Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið: Dagskrárvald, Gaza, tónlistaruppeldi, andófs-usli
    Rauða borðið: Dagskrárvald, Gaza, tónlistaruppeldi, andófs-usli.
    Rauða borðið heldur áfram að taka stöðuna og setja málefni á dagskrá kosninganna. Er allt mögulegt? Oddný Eir stýrir samræðu kvöldsins í beinni útsendingu sem hefst klukkan átta og er í tveimur liðum: Fyrst mæta til leiks þau Jón Ólafsson, heimspekingur og prófessor, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Auðunn Arnórsson, og Sigurjón Magnús Egilsson. Síðan mæta þau Kristín Ómarsdóttir, Árni Finnsson, Ásgeir Brynjar Torfason og Atli Ingólfsson. Björn Þorláksson ræðir svo við þau Herdísi Önnu Jónsdóttur og Þóri Jóhannsson um tónlistarlegt uppeldi í hinu bjarta norðri. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp segir okkur nýjustu hörmungarfréttir í Radíó Gaza og Oddný Eir ræðir svo við Gunnar Þorra Pétursson um andófs-uslann í Meistaranum og Margarítu eftir Bulgakov.
    4 hr 18 min
  • Grimmi og Snar - #26 Frábærir kennarar 🥸🤓
    Fimmtudagur 17. október
    Grimmi og Snar - #26 Frábærir kennarar 🥸🤓
    Curver Thoroddsens 🧔🏻renndi sér niður slóð minninganna með Grimma og Snar. Draumavélin 😶‍🌫️ DMT augnanudd 👀 og rappið á átjándu öld 🧞‍♀️
    1 hr 21 min
  • Rauða borðið 16. okt - Stjórnmál, samfélagið, klassísk tónlist og landflótti Íslendinga
    Miðvikudagurinn 16. október 2024
    Stjórnmál, samfélagið, klassísk tónlist og landflótti Íslendinga.
    Við hefjum leik á pólitíkinni og stöðunni sem upp er komin. Við munum kjósa í svartasta skammdeginu eftir nokkrar vikur. Stór hópur fólks hittist í beinni útsendingu og ræðir hvað ber að varast, auk þess sem óskalista kosningamála ber á góma. Þau Jódís Skúladóttir, þingmaður VG, Þórhildur Sunna, þingmaður pírata, Auður Önnu Magnúsdóttir hjá Kvenréttindafélaginu, Henry Alexander siðfræðingur, Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur, Sara Óskarsdóttir móðir og listamaður og Ólafur Arnarsson blaðamaður ræða við Björn Þorláks.
    Að lokinni pólitíkinni kemur Michael Clarke, tónlistarmaður á Akureyri, og ræðir norðlenska tónlistarsögu og stofnun Hljómsveitar Akureyrar.
    Rúsínan í pylsuendanum er Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og leikhúsmanneskja. Hún ræðir alöru þess að hrekjast úr landi, en hnyttnin er aldrei fjarri þegar Hlín er annars vegar.
    3 hr 16 min
  • Rauða borðið: Dauð ríkisstjórn, kosningar, karlar og Bréf til Láru
    Þriðjudagurinn 15. október
    Dauð ríkisstjórn, kosningar, karlar og Bréf til Láru
    Við höldum áfram að greina stöðuna í pólitíkinni, dauða stjórnar og komandi kosninganna. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur, Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingkona, Ragnar Þór Pétursson kennari og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi ræða málin og síðan rithöfundarnir Guðmundur Andri Thorsson, Halldór Armand Ásgeirsson og Auður Jónsdóttir. Fjórði þáttur karlaspjallsins hefst svo: Valdimar Örn Flygenring leikari og leiðsögumaður, Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur og Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi ræða við Bjarna Karlsson prest og siðfræðing um staka karlinn. Í lokin fögnum við 100 ára afmæli Bréfs til Láru með Pétri Gunnarssyni rithöfundi og Soffíu Auði Birgisdóttur bókmenntafræðingi.
    3 hr 54 min
  • Rauða borðið: Ástandið í stjórnmálunum, rímnaskáld og ferðakapítalismi
    Mánudagurinn 14. október
    Ástandið í stjórnmálunum, rímnaskáld og ferðakapítalismi
    Við höldum áfram að greina ástandið í pólitíkinni með gestum: Vilhjálmur Árnason þingmaður, Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Halldóra Mogensen þingkona, Drífa Snædal talskona Stígamóta, Gísli Tryggvason lögmaður og Björn Jón Bragason sagnfræðingur meta stöðuna. Mun allt fara samkvæmt vilja Bjarna Benediktssonar? Á næstu dögum kemur út bók um skáldverk Sigurðar Breiðfjörðs og hvernig Jónas Hallgrímsson hjólaði í rímur skáldsins og bar hvorugur barr sitt á eftir að mati höfundar. Óttar Guðmundsson geðlæknir ritar bókina og ræðir verk sitt. Hjörleifur Finnsson, heimspekingur og fyrrverandi frumkvöðull í ferðaiðnaði fer í gegnum óheillaþróun ferðamála á Íslandi og sýnir hvernig ferðamálin eru í heljargreipum stórkapítalismans.
    3 hr 29 min
  • Rauða borðið - AUKAÞÁTTUR - Bjarni sprengir ríkisstjórn sína
    Sunnudagurinn 13. október:
    Aukaþáttur Rauða borðsins: Bjarni sprengir ríkisstjórn sína
    Við fáum gesti og gangandi til að meta stöðuna eftir að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sprengdi ríkisstjórn sína. Líklega verður kosið 30. nóvember, eftir 48 daga. Um hvað verður kosið? Lifa allir flokkar kosningarnar af? Áhugafólk um pólitík sest að borðinu: Karen Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi, Brynjar Níelsson lögfræðingur, Hallur Magnússon verktaki, Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna, Tómas Ellert Tómasson fyrrum bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg, Þórður Snær Júlíusson fyrrum ritstjóri, Atli Þór Fanndal fyrrum blaðamaður, Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vg, Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar, Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur, Davíð Þór Jónsson prestur og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi.
    2 hr 44 min
  • Synir Egils: Stjórnarkreppa, kosningar, Samfylkingin
    Sunnudagurinn 13. október: 
    Synir Egils: Stjórnarkreppa, kosningar, Samfylkingin
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan rannsóknarritstjóri Heimildarinnar, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi og Heimir Már Pétursson fréttamaður og fara yfir stöðuna í pólitíkinni. Vill einhver vera í þessari ríkisstjórn? Verður kosið fyrir jól? Þeir bræður fara líka yfir pólitíkina og það gerir líka Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar. Vill hún breyta stjórnarstefnunni og hvernig þá?
    2 hr 35 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners