Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauður raunveruleiki - Þórarinn Eyfjörð / Menntun, samfélag, lýðræði og stéttabarátta
    Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis, stéttarfélags opinberra starfsmanna í almannaþjónustu.
    Við ræðum við Þórarinn um orlofsgreiðslur, um muninn á Jóni og Séra Jóni, um menntun, félagsstarf, lýðræði, velferð og þá vegferð sem Ísland er á. Hvað kynni að vera fram undan í stéttabaráttu almennings og af hverju er Ísland ekki enn þá komið með nýja stjórnarskrá?
    Þetta og fleira í Rauðum raunveruleika í kvöld.
    51 min
  • Útvarp Palestína - 4. þáttur - María og Valgerður Pálma og Þorgerðardætur
    Fimmtudagur 22. ágúst
    Útvarp Palestína, 4. þáttur
    Í fjórða þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín systurnar Katrínu Pálmadóttir Þorgerðardóttir, doktorsnema í heimspeki sem starfar með baráttuhópnum Háskólafólk fyrir Palestínu á Íslandi og Valgerði Pálmadóttur Þorgerðardóttur, nýdoktor og hugmyndasagnfræðing við Sagnfræðistofnun HÍ. Enginn háskóli á Íslandi hefur fordæmt þjóðarmorðið á Palestínumönnum á meðan samstarfi við Rússa var umsvifalaust slitið í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Ein alvarlegasta birtingarmynd þjóðarmorðsins afhjúpast einnig í því sem kallast menntamorgð (e. scholasticide) en það gerist þegar sögu, menningu og vísindum þjóðar er kerfisbundið eytt. Allir háskólar bókasöfn eða skjalasöfn hafa verið spengd á Gaza.
    1 hr
  • Rauða borðið 21. ágúst - Skólinn, Vg, hinsegin bækur, ME-sjúkdómur, Frosti & Smári
    Miðvikudagurinn 21. ágúst:
    Skólinn, Vg, hinsegin bækur, ME-sjúkdómur, Frosti & Smári
    Þórdís Sigurðardóttir sem veitir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu forstöðu tekur undir margt af þeirri alvarlegu gagnrýni sem komið hefur fram á grunnskólakerfið. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Orra Pál Jóhannsson þingflokksformann um Vg. Rithöfundarnir Kristín Ómarsdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir segja frá Queer bókmenntahátíð og Helga Edwardsdóttir varaformaður ME félagsins segir frá þessum sjúkdómi og ráðum við honum. Í lokin spilum við viðtal Frosta Logasonar við Gunnar Smára Egilsson um efnahagsmál og kynusla.
    4 hr 34 min
  • Rauða borðið 20. ágúst - Borgin, áfengi, kyn, kona í buxum og víkingar
    Þriðjudagurinn 20. ágúst
    Borgin, áfengi, kyn, kona í buxum og víkingar
    Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi ræðir samband stjórnmála og áfengis en mörgum finnst þörf á bragarbót. Alex Diljar Birkisbur Hellsing, Veiga Grétarsdóttir Sulebust, Kitty Anderson og Una Theodór Braga ræða hvað er kyn fyrir einstaklingum og samfélagi. Auður Styrkársdóttir segir okkur frá Þuríði formanni, sem var kona í karlmannsbúningi. Og Guðrún Dröfn Whitehead lektor í safnafræði við Háskóla Íslands hefur skrifað bók þar sem hún leitar svara við því.
    2 hr 43 min
  • Rauða borðið 19. ágúst - Áfengi og pólitík, Gaza, stjórnsýslan og þátttaka í lýðræðinu
    Mánudagurinn 19. ágúst
    Áfengi og pólitík, Gaza, stjórnsýslan og þátttaka í lýðræðinu
    Jódís Skúladóttir þingmaður VG varpar sprengju í umræðuna og upplýsir að hún hafi gert athugasemd innan forsætisnefndar Alþingis vegna drykkju þingmanna við þinglok í vor. Magga Stína segir fréttir af Gaza og Þorvaldur Ingi Jónsson, þrautreyndur ríkisstarfsmaður segir mikla sóun eiga sér stað í stjórnsýslunni og að spara mætti stórfé með betri vinnubrögðum. Ole Anton Bieltvedt kaupsýslumaður og dýraverndarsinni skrifar oft greinar um samfélagsmál. Hann kemur til okkar og segir hvers vegna.
    3 hr 38 min
  • Synir Egils: Óvinsæl ríkisstjórn veikra flokka, verðbólga og okurvextir
    Sunnudagurinn 18. ágúst:
    Synir Egils: Óvinsæl ríkisstjórn veikra flokka, verðbólga og okurvextir
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Drífa Snædal, talskona Stígamóta, Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi ráðherra og Þórður Snær Júlíusson, fyrrum ritstjóri Heimildarinnar og ræða veika stöðu stjórnarflokkanna og forystukreppu innan þeirra, helstu verkefni stjórnmálanna í vetur, harðnandi tón í kjaramálum lækna, kennara og annarra menntaðra stétta, viðvarandi verðbólgu og háa vexti. Á eftir taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni.
    1 hr 40 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Erpur
    Laugardagurinn 17. ágúst
    Helgi-spjall: Erpur
    Erpur Eyvindarson kemur í helgi-spjall við Rauða borðið og segir okkar frá því hvernig hann varð sá sem hann er; frá ætt sinni og uppruna, fjölskyldu og vinum, kynslóð og Kópavogi og þeim þráðum sem mynda þann sem hann er í dag.
    2 hr 44 min
  • Heimsmyndir - Svanhildur Tinna Ólafsdóttir
    Föstudagur 16. ágúst
    Heimsmyndir - Svanhildur Tinna Ólafsdóttir
    Svanhildur Tinna Ólafsdóttir barnasálfræðingur kom í þáttinn að ræða heimsmynd barna á einhverfurófinu. Félagslegur veruleiki fólks sem af einhverjum ástæðum á erfitt með samskipti. Hver er hann og er það að einhverju marki spurning um viðhorf og þjálfun? Svanhildur varpaði ljósi á þær spurningar.
    1 hr 1 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 33
    Föstudagurinn 16. ágúst
    Vikuskammtur: Vika 33
    Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Almar Blær Sigurjónsson leikari, Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari og safnvörður, Þorbjörn Rúnarsson tenór og kennari og Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af því að sumarleyfin eru að klárast og daglegt líf að finna venjubundnari takt og átökin um grundvallarmál samfélagsins að brjótast fram.
    1 hr 20 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners