Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Endalok tímans, söngur frá Spáni og blessað Ríkisútvarpið
    Miðvikudagurinn 17. júlí: 
    Endalok tímans, söngur frá Spáni og blessað Ríkisútvarpið
    Guðmundur Brynjólfsson djákni, Árni Pétur Guðjónsson leikari, Margrét Kristín Blöndal tónlistarkona og Sara Stef. Hildar femínisti eru gestir Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur í léttu sumarspjalli um heimsendi. Þá koma feðginin Jón Sigurður Eyjólfsson og Alma Eyjólfsson Durand koma frá Spáni og syngja fyrir okkur. Í lokin ræðir Gunnar Smári Egilsson um Ríkisútvarpið. Fanney Birna Jónsdóttir dagskrárstjóri er gestur hans.
    3 hr 17 min
  • Rauður raunveruleiki - Heimsvaldastefnan, Trump og Suður Ameríka
    Eyjólfur B. Eyvindarson, einnig þekktur sem Sesar A er gestur okkar í kvöld. Við ræddum um heimsmálin, skotárásina á Trump, heimsvaldastefnuna, Suður Ameríku og nýlega valdaránstilraun í Bólivíu. Einnig ræðum við um aðdraganda Úkraínustríðsins og um 75 ára afmæli NATÓ hernaðarbandalagsins.
    Pakkaður þáttur um heimsmálin á Samstöðinni klukkan 11!
    53 min
  • Rauða borðið - Baðlón, carbfix, morðtilræði og staða bænda
    Mánudagurinn 15. júlí
    Baðlón, carbfix, morðtilræði og staða bænda
    Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræðingur, Pétur Jónasson gítarleikari og Sara Riel myndlistarkona koma í heimsókn til Gunnars Smára og Oddnýjar Eirar og ræða túrisma, loftlagsmál, morðtilræði og hvert hægt sé að bjarga heiminum í léttu spjalli dagsins um endalok tímans. Ágústa Ágústsdóttir ferðabóndi á Meiðavöllum við Ásbyrgi ræðir síðan stöðu bænda og landsbyggðarinnar og hvernig kerfin vinna gegn fólkinu.
    3 hr 43 min
  • Rauður raunveruleiki - Barnasáttmálinn, siðrof og barátta
    Í þættinum í kvöld koma til okkar þau Askur Hrafn Hannesson og Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir.
    Kristbjörg er meðlimur baráttusamtakana No Borders og hefur verið í fremstu víglínu við að reyna að stöðva brottvísun Yazan, Palestínska barnsins með hættulegan hrörnunarsjúkdóm.
    Askur er sömuleiðis virkur í baráttunni fyrir mannúð og réttlæti í málefnum fólks á flótta, Palestínu og mannréttindum. Í sumar er hann í iðnaðar- og bændastörfum.
    Anita Da Silva og Karl Héðinn ræða við þau Ask og Kristbjörgu um það siðrof sem mætir okkur og um baráttunni gegn því.
    1 hr 2 min
  • Vikuskammtur: Guðmundur Arngrímsson, Erna Bjarnadóttir, Guðný Bjarnadóttir og Ingólfur Gíslason
    Föstudagurinn 12. júlí
    Vikuskammtur: Vika 28
    Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna, Erna Bjarnadóttir varaþingmaður Miðflokksins, Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola og Ingólfur Gíslason aðjúnkt við menntavísindasvið og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af gömlum mönnum, óttanum við Kínamanninn, óánægju Evrópu með Ísland og aukinni fákeppni og einokun.
    1 hr 50 min
  • Rauða borðið: Létt spjall um heimsenda og íbúakosning um Carbfix
    Miðvikudagurinn 10. júlí: 
    Létt spjall um heimsenda og íbúakosning um Carbfix
    Það koma gestir að Rauða borðinu, Kristinn Sigmundsson söngvari, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Heiða Eiríksdóttir heimspekingur og eiga létt spjall um endalok heimsins við þau Gunnar Smára Egilsson og Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, sem er gestastjórnandi þáttarins í kvöld. Þau fá líka Hafnfirðinga í heimsókn til að ræða Carbfix og mögulega íbúakosningu um það verkefni: Davíð Arnar Stefánsson sérfræðingur á sviði sjálfbærrar landnýtingar hjá Land og skógi og oddviti Vg, Jón Ingi Hákonarson ráðgjafi í starfsendurhæfingu bæjarfulltrúi Viðreisnar og Hólmfríður Sigurðardóttir umhverfisgyðja hjá Orkuveitunni, sem hefur fylgst með þessu verkefni frá upphafi og verið virkur þátttakandi í því.
    3 hr 17 min
  • Rauða borðið: Starmer, Gaza, lýðræðið í hættu og túrisminn
    Mánudagurinn 8. júlí
    Starmer, Gaza, lýðræðið í hættu og túrisminn
    Guðmundur Auðunsson hagfræðingur segir okkur hverju búast má við af ríkisstjórn Starmer og hvaða andstöðu hann mun fá. Bjarni Jónsson þýðandi segir okkur frá dagbók Atef Abu Saif frá Gaza. Við ræðum háskann í pólitíkinni við Gérard Lemarquis og Dominique Plédel Jónsson, sem eru frá Frakklandi, Nichole Leigh Mosty, sem er frá Bandaríkjunum, og Victoria Snærósu Bakshina, sem er frá Rússlandi. Í lokin ræðir Björn Þorláks við Þórarinn Leifsson, sem lýsir ævintýrum leiðsögumanns á Íslandi.
    3 hr 46 min
  • Vikuskammtur: Birgir Örn Steinarsson, Birta Karen Tryggvadóttir, Hrönn Sveinsdóttir og Þorbjörg Þorvaldsdóttir
    Föstudagurinn 5. júlí
    Vikuskammtur: Vika 27
    Í Vikuskammti við Rauða borðið koma í dag þau: Birgir Örn Steinarsson sálfræðingur og tónlistarmaður, Birta Karen Tryggvadóttir hagfræðingur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Þorbjörg Þorvaldsdóttir verkefnastjóri Samtakanna '78 og bæjarfulltrúi í Garðabæ og ræða við Oddnýju Eir Ævarsdóttur um fréttir vikunnar sem einkenndust af pólitískum skjálfum vestan hafs og austan. Og líka hér heima.
    1 hr 29 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners