Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Útvarp Palestína - 5. þáttur: Steinunn Gunnlaugsdóttir og Þórir Jónsson Hraundal
    Fimmtudagur 29. ágúst
    Útvarp Palestína - 5. þáttur
    Steinunn Gunnlaugsdóttir og Þórir Jónsson Hraundal
    Í fimmta þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Steinunni Gunnlaugsdóttur, aktivista og myndlistarkonu og Þóri Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræði við Háskóla Íslands en þau hafa bæði tekið þátt í að berjast fyrir málstað Palestínu, Steinunn með aðgerðum beint gegn valdinu en Þórir með því að beita sér innan háskólans.
    58 min
  • Rauða borðið 28. ágúst - Pólitík, lágtekjukonur, hjónaband, Frakkland og nýfrjálshyggja
    Miðvikudagurinn 28. ágúst:
    Pólitík, lágtekjukonur, hjónaband, Frakkland og nýfrjálshyggja
    Sigurjón Magnús Egilsson kemur að Rauða borðinu og fer yfir pólitíkina með Gunnari Smára, bróður sínum. Á eftir ræðir Sigurjón við heldri menn um stöðuna: Hrafn Magnússon og Þröstur Ólafsson. Björn Þorláks ræðir við Kristínu Hebu Gísladóttur forstöðukonu Vörðu, rannsóknaseturs vinnumarkaðarins um stöðu lágtekjukvenna á tímum ver-bólgu og okurvaxta. Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir prófessor segir okkur frá gagnrýni kvenna á hjónabandið fyrir 200-300 árum og í lokin ræðir Oddný Eir Ævarsdóttir við Einar Má Jónsson prófessor í Sorbonne um frönsk stjórnmál og nýfrjálshyggju.
    3 hr 15 min
  • Rauða borðið 27. ágúst - Lífskjör, íshellar, listamannalaun, kynusli og gyðingar
    Þriðjudagurinn 27. ágúst
    Lífskjör, íshellar, listamannalaun, kynusli og gyðingar
    Stefán Ólafsson prófessor og sérfræðingur á skrifstofu Eflingar fer yfir stöðu efnahagsmála og hvernig merkja má forsendur kjarasamninga séu að leysast upp. Ólafur Ingólfsson prófessor í jarðfræði fer yfir hættuna af því að senda ferðamenn inn í íshella um mitt sumar. Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins ræðir efnahagslegan raunveruleika listamannalauna. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur segir okkur frá Guðrúnu Sveinbjarnardóttur, sem var kona en gat samt barn. Og Jón Bjarni Atlason segir okkur frá flökkulífi gyðinga í Evrópu fyrir hundrað árum.
    3 hr 10 min
  • Rauða borðið 26. ágúst - Skriður, skólastefna, stjórnmál í USA, fíkniefnadjöfullinn og Gaza
    Mánudagur 26. ágúst
    Skriður, skólastefna, stjórnmál í USA, fíkniefnadjöfullinn og Gaza
    Þarf að endurskoða búsetu, mannvirkjagerð og umferð hér á landi vegna aukinnar úrkomu og hnattrænnar hlýnunar? Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur svarar því og ræðir sérstaklega slysið óhuggulega þar sem erlendir ferðamenn týndu lífinu undir ís. Magnús Helgason sagnfræðingur fer yfir stöðuna í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.
    Við höldum umræðu um skólamál áfram með Kristjáni Kristjánssyni, prófessor í Birmingham. Íslensk börn skortir samhygð og forvitni. Hvernig bætum við úr? Ívar Örn Katrínarson skrifaði endurminningar sínar og nefndi þær: Ég ætla að djamma þar til ég drepst. Hann kemur og rekur ferð sína til helvítis dópheimsins og leiðina til baka. Og í lokin fer Magga Stína yfir fréttir frá Gaza og ræðir auk þess níðingsverk gegn föfluðu barni sem augljóslega er brot á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
    3 hr 27 min
  • Synir Egils 25. ágúst - Hægrið, pólitíkin, skólamál og Framsókn
    Sunnudagurinn 25 . ágúst:
    Synir Egils: Hægrið, pólitíkin, skólamál og Framsókn
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Sigríður Á. Andersen lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður og ráðherra, Tómas Ellert Tómasson byggingarverkfræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg og Þórður Gunnarsson hagfræðingur og ræða pólitísk landslag á Íslandi og víðar og ekki síst þær umbreytingar sem hægrið gengur í gegnum. Þá mun Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra svara spurningum Gunnars Smára og Björn Þorlákssonar og í lokin fara þeir bræður yfir stöðu mála.
    2 hr 19 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur - Vika 34
    Föstudagur 23. ágúst 2024
    Vikuskammtur - Vika 34
    Mjög góðir gestir mæta í Vikuskammt í dag. Ragnar Þór Ingólfsson verkalýðsleiðstogi, Heiðar Ingi Svansson bókabéus og Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur fara yfir fréttir vikunnar. Meðal umræðuefna verða drykkjuskapur, náttúruhamfarir og meint sjálfspíningarhvöt Íslendinga í efnahagsmálum! Björn Þorláks hefur umsjá með þættinum.
    1 hr 40 min
  • Rauða borðið 22. ágúst - Prís, skólinn, Palestína og dánaraðstoð
    Fimmtudagurinn 22. ágúst
    Prís, skólinn, Palestína og dánaraðstoð
    Benjamín Júlían verkefnastjóri verðlagseftirlit Alþýðusambandsins og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna greina innrás Prís inn á dagvörumarkaðinn. Magga Stína segir okkur fréttir frá Gaza og Ragnar Þór Pétursson kennari bregst við viðtali okkar frá í gær við Þórdísi Jónu Sigurðardóttur forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, þar sem hún tók undir gagnrýni Viðskiptaráðs á skólakerfið. Í lokin spilum við tvö viðtöl: Fida Abu Libdeh, orkuumhverfistæknifræðingur og frumkvöðull er íslenskur Palestínumaður, ræðir við okkur um ástandið á Gaza og afstöðu íslenskra stjórnvalda. Og Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins ræðir um dánaraðstoð, sem hún er alfarið á móti.
    2 hr 53 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners