Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 4. sept - Pólitíkin, Viðreisn, útsölur, ungdómurinn, eldgos og kommar
    Miðvikudagurinn 4. september
    Pólitíkin, Viðreisn, útsölur, ungdómurinn, eldgos og kommar
    Sigurjón Magnús Egilsson ræðir pólitíkina við Gunnar Smára bróður sinni og ræðir síðan við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar sem áður var varaformaður Sjálfstæðisflokksins, um þessa tvo flokka. Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fjallar um samkeppni milli matvöruverslana og falskar útsölur. Listakonurnar Sara Óskarsdóttir og Lóa Hjálmtýsdóttir hafa blandað sér í umræðu um hnífaburð ungmenna og Björn Þorláks ræðir við þær. Einnig við Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing sem segir yfirstandandi eldgos geta orðið hættulegt þótt það ógni ekki Grindavík. Í lokin segir Skafti Ingimarsson okkur frá sögu hreyfingar kommúnista og sósíalista á Íslandi.
    4 hr 28 min
  • Rauða borðið 3. sept - Hnífaburður, Bandaríkin, Færeyjar, Sjálfstæðisflokkur og vinstrið
    Þriðjudagurinn 3. september
    Hnífaburður, Bandaríkin, Færeyjar, Sjálfstæðisflokkur og vinstrið
    Sólveig Guðrún Hannesdóttir rektor MR ræðir hnífaburð ungmenna, Guðmundur Hálfdánarson prófessor ræðir forsetakosningar í Bandaríkjunum og Carl-Jóhan Jensen rithöfundur segir fréttir frá Færeyjum. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður og Jón Kristinn Snæhólm stjórnmálafræðingur ræða um stöðu Sjálfstæðisflokksins og Einar Már Jónsson prófessor við Sorbonne segir sögu vinstrisins frá stríðslokum að okkar tímum.
    4 hr 31 min
  • Reykjavíkurfréttir 3. sept - Umhverfisvænar og heilsusamlegar skólamáltíðir
    Þriðjudagur 3. september
    Reykjavíkurfréttir - Umhverfisvænar og heilsusamlegar skólamáltíðir
    Í þessum fyrsta haustþætti Reykjavíkurfrétta eru gestir okkar þeir Ludvig Guðmundsson læknir og Stefán Jón Hafstein fyrrverandi formaður menntaráðs Reykjavíkur en báðir eru þeir félagar í Aldin eins og fram kemur í þættinum.
    Þátturinn fjallar um gjaldfrjálsar skólamáltíðir sem eru jú hluti af samþykktum ríkis og sveitarfélaga við 20 stéttarfélög sem hluta af kjarabótum og er komið til framkvæmda á þessu skólaári en umræðan að þessu sinni er út frá umhverfislegu sjónarmiði.
    Umsjónarmenn þáttarins eru þær Sanna Magdalena Mörtudóttir og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
    28 min
  • Rauða borðið 2. sept - Hnignun meginstraumsmiðla, Gaza, hrun Valhallar og ofbeldi
    Mánudagurinn 2. september
    Hnignun meginstraumsmiðla, Gaza, hrun Valhallar og ofbeldi
    Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir okkur frá því hvernig fréttir meginstraumsmiðla á Vesturlöndum af stríði og þjóðarmorði hafa misst alla gagnrýni og aðhald á stjórnarstefnuna. Magga Stína segir okkur fréttir frá Gaza og Palestínu, þar sem stefnu ríkisstjórnar Netanjahú var mótmælt í dag. Við fáum Vilhjálm Egilsson, fyrrum þingmann, til að meta veika staða Sjálfstæðisflokksins og hverjar eru orsakir hennar. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur ræðir stöðuna sem upp er komin í samfélaginu eftir að barn drap barn með hnífi.
    4 hr 25 min
  • Synir Egils 1. sept - Pólitískt umrót, efnahagslægð, lífskjarakrísa og kjaradeilur
    Sunnudagurinn 1. september
    Synir Egils: Pólitískt umrót, efnahagslægð, lífskjarakrísa og kjaradeilur
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Helgi Seljan rannsóknarritstjóri Heimildarinnar og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða fréttir vikunnar, umrót í stjórnmálum, efnahagslægð og lífskajarakrísu. Að því loknu ræða þeir bræður stöðuna í pólitíkinni og síðan koma þær Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM, Svana Helen Björnsdóttir, formaður Félags verkfræðinga og Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins og ræða stöðu kjaramála stétta með lausa samninga.
    2 hr 14 min
  • Heimsmyndir - Jóhann Björnsson
    Föstudagur 30. ágúst
    Heimsmyndir - Jóhann Björnsson
    Jóhann Björnsson heimspekingur kom í þáttinn að ræða menntaheimspeki: PISA kannanir, væntingar til árangurs og eðli náms. Hvað er hlutverk menntastofnana og hvað segir heimspekin þar um?
    1 hr 2 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25
    Föstudagur 30. ágúst
    Vikuskammtur: Vika 25
    Í Vikuskammt í dag mæta þau Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi, Haukur Már Helgason, rithöfundur, Rebekka Atla Ragnarsdóttir, listfræðingur og Þorgeir Sigurðsson rafmagnsverkfræðingur og málfræðingur. Þátturinn er að þessu sinni í umsjón Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur.
    1 hr 28 min
  • Grimmi og Snar - #22 Gríms, Dísa, Immi og Grimmi
    Fimmtudagur 29. ágúst
    Grimmi og Snar - #22 Gríms, Dísa, Immi og Grimmi
    Grimmi og Snar hittu Gríms, sjálfa Vigdísi Gríms sem omæ god þeir dýrka Í þáttinn mættu líka mús, hákarl og svanur. Þið viljið ekki missa af þessum þætti. Þess vegna er búið að ákveða að hann verður á netinu að eilífu... amen
    1 hr 23 min
  • Rauða borðið 29. ágúst - Umpólun hægrisins, Gaza, einmanaleiki, karlmennska og gleymd bók
    Fimmtudagurinn 29. ágúst
    Umpólun hægrisins, Gaza, einmanaleiki, karlmennska og gleymd bók
    Eiríkur Bergmann prófessor ræðir um þau sögulegu tíðindi sem urðu í vikunni, þegar Miðflokkurinn mældist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn í könnun Maskínu. Magga Stína segir fréttir frá Gaza og séra Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræðir um einmanaleika. Rúnar Helgi Vignisson prófessor í ritlist skrifar um vanda karla á tímum upprisu kvenna í bókinni Þú ringlaði karlmaður. Hann ræðir efni hennar við Björn Þorláksson. Lena Rohrbach prófessor í norrænum fræðum í Basel og Zurich, Aðalheiður Guðmundsdóttir prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Jón Karl Helgason prófessor í íslensku og menningardeild Háskólans ræða um Eirík Laxdal og velta fyrir sér hvort þær séu fyrstu íslensku skáldsögurnar.
    3 hr 34 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners