Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 8. ágúst - Megas, óeirðir í Bretlandi, James Baldwin og heimsmálin
    Fimmtudagurinn 8. ágúst
    Megas, óeirðir í Bretlandi, James Baldwin og heimsmálin
    Þáttur kvöldsins í er í umsjón Gunnars Smára og Steinunnar Ólínu. Þau fá Spessa ljósmyndara í heimsókn og ræða við hann um heimildarmynd hans um Megas. Björn Þorláks slær á þráðinn til Michael Jóns Clark sem segir honum frá rasisma í Bretlandi, rót óeirðanna þar. Við spyrjum hvers vegna Elon Musk kallaði Kamölu Harris kommúnista. Þorvaldur Kristinsson segir okkur frá James Baldwin, baráttumanni, rithöfundi og homma. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og fjallar um ófriðarhorfur í heiminum.
    3 hr 24 min
  • Útvarp Palestína - 2. þáttur: Helga Ögmundardóttir
    Útvarp Palestína, 8. ágúst
    2. þáttur: Helga Ögmundardóttir
    Í ōðrum þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Helgu Ōgmundardóttur sem hefur verið öflug í frelsisbaráttu Palestínu allt frá blautu barnsbeini.
    Í þættinum ræða þær baráttuna að einhverju leyti út frá mannfræðilegu sjónarhorni en Helga er mannfræðingur og dósent við Háskóla Íslands.
    47 min
  • Rauða borðið 7. ágúst - Gos, Gaza, hrun, herleysi og ást
    Miðvikudagurinn 7. ágúst:
    Gos, Gaza, hrun, herleysi og ást
    Rauða borðið snýr aftur í kvöld, eftir stutt sumarfrí. Umsjónarmenn auk Gunnars Smára Egilssonar þau Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Þorláks og Oddný Eir Ævarsdóttir. Grindvíkingarnir Jóhanna Lilja Birgisdóttir sálfræðingur og Magnús Gunnarsson trillukarl segja frá bið heimafólks eftir næstu eldsumbrotum. Magga Stína segir fréttir frá Palestínu og Ásgeir Brynjar Torfason segir okkur frá áhrifum hruns á hlutabréfamörkuðum. Í lokin ræðum við um þrjár bíómyndir um ástina.
    4 hr 8 min
  • Útvarp Palestína - 1. þáttur - Sólveig Hauks og María Lilja
    Fimmtudagur, 25. júlí
    Útvarp Palestína - 1. þáttur
    Nýr þáttur í umsjón Söru Stef Hildar og Möggu Stínu. Í fyrsta þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara til sín aðgerðarsinnana, mótmælendurna og samstöðukonurnar Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp og Sólveigu Hauksdóttur sem báðar hafa bæði langa reynslu af andófi og mótlæti en líka bjartsýni og vonarglætum.
    57 min
  • Rauða borðið 22. júlí - Heimsendir og nýr heimur, börn og leikur
    Mánudagurinn 22. júlí
    Heimsendir og nýr heimur, börn og leikur
    Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir situr við Rauða borðið með Gunnar Smára Egilssyni og tekur á móti gestum: Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp blaðamaður koma og ræða um hvernig heimurinn leysist upp áður en nýr fæðist. Atli Harðarson prófessor segir okkur svo frá gildi leiksins, sem við erum kannski að taka frá börnunum.
    3 hr 17 min
  • Rauður raunveruleiki: Sósíalistar allra landa / Eleobore Mbra Kofi
    Kristinn Hannesson sótti nýlega mjög fjölmenna ungmennaráðstefnu í Rússlandi þar sem ungt fólk úr hinum svokallaða þriðja eða öðrum heimi var og þar á meðal mikið af sósíalistum.
    Kristinn myndaði tengingar við sósíalista víðsvegar að úr Afríku, Asíu og Mið- og Suður Ameríku og við höfum ákveðið að taka viðtöl við þetta unga fólk og heyra um baráttu þess, viðhorf og stöðu í heiminum.
    Fyrsti gesturinn okkar er hún Eleobore Mbra Kofi en hún sótti ráðstefnuna í Sochi. Hún er sósíalisti sem býr í Englandi en fæddist og ólst upp á Fílabeinsströndinni. Eleobore er í Kommúnistaflokki Bretlands og við spjölluðum við hana um misskiptingu í heiminum, heimsvaldastefnuna, hnattræna suðrið og norðrið og um nauðsyn sósíalismans til þess að takast á við stærstu vandamál samtímans.
    1 hr 7 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 29
    Föstudagurinn 19. júlí
    Vikuskammtur: Vika 29
    Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Jóhann Dagur Þorleifsson aka Jói Dagur rappari, Unnur Mjöll S. Leifsdóttir fjöllistakona, Birgir Þórarinsson aka Biggi veira tónlistarmaður og Anna Þóra Björnsdóttir kaupmaður og uppiistandari og ræða fréttir vikunnar við Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur.
    1 hr 14 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners