Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 10. sept - Framhaldsskólinn, orkuskortur og orkuþjófnaður, Ítalía og ferðaiðnaður
    Þriðjudagurinn 10. september
    Framhaldsskólinn, orkuskortur og orkuþjófnaður, Ítalía og ferðaiðnaður
    Við förum yfir mótmæli dagsins og ræðum svo stöðu framhaldsskólanna. Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við Borgarholtsskóla og varamaður í stjórn Félags framhaldsskóla, Anton Már Gylfason, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum og áfangastjóri við Borgarholtsskóla, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF og áður kennari við Menntaskólann á Akureyri og Ingibjörg Karlsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu FF og áður kennari við Menntaskólann í Kópavogi koma að Rauða borðinu og greina hvað er vel gert og hvað illa í framhaldsskólum. Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða og Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands ræða orkumál við Oddnýju Eir Ævarsdóttur, sem síðan ber sjónarmið þeirra undir Sigurð Hannesson framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins. Roberto Luigi Pagani aðjúnkt við HÍ segir okkur frá stjórnmálum á Ítalíu og reyndar líka af íslenskukennslu fyrir útlendinga. Og í lokin kemur Edward H. Huijbens, prófessor í menningar-landfræði við Wageningen háskóla, og ræðir ferðaiðnaðinn.
    4 hr 32 min
  • Reykjavíkurfréttir 10. sept - Hvað er málið með þessa borgarstjórn?
    Þriðjurdagur 10. september
    Reykjavíkurfréttir - Hvað er málið með þessa borgarstjórn?
    Í þessum þætti kynnum við Ástu Þórdísi Skjalddal Guðjónsdóttur til leiks og starfs í borgarstjórnarflokki Sósíalista. Við ræðum hvernig reynsla hennar úr grasrót fólks í fátækt nýtist inn í pólitíkina og förum yfir starf okkar sem kjörinna fulltrúa í borginni, hin ýmsu ráð og aðkomu að þeim.
    38 min
  • Rauður raunveruleiki - ASÍ, mótmæli á morgun, stéttabarátta og pólitík.
    Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) hafa boðað til mótmæla á morgun (10. september) á Austurvelli kl. 16:00.
    Í tilkynningu á vef ASÍ segir: „Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum.
    Nú er nóg komið!“
    Samstöðutjald Vorstjörnunnar mun rísa upp á vellinum og hvetjum við alla til þess að mæta á Austurvöll á morgun til að lýsa óánægju sinni með stjórnvöld sem virðast hugsa um lítið annað en hagsmuni borgarastéttarinnar, hinna ofurríku.
    Til þess að ræða um mótmælin og stjórnmálin fáum við til okkar þau Maríu Lilju Ingveldar- Þrastadóttur Kemp og Sæþór Benjamín Randalsson.
    Við munum ræða um mikilvægi og mögulegt hlutverk mótmæla, um stéttabaráttu og pólitíkina henni tengdri.
    1 hr 9 min
  • Rauða borðið 9. sept - Bankasala, leikskólar, mótmæli og ofbeldi
    Mánudagurinn 9. september
    Bankasala, leikskólar, mótmæli og ofbeldi
    Þingið hefur göngu sína í kvöld. Björn Leví Gunnarson þingmaður Pírata og Brynjar Níelsson, varaþingmaður  Sjálfstæðisflokks, ræða við Björn Þorláks um foringjakrísu sjálfstæðismanna og sölu Íslandsbanka. Við ræðum skólamál í vikunni, hvert skólastig fyrir sig. Sveinlaug Sigurðardóttir, varaformaður Félags leikskólakennara, Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands og Sigurður Sigurjónsson formaður Félags stjórnenda leikskóla ræða hvað er gott og hvað vont í leikskólunum okkar. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR ræðir mótmæli morgundagsins og Þráinn Bj. Farestveit framkvæmdastjóri Verndar ræðir ofbeldi ungmenna, nú og fyrr á tíð.
    3 hr 7 min
  • Synir Egils 8. sept - Ofbeldi, innflytjendur, pólitík, verkó og mótmæli
    Sunnudagurinn 8 . september: 
    Synir Egils: Ofbeldi, innflytjendur, pólitík, verkó og mótmæli
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og fyrrum þingmaður, Ragnheiður Ríkharðsdóttir fyrrum þingkona og bæjarstjóri og Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður greina stöðuna og síðan koma þau Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Ragnar Þór Jónsson formaður VR og segja hvers vegna stærstu heildarsamtök launafólks sameinast í mótmælum við þingsetningu.
    Vettvangur dagsins:
    Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og fyrrum þingmaður
    Ragnheiður Ríkharðsdóttir fyrrum þingkona og bæjarstjóri 
    Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun
    Bræður spjalla
    Mótmæli
    Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB
    Ragnar Þór Jónsson formaður VR
    2 hr 2 min
  • Útvarp Palestína - 6. þáttur - Háskólanemar fyrir Palestínu
    Fimmtudagur 5. september
    Útvarp Palestína - 6. þáttur - Háskólanemar fyrir Palestínu
    Í sjötta þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Daníel Guðjón Andrason sem er hluti af baráttuhópnum Stúdentar fyrir Palestínu sem skipulögðu m.a. aðgerðir á lóð Háskóla Íslands sl. vor og svo Lísu Margréti Gunnarsdóttur, formann og GuðnaThorlacius, varaformann Landsamtaka íslenskra stúdenta en samtökin fordæmdu opinberlega stríðsglæpi Ísraela gagnvart Palestínu í nóvember sl.
    51 min
  • Rauður raunveruleiki - Lögregluofbeldi mótmælt / Pétur Eggerz Pétursson
    Pétur Eggerz Pétursson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum í tengslum við baráttuna fyrir frjálsri Palestínu, um ofbeldi lögreglunnar gagnvart mótmælendum í Skuggasundi og víðar.
    Anita Da Silva og Karl Héðinn tala við Pétur um mótmælin, stjórnmálin og nauðsyn þess að sporna við lögregluofbeldi og spillingu í Rauðum raunveruleika í kvöld klukkan 19:00
    1 hr 18 min
  • Vikuskammtur föstudaginn 06. september: Breki Karlsson, Karen Kjartansdóttir, Ólafur Arnarson og Sara Stef Hildar
    Vikuskammtur föstudaginn 06. september
    Samfélagið, pólitíkin og misskipting peninganna verður á boðstólnum á Samstöðinni klukkan 16 í dag þegar þátturinn Vikuskammtur fer í loftið í beinni útsendingu.
    Þátturinn hverfist um fréttir vikunnar og tíðaranda líðandi stundar.
    Gestir að þessu sinni verða Breki Karlsson, Neytendasamtökunum, Karen Kjartansdóttir almannatengill, Ólafur Arnarson blaðamaður og Sara Stef Hildar lausakona og launþegi.
    Björn Þorláks hefur umsjón með þættinum.
    1 hr 27 min
  • Rauða borðið 5. sept - Úkraína, Gaza, blaðamenn og skólakerfið
    Fimmtudagur 5. september
    Rauða borðið - Úkraína, Gaza, blaðamenn og skólakerfið
    Fastagestur Rauða borðsins, Hilmar Þór Hilmarsson prófessor, fer yfir stöðuna í stríðinu í Evrópu. Magga Stína fer yfir astöðuna á Gaza og blaðamennirnir Björn Þórláksson María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fara yfir átakafund í Blaðamannafélaginu. Í lokin fer Björgvin G. Sigurðsson kennari og fyrrum þingmaður yfir stöðuna í skólakerfinu.
    3 hr 33 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners