Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Synir Egils: Samfélagslegur harmur, pólitískur skjálfti og húsnæðiskreppa
    Sunnudagurinn 22 . september: 
    Synir Egils: Samfélagslegur harmur, pólitískur skjálfti og húsnæðiskreppa
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Eyrún Magnúsdóttir fjölmiðlakona, Dagbjörg Hákonardóttir þingkona og Róbert Marshall leiðsögumaður og fara yfir fréttir vikunnar sem einkenndust af þungbærum fréttum og pólitískum óróa. Þeir bræður taka stöðuna á á pólitíkinni og síðan koma Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna, María Pétursdóttir formaður húsnæðishóps ÖBÍ og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og ræða viðvarandi húsnæðiskreppu, aðgerðaleysi stjórnvalda og hvað sé til ráða.
    2 hr 16 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38
    Föstudagurinn 20. september
    Vikuskammtur: Vika 38
    Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Aníta Sóley Scheving Þórðardóttir nemi, Bergþór Másson umboðsmaður og hlaðvarpari, Kristín Sveinsdóttir kennari og söngkona, Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson verkefnastjóri við HÍ og Marinó G. Njálsson ráðgjafi og samfélagsgreinir og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af hörmungarfréttum, brottvísun, mótmælum og átökum
    1 hr 39 min
  • Rauða borðið 19. sept - Kvenfrumkvöðlar, orkuokur, foreldrar og börn, félagslegir töfrar og lífsleikni
    Fimmtudagurinn 19. september
    Kvenfrumkvöðlar, orkuokur, foreldrar og börn, félagslegir töfrar og lífsleikni
    Verðlaunakvenfrumkvöðlar setjast með Oddnýju Eir Ævarsdóttur og ræða sín afrek og stöðu kvenna: Heiðdís Einarsdóttir, Elinóra Inga Sigurðardóttir, Hraundís Guðmundsdóttir og Björg Árnadóttir. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræðir um hækkun á orkuverði, rukkanir fyrir bílastæði, vöruskerðingu og önnur neytendamál. Ársæll Arnarsson prófessor í sálfræði ræðir uppeldi og samskipti foreldra við börn og Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um hvað beri að gera til að endurvefa félagslegt net samfélagsins. Í lokin ræðir Róbert Jack heimspekingur um vanda skólakerfisins, um sjálfsstjórn, lífsleikni og tjáningu tilfinninga.
    3 hr 54 min
  • Sjávarútvegsspjallið - 22. þáttur - Stefna Viðreisnar í sjávarútvegsmálum
    Fimmtudagur 19. september
    Sjávarútvegsspjallið - 22. þáttur - Stefna Viðreisnar í sjávarútvegsmálum: Daði Már Kristófersson
    Á næstunni mun Sjávarútvegsspjallið taka fyrir stefnu stjórnmálaflokkanna í sjávarútvegsmálum. í þessum þætti fær Grétar Mar aðstoð frá Ólafi Jónssyni (Óla ufsa) og fá þeir félagar til sín Daða Má Kristófersson, varaformann Viðreisnar til að fræðast um stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum.
    1 hr 3 min
  • Rauða borðið 18. sept - Niðurskurðarstefna, borgarlína, borgaraleg óhlýðni og Ólympíuleikar
    Miðvikudagurinn 18. september 
    Niðurskurðarstefna, borgarlína, borgaraleg óhlýðni og Ólympíuleikar
    Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar segir okkur frá bók Clöru Mattei hagfræðiprófessor um Auðvaldsskipulagið og svelti- eða niðurskurðarstefnu. Sanna Magdalena Mörtudóttir Sósíalisti og Dóra Björt Guðjónsdóttir Pírati deila um borgarlínu. Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki á Menntavísindasviði Háskóla Íslands ræða um gildi mótmæla og borgaralegrar óhlýðni. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson sagnfræðinemi og íþróttafréttamaður segir okkur frá för íslenskra keppenda og fylgdarliðs á Ólympíuleikana í London 1948.
    3 hr 15 min
  • Rauða borðið 17. sept - Pólitískur skjálfti, mótmæli, breytt veðurkerfi og hávaði
    Þriðjudagurinn 17. september
    Pólitískur skjálfti, mótmæli, breytt veðurkerfi og hávaði
    Við Rauða borðið í kvöld ræðir Sigurjón Magnús Egilsson við þingmann og blaðamann um stöðu ríkisstjórnarinnar í kjölfar gríðarlegrar ólgu vegna fyrirhugaðrar brottvísunar fatlaða drengsins Yazan. Þeir Björn Leví Gunnarsson pírati og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður verða gestir Sigurjóns. Gunnar Smári Egilsson ræðir við fjölda mótmælenda sem hafa staðið vaktina í andófi gegn brottvísun Yazan. Þau Anna Lára Steindal, Daníel Þór Bjarnason, Kristbjörg Arna Elínardóttir Þorvaldsdóttir, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp og Pétur Eggerz Pétursson ræða baráttu fyrir mannréttindum og samkennd. Hvert veðurmetið á fætur öðru hefur verið slegið undanfarið. Áleitin spurning er hve mikil áhrif loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa á veðrið og aðra þætti mannlegrar tilveru. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kemur og ræðir stóru spurningarnar við Björn Þorláks. Rauða borðinu lýkur svo með spjalli við Daða Rafnsson, meðlim samtaka sem berjast gegn óþörfum hávaða við Reykjavíkurflugvöll. Auðmannadekur ber á góma.
    3 hr
  • Reykjavíkurfréttir - Ójöfnuður í skólakerfinu
    Þriðjudagur 17. september
    Ójöfnuður í skólakerfinu
    Í þessum þætti ræðum við um ójöfnuð og birtingarmyndir þess í skólum. Þórunn Einarsdóttir kennari í framhaldsskóla kemur til okkar og ræðir við okkur um skólastarfið, falinn kostnað við skólaviðburði og misjafnar aðstæður nemenda. Þá veltum við því einnig upp hvort að framhaldskólar ættu að vera gjaldfrjálsir.
    42 min
  • Rauða borðið: Samfylking, áfengi, djöfulsins karlar og eitrið í samfélaginu
    Mánudagurinn 16. september
    Samfylking, áfengi, djöfulsins karlar og eitrið í samfélaginu
    Logi Már Einarsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar ræðir pólitískan samtíma og sögu flokksins frá því að Vinstri stjórnin var við völd eftir hrun. Árni Guðmundsson félagsfræðingur kærði sjálfan sig fyrir ólögleg áfengiskaup til að láta reyna á lög og reglur samfélagsins. Hann lýsir áhyggjum af bresti í forvörnum ungmenna og hans skilaboð til Hagkaupa eru: Hættið að selja áfengi! Þórdís Gísladóttir þýðandi segir okkur frá bókinni Þessi djöfulsins karlar eftir Andrev Walden, sem er uppvaxtarsaga en fjallar líka um konu sem vill bjarga körlum sem reynast bölvaðir drullusokkar þegar á reynir. Séra Örn Bárður Jónsson jarðsöng Bryndísi Klöru, sautján ára stúlku sem lést eftir árás. Hann segir að Íslendingar þurfi að ræða eitrið í samfélaginu.
    2 hr 47 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners