Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Synir Egils 15. sept - Vaxtaokur, fjárlög og fallvölt ríkisstjórn
    Sunnudagur 15. sept
    Synir Egils: Fjárlög, vaxtaokur og fallvölt ríkisstjórn
    Gestir verða Bogi Ágústsson, Ingibjörhg Sólrún Gísladóttir, Jakob Frímann Magnússon og Ólafur Þ. Harðarson. Vettvangur dagsins, Bogi, Ingibjörg og Jakob. Pólitík dagsins, vaxtaokur bankanna, aðför að heimilum, fjárlög. Seinni hluti Ólafur. Staða ríkisstjórnarinnar, lifir hun eða deyr. Heldur Samfylkingin fylginu eða hrapar hún? Hvað með flokkanna sjálfa? T.d. Sósíalistaflokkinn?
    2 hr 10 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: María Bender
    Laugrdagur 14. september
    Helgi-spjall: María Bender
    María Haraldsdóttir Bender er gestur Björns Þorlákssonar sem sér um Helgispjallið þessa vikuna. María átti veigamikinn þátt í að koma upp um barnaníðing á sínum tíma og ræðir mikilvægi þess að við stöndum sem sjálfum okkur.
    1 hr 48 min
  • Heimsmyndir - Nicole Keller
    Föstudagur 13. september
    Heimsmyndir - Nicole Keller
    Nicole Keller doktor í jarðefnafræði kom í þáttinn að ræða um reynslu vísindamanns af að finna sig í jóga og hugleiðslu. Loftslagsmál og merkingar-krísan komu einnig við sögu.
    56 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 37
    Föstudagur 13. september
    Vikuskammtur: Vika 37
    Björn Þorláks stýrir þættinum og hittist þannig á að allir gestir hans fjórir eru konur. Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona, Guðrún Hulda Pálsdóttir ritstjóri Bændablaðsins, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Valgerður Rúnarsdóttir læknir á SÁÁ ræða helstu fréttamál þar sem stjórnmál, ofbeldi og áfengi kemur við sögu. Einnig verður létt og skemmtileg umræða eins og vera ber í vikulokin.
    1 hr 18 min
  • Grimmi og Snar #23 - Ég skora á þig Helgi 🍄
    Fimmtudagur 12. september
    Grimmi og Snar #23 - Ég skora á þig Helgi 🍄
    Eftir að hafa gengið á eftir Helga Jean Claessen með grasið í skónum í mörg ár kom hann í þáttinn 👁️ Grimmi skoraði á hann í rökræður, honum leyst ekki vel á það.
    🖐🏼️ 💜🤚🏼
    1 hr 27 min
  • Rauða borðið 12. sept - Stefnuræða, tónlistarskólar, Gaza, sálarástand og geirfuglinn
    Fimmtudagurinn 12. september
    Stefnuræða, tónlistarskólar, Gaza, sálarástand og geirfuglinn
    Blaðamennirnir Sigurjón Magnús Egilsson og Björn Þorláksson fara yfir stefnuræðu Bjarna Benediktssonar og umræður um hana í þinginu. Við fáum síðan kennara til að meta kosti og galla tónlistarskólans í yfirferð okkar um skólakerfið: Jóhann Ingi Benediktsson kennari í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Júlíana Rún Indriðadóttir skólastjóri sama skóla, Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri og Sigrún Grendal formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum greina stöðuna. Magga Stína segir fréttir af þjóðarmorðinu á Gaza sem stjórnvöld á Vesturlöndum styðja í orði, á borði eða með aðgerðarleysi. Gísli Pálsson mannfræðingur segir okkur frá geirfuglinum og Sóley Dröfn Davíðsdóttir sálfræðingur ræðir um sálarástand landans.
    3 hr 55 min
  • Útvarp Palestína - 7. þáttur - Sniðgangarar
    Fimmtudagur 12. september
    Útvarp Palestína - 7. þáttur - Sniðgangarar
    Í sjöunda þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Hólmfríði Jónsdóttir og Ingólf Gíslason sem hafa látið til sín taka í alþjóðlegu sniðgönguhreyfingu Palestínufólks sem kallast Boycott, Divestment and Sanctions eða BDS. Hólmfríður átti þátt í að virkja hreyfinguna hérlendis og er ein skipuleggjenda Sniðgöngunnar 2024 næsta laugardag, 14. September. Ingólfur er þar aðalræðumaður að göngu lokinni en mörg okkar þekkja til skrifa hans á visir. is undanfarna mánuði þar sem hann hefur fjallað um áhrif sniðgöngu en líka gagnrýnt harðlega bæði stjórnvöld og háskólasamfélagið fyrir afstöðu- og aðgerðaleysi í málefnum Palestínu.
    1 hr 3 min
  • Rauða borðið 11. sept - Grunnskólinn, kappræður, ferðaþjónusta, ofbeldi systkina og Ísland anno 1703
    Miðvikudagurinn 11. september
    Grunnskólinn, kappræður, ferðaþjónusta, ofbeldi systkina og Ísland anno 1703
    Við höfum fjallað um skólakerfið í vikunni og nú er komið að grunnskólanum. Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara, Gróa Axelsdóttir skólastjóri Stapaskóla Reykjanesbæ, Kristín Björnsdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur og Þorsteinn Sæberg formaður Skólastjórafélags Íslands greina hvað er gott og hvað má betur fara í grunnskólum. Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði ræðir frammistöðu frambjóðendanna sem bítast um stól Bandaríkjaforseta í nótt. Guðmundur Björnsson aðjúnkt í ferðamálafræði við HÍ greinir hættur ferðaþjónustunnar og Þórdís Bjarnleifsdóttir félagsráðgjafi segir okkur frá systkinaofbeldi. Í lokin draga Guðmundur Jónsson prófessor og Óskar Guðlaugsson doktorsnemi í sagnfræði upp mynd af íslensku samfélagi í byrjun átjándu aldar.
    4 hr 35 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners