Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 27. júní - Vg, húsnæðismarkaðurinn, heimsmálin og Frakkland
    Fimmtudagurinn 27. júní
    Vg, húsnæðismarkaðurinn, heimsmálin og Frakkland
    Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg talar um stöðu flokksins, rætur hans og framtíð. Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata ræða um húsnæðismál og einkum leigumarkaðinn. Tjörvi Schiöth fjallar um Bólivíu, Ísrael og Bandaríkin og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og Mörður Árnason íslenskufræðingur fjalla um franska pólitík.
    3 hr 57 min
  • Rauða borðið 26. júní - Vopnvæðing samsæriskenninga, vandi Vg og skóla og pólitísk list
    Miðvikudagurinn 26. júní:
    Vopnvæðing samsæriskenninga, vandi Vg og skóla og pólitísk list
    Við ræðum við Eirík Bergmann um vopnvæðingu samsæriskenninga, nýja hægrið og könnun Maskínu sem mælir Sjálfstæðisflokkinn með 14,7% fylgi. Lilja Rafney Magnúsdóttir segir okkur hvers vegna grásleppa var kornið sem fyllti mælinn og fékk hana til að ganga úr Vg. Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla segir að lagaskyldu sé ekki sinnt þar sem nemendur í grunnskólum fái ekki þá menntun sem þeim ber samkvæmt lögum. Steinunn Gunnlaugsdóttir er með sýningu í Gluggagallerínu Stétt og kemur að ræða hana við Rauða borðið ásamt Jóni Proppé listfræðingi. Er listin að verða pólitískari?
    3 hr 4 min
  • Rauða borðið 25. júní - Pólitíkin, Ríkisútvarpið og konur í sögunni
    Þriðjudagurinn 25. júní
    Pólitíkin, Ríkisútvarpið og konur í sögunni
    Við byrjum á pólitísku uppgjöri. Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og Sjálfstæðisflokksmaður, Sigmundur Erni Rúnarsson blaðamaður, skáld og Samfylkingarmaður, Sunna Valgerðardóttir starfsmaður þingflokks Vg og Tómas Ellert Tómasson byggingarverkfræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins ræða pólitíkina, um hvað hún er og hvert hún stefnir. Lára Magnúsdóttir sagnfræðingur ræðir um Ríkisútvarpið og skort á stefnu þar innandyra. Og Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur segir okkur frá vinnukonunni Guðrúnu Ketilsdóttur, sem kölluð var Gunna suða, og stórbýlinu Möðruvöllum í Hörgárdal þar sem Ragnheiður Scheving stýrði búi.
    3 hr 32 min
  • Frelsið er yndisleg - #11 Fangelsaðir foreldrar og börnin þeirra
    Þriðjudagur 25. júní
    Frelsið er yndisleg - #11 Fangelsaðir foreldrar og börnin þeirra
    Í þessum seinasta þætti af Frelsið er yndislegt fyrir sumarfrí, er fjallað um fangelsaðra foreldra sem og um hlið barnanna. Gestir þáttarins eru þau Selma Dögg, sem nýlega vann að rannsókn um málefni fangelsaðra feðra, Eiríkur, fjölskyldufræðingur hjá Bjargráði og Birna, aðstandandi. Stjórnendur þáttarins eru: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
    Frelsið er yndislegt snýr svo aftur í haust.
    Hægt að ná sambandi við Afstöðu, allan sólarhringinn í síma 556-1900. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211.
    1 hr 5 min
  • Rauða borðið: Stríð breiðist út, þinglok og fatlað fólk í sögunni
    Mánudagurinn 24. júní
    Stríð breiðist út, þinglok og fatlað fólk í sögunni
    Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og Tjörvi Schiöth doktorsnemi ræða stríðið í Úkraínu og skuldbindingar Íslands gagnvart því. Eru stjórnvöld að grafa undan öryggi landsins með stefnu sinni? Í síðasta Þingi Rauða borðsins fyrir sumarfrí verður farið yfir umdeild þingmál sem fóru í gegn á lokametrum vorþingsins. Þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson, Inga Sæland og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi fara yfir stöðuna. Sólveig Ólafsdóttir doktor í sagnfræði segir okkur frá ritgerð sinni: Eitt hundrað og eina sögu af jaðri samfélagsins, sem fjallar um fatlað fólk í sögunni.
    3 hr 59 min
  • Synir Egils: Þinglok, goslok og endalok sumra flokka
    Sunnudagurinn 23 . júní:
    Synir Egils: Þinglok, goslok og endalok sumra flokka
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Benedikt Erlingsson leikstjóri, Brynjar Níelsson lögmaður og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða stöðu ríkisstjórnar og stjórnmálaflokka í þinglok, afgreid og óafgreidd mál á Alþingi, togstreitu í samfélaginu og átök. Þeir bræður munu síðan taka púlsinn á pólitíkinni.
    2 hr
  • Rauða borðið - Helgispjall: Guðrún Hallgríms
    Laugardagurinn 22. júní
    Helgi-spjall: Guðrún Hallgríms
    Gestur okkar í Helgi-spjalli er Guðrún Hallgrímsdóttir verkfræðingur sem segir okkur frá Rauðsokkum, þörungum, Austur-Þýskalandi, sínu fólki , uppvexti og mótun, hugsjónum og harmi.
    2 hr 24 min
  • Heimsmyndir - Óli Stef
    Föstudagur 21. júní
    Heimsmyndir - Óli Stef
    Handboltahetjan Óli Stef kom í þáttinn að ræða heimspeki hugvíkkandi efna. Er tilveran ein vitund að máta við sig upplifanir? Eða eru hugvíkkandi efni bara grautur af bulli sem endurspeglar helst skapgerð þess sem þau tekur?
    1 hr 3 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners