Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauður raunveruleiki - Alfred de Zayas / Alþjóðalög, mannréttindi og áróður
    Alfred de Zayas er prófessor í alþjóðalögum við Háskólann í Genf og hefur áratugareynslu af starfi innan Sameinuðu Þjóðanna. Hann hefur starfað sem óháður sérfræðingur mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna í alþjóðamálum og skrifað fjölmargar bækur um alþjóðakerfið.
    Alfred hefur margt til málanna að leggja og er harður gagnrýnandi á tvískinnung Vesturlanda þegar kemur að mannréttindum og alþjóðalögum.
    Alfred hefur skrifað bækur á borð við "The Human Rights Industry" (2023), "Building a Just Order" (2021) og "Countering Mainstream Narratives: Fake News, Fake Law, Fake Freedom" (2022).
    Við ræddum við Alfred í kjölfar fundar í Safnarhúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn var liður í fundarröð Ögmundar Jónassonar: Til róttækrar skoðunar.
    1 hr 23 min
  • Synir Egils 29. sept - Byrlun, vinnumansal, pólitísk átök og skuldir ríkissjóðs
    Sunnudagur 29. september
    Synir Egils: Byrlun, vinnumansal, pólitísk átök og skuldir ríkissjóðs
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill, Jón Gnarr listamaður og pólitíkus og Hjördís Rut Sigurjónsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður munu taka púlsinn á pólitíkinni og síðan koma þrír þingmenn til að ræða stöðu ríkisfjármála, skuldasöfnun og vaxtabyrði: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknar, Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata, Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingar.
    2 hr 13 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Þóra Stína
    Laugardagur 28. september
    Helgi-spjall: Þóra Stína
    Þórunn Kristín Emilsdóttir, líka kölluð Þóra Stína hefur starfað sem leiðbeinandi miðill í mörg ár og lýsir litríku starfi sínu og ræðir einnig um baráttu sína fyrir tjáningu á sannleikanum í gegnum réttarhöld, glæpa- og sálarrannsóknir.
    1 hr 52 min
  • Heimsmyndir - Róbert Jack
    Föstudagur 27. september
    Heimsmyndir - Róbert Jack
    Róbert Jack heimspekingur kom í þáttinn að ræða upplifanir af fyrri lífum. Hvað sú þekking eða lífsskoðun gerir fyrir hans heimsmynd. Hafi maður upplifað slíkt vill maður geta rætt það við einhvern. Við erum félagsverur. En er það með góðu móti hægt?
    1 hr 12 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39
    Vikuskammtur í dag, 27. september
    Efnahagsmál, náttúruvernd, pólitík, rasismi og vinnubrögð lögreglu verða meðal umræðuefna í Vikuskammti að þessu sinni. Gestir eru Gunnar Sigurðsson leikari, Sigmundur Ernir Rúnarsson blaðamaður, Þorgerður María Þorbjarnardóttir, Landvernd og Sigmar Guðmundsson þingmaður. Umsjónarmaður er Björn Þorláks
    1 hr 32 min
  • Rauða borðið 26. sept - Óspilltir blaðamenn, nýir Íslendingar, VG, líðan barna, alþjóðakerfið, kúrekar og dýraníð
    Fimmtudagur 26. september
    Rauða borðið: Óspilltir blaðamenn, nýir Íslendingar, VG, börn og þeirra líðan, alþjóðakerfið, kúrekar og dýraníð.
    Aðalsteinn Kjartansson sem hefur um árabil haft réttarstöðu sakbornings ásamt fjölda annarra blaðamanna ræðir ákvörðun lögreglu fyrir norðan að hætta rannsókn á umtöluðu máli.
    Við fjöllum um innflytjendamál. Þau Morgane Priet-Mahéo stuðningsfulltrúi hjá Rétti barna á flótta, Hallfríður Þórarinsdóttir doktor í menningarmannfræði, Sema Erla Serdaroglu formaður Sólaris og Jasmina Vajzović stjórnmálfræðingur ræða stöðu nýrra Íslendinga, flóttafólks og fólks af erlendum uppruna. Hlynur Hallsson VG-félagi telur ekki ráðlegt að sprengja ríkisstjórnina. Hann hyggur að viðspyrna sé á næsta leyti. Geðheilsa barna verður til umfjöllunar. Þórhildur Ólafsdóttir barnasálfræðingur setur hnífamálið í stærra samfélagslegt samhengi. Ögmundur Jónasson segir okkur frá gagnrýni Alfred de Zayas, prófessors í alþjóðalögum, á veiklað alþjóðakerfið, en de Zayas heldur fyrirlestur á vegum Ögmundar í Þjóðmenningarhúsinu á laugardaginn. Árni Sveinsson leikstjóri og Jón Oddi Víkingsson aka Johnny King tónlistarmaður ræða Kúreka. Og við endum á umfjöllun um dýraníð og dýravernd. Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands gagnrýnir sinnuleysi.
    4 hr 20 min
  • Rauða borðið: Forseti, biskup, vinnumansal, Vg, fréttir og hrepparígur
    Miðvikudagurinn 25. september 
    Forseti, biskup, vinnumansal, Vg, fréttir og hrepparígur
    Guðrún Karls Helgudóttir biskup og Halla Tómasdóttir forseti koma að Rauða borðinu og ræða vaxandi tilfinningu fyrir að samfélagið hafi sveigt af braut. Adam Kári Helgason, eftirlitsfulltrúi Fagfélaganna og Eflingar, Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur á lögfræði- og vinnumarkaðssviði ASÍ, Gundega Jaunlinina, varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands ræða vinnuframsal, starfsmannaleigur og brot á réttindum launafólks. Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR ræðir tillögu sína og annarra fyrir flokksþing, um að stjórnarsamstarfinu verði slitið strax. Sigurjón Magnús Egilsson kemur og ræðir pólitík og fréttir vikunnar við blaðamennina Sigtrygg Ara Jóhannsson og Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur. Í lokin segir dr. Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálafræðingur okkur frá hrepparíg og ólíkan kúltúr milli bæjarfélaga.
    3 hr 21 min
  • Rauða borðið: Freki karlinn, aðgerðarleysi í loftlagsmálum, Brasilía, innanlandsflug, Sýslumaður dauðans og ull
    Þriðjudagurinn 24. september
    Freki karlinn, aðgerðarleysi í loftlagsmálum, Brasilía, innanlandsflug, Sýslumaður dauðans og ull
    Við hefjum þáttinn á umræðu um karla með Bjarna Karlssyni; Bergsteinn Sigurðsson blaðamaður, Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata og Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri ræða karlmennsku og einkum freka karlinn. Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands., Auður Önnu Magnúsdóttir fyrrum framkvæmdastjóri Landverndar, Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði og Þorbjörg María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar gagnrýna aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftlagsmálum. Luciano Dutra segir okkur frá pólitíkinni í Brasilíu og Ólína Freysteinsdóttir íbúi á Akureyri frá hækkun á innanlandsflugi. Við ræðum leikritið Sýslumaður dauðans við höfundinn Birni Jón Sigurðsson, leikstjórann Stefán Jónsson, aðalleikarann Harald Ara Stefánsson og leikhússtjórann Brynhildi Guðjónsdóttur. Og í lokin segir Hulda Brynjólfsdóttir bóndi og eigandi Uppspuna okkur frá ullarvikunni.
    5 hr 14 min
  • Reykjavíkurfréttir - Slökkvistarf í eiginlegri og óeiginlegri merkingu
    Þriðjudagur 24. september
    Reykjavíkurfréttir: Slökkvistarf í eiginlegri og óeiginlegri merkingu
    Ásta Dís og Sanna ræða ýmislegt úr borgarmálum síðustu viku. Samþykkt var að skoða nánar tillögu Sósíalistaflokks í borgarstjórn um næringargildi gjaldfrjálsra skólamáltíða.
    Ásta Dís segir frá reykköfun, óleyfisbúsetu og fleiru í heimsókn sinni til slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins en aðalfundur þeirra var haldinn á föstudaginn var í Hafnarfirði og þar kom ýmislegt fróðlegt í ljós. Kjalarnes bar á góma en. einnig ræðum við stuttlega um NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð).
    30 min
  • Rauða borðið: Reiðhjól, karlmennska, öryggismál, Viðreisn og leikrit um fatlaða konu
    Mánudagurinn 23. september
    Reiðhjól, karlmennska, öryggismál, Viðreisn og leikrit um fatlaða konu
    Fólk sem ferðast um borgina á hjólum ræðir samgöngumál við Rauða borðið: Sigmundur Ernir Rúnarsson blaðamaður, Herdís Schopka jarðfræðingur, Örn Bárður Jónsson prestur og Gísli Tryggvason lögmaður lýsa samgöngum höfuðborgarsvæðisins séð af hnakki reiðhjóls. Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur lítur við og ræðir samtöl um karlmennsku sem verða við Rauða borðið á næstu vikum. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við okkur um Eystrasaltslöndin, aukin hernaðarútgjöld í Evrópu, hrörnandi hagkerfi og vaxandi stórveldaátök. Hanna Katrín Friðriksson þingflokksmaður Viðreisnar segir frá áherslum flokksins og metur stöðu stjórnmála í vikulegum þætti þingsins. Við fjöllum um leikritið Taktu flugið, beibí sem segir sögu fatlaðrar konu. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir höfundur, leikari og aðalpersóna, Ilmur Stefánsdóttir leikstjóri og leikararnir Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Ernesto Camilo Aldazábal Valdés og ræða verkið og erindi þess.
    3 hr 49 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners