Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25
    Föstudagurinn 21. júní
    Vikuskammtur: Vika 25
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Björgvin Þór Þórhallsson kennari, Jovana Pavlović mannfræðingur, Viktor Pétur Finnsson formaður SUS og Zúzanna Korpak nemi í hagnýtri siðfræði og þjálfari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af þinglokum, hraunrennsli, þjóðhátíð og pólitískum átökum.
    1 hr 48 min
  • Rauða borðið - Bretland, mannúð, sagnaskemmtun og Gaza
    Fimmtudagurinn 20. júní
    Bretland, mannúð, sagnaskemmtun og Gaza
    Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR og Sveinn Máni Jóhannesson nýdoktor er hjón og áhugafólk um pólitík, ekki síst bresk stjórnmál. Þau ræða við okkur um komandi kosningar. Sigrún Steinarsdóttir sálfræðingur hlaut nýverið fálkaorðuna fyrir framlag til mannúðarmála. Hún berst gegn fátækt sem hún segir vaxandi vanda. Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur safnaði textum almennings í bók sem hún kallar Bragðaref, syrpu af kræsingum til að hafa sem húslestur. Í lok þáttar kemur Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði og ræðir ástandið í Palestínu og Ísrael.
    3 hr 39 min
  • Rauða borðið 19. júní - Stjórnarandstaðan, Argentínuforseti og fæðingarorlof
    Miðvikudagurinn 19. júní:
    Stjórnarandstaðan, Argentínuforseti og fæðingarorlof
    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir ræðir ítarlega hlutskipti stjórnarandstöðunnar á tímum óvissu og sundrungar. Hólmfríður Garðarsdóttir prófessor segir okkur frá Javier Milei forseta Argentínu, stefnu hans og andstöðunni við hana. Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skólastjóri leikskólans á Holti ræðir við okkur um fæðingarorlof, umönnunargatið og stöðu barnafjölskyldna.
    2 hr 24 min
  • Rauða borðið - Biðlistar, Úkraína, Frakkland og blessuð sagan
    Þriðjudagurinn 18. júní
    Biðlistar, Úkraína, Frakkland og blessuð sagan
    Hólmsteinn Bjarni Birgisson húsamálari segir okkur frá reynslu sinni af biðlistum eftir sérfræðilæknum. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði segir okkur frá varnarsamningi Íslands og Úkraínu, stöðunni á vígvellinum og friðarsamningum. Torfi H. Tulinius prófessor ræðir um pólitíska upplausn í Frakklandi. Sigurður Gylfi Magnusson prófessor segir okkur frá hinni stórkostlegu ritröð: Sýnishorn íslenskrar alþýðumenningar, þar sem lesa má um persónur sögunnar sem ekki sjást í öðrum sögum.
    3 hr 43 min
  • Heimsmyndir - Heiða Eiríks
    Föstudagur 14. júní
    Heimsmyndir - Heiða Eiríks
    Heiða Eiríksdóttir (Heiða í Unun) kom í þáttinn að ræða fyrirbærafræði. Um hvað er þessi dulúðlega grein heimspekinnar? Heiða er í doktorsnámi í heimspeki og er hafsjór af fróðleik um þetta áhugaverða svið greinarinnar.
    53 min
  • Vikuskammtur: Bragi Páll Sigurðarson, Elín Agla Briem, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Róbert Marshall
    Föstudagurinn 14. júní
    Vikuskammtur: Vika 24
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur, Elín Agla Briem þjóðmenningarbóndi, Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi og Róbert Marshall fjallamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af pólitískum hrossakaupum, mótmælum og klassískum deilumálum, stríði, leit að vopnahléi og sveiflu til hægri.
    2 hr 6 min
  • Rauða borðið - Efnahagur, leigjendur, sjókvíar og Frakkland
    Fimmtudagurinn 13. júní
    Efnahagur, leigjendur, sjókvíar og Frakkland
    Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar kemur til okkar og ræðir stöðu efnahagsmála. Drengur Óli Þorsteinsson, verkefnisstjóri hjá HMS, ræðir vanda leigjenda, enda ástandið ekki gott. Magnús Guðmundsson tölvunarfræðingur ræðir um sjókvíaeldi í Seyðisfirði, sem, íbúarnir vilja ekki sjá. Og Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor ræðir um pólitíska stöðu í Frakklandi, sem er viðsjárverð.
    3 hr 24 min
  • Heima er bezt - Jóhann Jakobsson
    Miðvikudagur 12. júní
    Heima er bezt - Jóhann Jakobsson
    Jóhann Jakobsson æfði fótbolta bæði með George Best og Sir Bobby Charlton. Eins undir stjórn Hemma Gunn. Sögur af fótbolta og sögur frá Akureyri.
    40 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners