Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Aukaþáttur um mitt sumar um öryggismál
    Föstudagurinn 5. júlí
    Aukaþáttur um mitt sumar um öryggismál
    Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um hættusvæði innan Evrópu, möguleika á átökum, ólíka öryggishagsmuni Íslands og Bandaríkjanna, þróun úkraínustríðsins, vaxandi spennu á Norðurslóðum og önnur mál sem varða öryggi Íslands.
    2 hr 9 min
  • Rauða borðið - Sumarþáttur um heimsenda: Haukur Már Helgason, Þuríður Jónsdóttir, Pétur Gunnarsson, Guðmundur Auðunsson, Einar Már Jónsson og Ragnheiður Gyðu Jónsdóttir
    Miðvikudagurinn 3. júlí: 
    Sumarþáttur um heimsenda
    Oddný Eir Ævarsdóttir er gestastjórnandi að þessu sinni ásamt Gunnar Smára Egilssyni. Þau fá heimsókn: Haukur Már Helgason rithöfundur, Þuríður Jónsdóttir tónskáld og Pétur Gunnarsson rithöfundur koma og ræða heim á heljarþröm, stríð, niðurbrot lýðræðis og hvernig heimsendir kann að líta út. Síðan heyrum við um kosningar: Guðmundur Auðunsson hagfræðingur segir okkur frá kosningum í Bretlandi á morgun og Einar Már Jónsson sagnfræðingur frá kosningum í Frakklandi um helgina. Í lokin ræðir Gunnar Smári við Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur um Ríkisútvarpið.
    3 hr 57 min
  • Rauður raunveruleiki - Radio Radicale / Róttæk fjölmiðlun á Ítalíu
    Radio Radicale er róttækur ítalskur fjölmiðill sem hefur starfað óslitið frá 1976. Við vorum svo lánsöm að ná tali af Stefano Chiarelli en hann hefur unnið hjá Radio Radicale í marga áratugi! Stefano mun tala ítölsku í viðtalinu en unnusta hans, Estrid Þorvaldsdóttir, mun þýða fyrir okkur.
    Við fjöllum um fjölmiðilinn, uppgang Meloni og hægrisins í Frakklandi, um samfélagsmál á Ítalíu og nauðsyn þess að alþýða fólks hafi aðgang að réttum og áreiðanlegum upplýsingum í átakasömum, og stéttskiptum, heimi.
    59 min
  • Sumarþáttur Rauða borðsins
    Mánudagurinn 1. júlí
    Sumarþáttur Rauða borðsins
    Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er gestastjórnandi Rauða borðsins í kvöld ásamt Gunnari Smára Egilssyni. Þau spjalla um heima og geima og fá til sín gesti, Marion Herrera heimspeking, þyrluflugmann og hörpuleikara og Einar Þór Jónsson þroskaþjálfara og aktivista. Í lokin ræðir Gunnar Smári við Ævar Kjartansson útvarpsmann um Ríkisútvarpið.
    3 hr 39 min
  • Synir Egils: Pólitískar sveiflur vestan hafs og austan og hér líka
    Synir Egils: Pólitískar sveiflur vestan hafs og austan og hér líka
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og Ögmundur Jónasson fyrrum þingmaður og ráðherra og ræða pólitík og samfélag, aldna forsetaframbjóðendur, lausn Julian Assange, veika stöðu Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og togstreitu í samfélaginu og átök. Þeir bræður munu síðan taka púlsinn á pólitíkinni.
    2 hr 2 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Sóley Tómasar
    Laugardagurinn 29. júní
    Helgi-spjall: Sóley Tómasar
    Sóley Tómasdóttir kemur í helgi-spjall og segir okkur frá óþekktinni og femínismanum sem hún fékk í vöggugjöf, átökum við samherja og íhaldssemi, sigrunum sem konur hafa unnið og ósigrunum sem hún upplifði innan Vg.
    2 hr 16 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26
    Föstudagurinn 28. júní
    Vikuskammtur: Vika 26
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistakona og söngkona, Þórunn Wolfram doktor í umhverfisfræðum og varaþingmaður Viðreisnar, Svala Magnea Ásdísardóttir blaðakona og formaður Málfrelsis og Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af elliglöpum, fylgishruni og kosningaskjálfta innan stjórnmála, frelsun manns úr fangelsi, fótbolta og okri.
    2 hr 6 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners