örnu Kristjánsdóttur leikstjóriaog leikkonu. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur ræðir um íslenskar elítur og elítuhugsun. Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri lifdununa.is og Guðmumdur Þ. Ragnarsson fyrrverandi formaður VM, ræða við Sigurjón Magnús Egilsson um áskoranir sem mæta fólki á eftirlaunaaldri. Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Ástvaldur Zenki Traustason ræða um búddismann í amstri dagsins og Einar Sigurður Jónsson segir frá lífi sínu.
    3 hr 42 min
  • Með á nótunum - 100 - Brynja Skjaldar
    Þriðjudagur 1. október
    Með á nótunum - 100 - Brynja Skjaldar
    Jæja, kæru Landsmenn. Season 4 af Með á Nótunum er hafið. Óli Hjörtur og Natalie verða með þér annan hvern þriðjudag á þessum bremsulausa bíl með góða skapið og góða gesti. Í þessum fyrsta þætti fengum við hana Brynju Skjaldar í kaffi til að fara yfir helstu fréttirnar og afmælisbörnin góðu.
    Verið Með á Nótunum í boði Bíó Paradísar í vetur.
    1 hr 20 min
  • Rauða borðið 1. okt - Þriðja heimsstyrjöldin, vistkrísa, borgarlína, Elskuleg og karlar
    Þriðjudagurinn 1. október
    Þriðja heimstyrjöldin, vistkrísa, borgarlína, Elskuleg og karlar
    Tjörvi Schiöth doktorsnemi segir okkur frá innrás Ísraelshers í Líbanon og veikri vígstöðu Úkraínuhers, sem hvort tveggja getur leitt til þriðju heimstyrjöldinni. Heldri eldhugar og fulltrúar eldri aðgerðarsinna Aldins, þeir Stefán Jón Hafstein og Árni Bragason koma að Rauða borðinu og varða veg úr vistkrísunni með alvöru aðgerðaráætlun í raunhæfri bjartsýni. Þórarinn Hjaltason samgönguverkfræðingur er í hópi skeptískra er kemur að Borgarlínu. Hann segir að Borgarlínan hafi þegar kostað höfuðborgarbúa mikið. Vera Wonder Sölvadóttir leikstjóri, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Vilborg Halldórsdóttir leikkona og Helga Rakel Rafnsdóttir leikstjóri ræða Elskuleg, mynd Lilju Ingólfsdóttir, sem fjallar um konur og skilnaði. Annar kafli í karlaspjallinu fjallar um seka karlinn. Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur leiðir samtal um karlmennsku. Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur, Reinhold Richter eftirlaunamaður og Freyr Eyjólfsson öskukarl svara og segja frá.
    4 hr 55 min
  • Rauður raunveruleiki - Ragnar Sverrirsson / Heimsganga fyrir friði og tilveru án ofbeldis
    Ragnar Sverrirson hefur lengi verið viðloðin alþjóðlegu Húmanistahreyfingunni og er nýkominn frá Keníu.
    Á miðvikudaginn verður viðburður í Klambratúni þar sem verður gert mannlegt friðarmerki. Sanna Magdalena verður fundastjóri og ræðufólk frá fjölmörgum samtökum taka til máls. Magga Stína mun synga.
    Mæting klukkan 20! Hvetjum alla til að mæta og standa fyrir friði.
    En eins og sagt var er Ragnar nýkomin frá Keníu þar sem hann var að starfa með félögum í Húmanistahreyfingunni.
    Heimsgangan fyrir friði og tilveru án ofbeldis mun eiga sér stað um allan heim en hún byrjar fyrst núna á miðvikudaginn!
    Við ræðum við Ragnar um Húmanistahreyfinguna og Heimsgönguna.
    Við sýnum tónlist frá húmanistanum og tónlistarkonunni Black Queen í lokin. Hún er 18 barna móðir.
    1 hr 4 min
  • Reykjavíkurfréttir 1. okt - Samgönguleysi í Gufunesi
    Þriðjudagur 1. október
    Reykjavíkurfréttir: Samgönguleysi í Gufunesi
    Í þætti dagsins ræðum við um almenningssamgöngur frá sjónarhóli íbúa í Gufunesi en gestir okkar, Móberg Ordal og Rakel Glytta Brandt heilluðust af vistvænum hugmyndum um sjálfbært þorp og samvinnu íbúa en enduðu samgöngulaus og félagslega einangruð í Jöfursbás.
    49 min
  • Rauða borðið 30. sept - Umboðsmaður Alþingis, píratar, lýðræðið, samgöngur og þýðingar
    Fimmtudagurinn 26. september
    Rauða borðið: Umboðsmaður Alþingis, píratar, lýðræðið, samgöngur og þýðingar
    Í dag er síðasti dagurinn sem Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis getur talað frjálst. Við ræðum við Skúla um meðal annars Yazan-málið. Björn Leví Gunnarsson þingmaður pírata kemur og ræðir stemmninguna á Alþingi, fortíð og framtíð flokksins. Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor emerita, Sölvi Halldórsson rithöfundur og kynningarfulltrúi RIFF, Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri horfðu á franska heimildarmynd um búsáhaldarbyltinguna og lýðræðistilraun sem ekki er lokið. Þau ræða máli við Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði við Háskóla Íslands, fræðir okkur um störf þýðandans í tilefni af degi þýðenda. Og við endum á umræðu um samgöngur. Unnar Erlingsson, íbúi á Austurlandi ræðir reiði margra flugfarþega í innanlandsfluginu. Una Margrét Jónsdóttir dagskrárgerðarkona á Rúv og strætófarþegi slær svo botninn í þáttinn með því að lýsa veröld þeirra sem nota almenningssamgöngur á hverjum degi.
    4 hr 4 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners