Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 27. nóv - Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza
    Miðvikudagur 27. Nóvember.
    Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza
    Í beinni bjóðum við til borðs þeim Margréti Pétursdóttur, verkakonu, Höllu Gunnarsdóttur, varaformanni VR, Sverri Björnssyni, hönnuði og eftirlaunamanni ásamt Páli Val Björnssyni fyrrverandi alþingismanni. Þau ræða pólitík dagsins við Sigurjón M. Egilsson: Kosningarnar, hverjir sigra og hverjur tapa. Gestir með reynslu og þekkingu. Fólkið á skrifstofu sósíalista svarar spurningu dagsins. Þá ræðast við bræðurnir Egilssynir en í þetta sinn fær Gunnar Smári að sitja fyrir svörum um framboðið. Af efnahagspólitíkinni segir Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur og ritstjóri okkur frá sárlegri vöntun á því sem hann kallar einfaldlega alvöru umræðu um hagstjórn og stefnumörkun fyrir kosningar. Hann útskýrir fyrir okkur strauma og stefnur og tengsl við djúpríki, Trump, Hrunið og framtíðina. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur í mengunarmálum hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um vágest á höfuðborgarsvæðinu, loftmengun; útblástur og gosmóðu. Er þetta hættulegt heilsu og hvað er til ráða? Svo heimsækir Jón Kristjánsson fiskifræðingur Rauða borðið en Jón segir skaðlegt fyrir lífríki laxa og nytjar af þeim þegar veiðimenn í ám hérlendis sleppa þeim aftur í árnar. Við kíkjum svo að lokum til Gaza með fulltrúm no borders og solaris. Ræðum brott- og frávísanir af landamærum Íslands og fleira tengt.
    5 hr 14 min
  • Rauða borðið 26. nóv - Kosningar, ungir norðlenskir sósíalistar, Sanna, Díegó, Kúba og Perú
    Þriðjudagur 26. nóvember
    Kosningar, ungir norðlenskir sósíalistar, Sanna, Díegó, Kúba og Perú
    Við byrjum á beinni útsendingu, þau Birgitta Jónsdóttir, Marínó G. Njálsson, Kristín Erna Arnardóttir og Einar Már Guðmundsson hefja leik og ræða stjórnmálin og samfélagið með Birni Þorláks. Þá heyrum við í pólitískum ungliðum fyrir norðan. Rætt verður við Ara Orrason sem skiptar 2. sætið í Norðausturkjördæmi hjá sósíalistum og Elvar Fossdal í 15. sæti listans. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa sem samkvæmt könnunum gæti orðið þingmaður sósíalista. Kötturinn Diegó verður til umræðu, en fulltrúi Dýrfinnu kemur og segir frá björgun hans. Elba Núnez Altuna kemur ræðir pólitíkina í Perú. Og við endum dagskrána á vináttufélags Íslands og Kúbu, en Eyjólfur Eyvindsson og Niuvis Sago SuZeta fóru nýlega utan á vegum félagsins. Þau ræða hindranir Kúbana, kúgun vestursins og mikilvægi þess að eiga sér samfélag.
    4 hr 35 min
  • Rauða borðið 25.nóv - Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus
    Mánudagurinn 25. nóvember
    Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus
    Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Kristjana Guðbrandsdóttir fjölmiðlakona og Borgar Magnússon tónskáld fara yfir stöðuna í pólitíkinni, nú þegar kosningabaráttan er komin á yfirsnúning. Fjórir nemendur úr MR sem eru að fara að kjósa í fyrsta sinn, þau Uni Níls Gunnlaugsson, Freyja Rúnarsdóttir, Björn Diljan Hálfdánarson og Herdís Sigurðardóttir Busson, ræða um misheppnaðar tilraunir stjórnmálaflokkanna til að ná til unga fólksins. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og Árni Finnsson formaður stjórnar Náttúruverndarsamtaka Íslands segja okkur fréttir frá nýjustu alþjóðaráðstefnum á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þorsteinn Bergsson oddviti Sósíalista í Norðaustri segir frá sér og sósíalismanum. Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir og Ida Karólína Harris eru ungir umhverfissinnar sem hyggjast beita verkfallsaðgerðum og ganga úr tíma á föstudaginn til að mótmæla laxeldi í sjó. Birta Benónýsdóttir sirkuskona segir okkur frá sirkuslífinu.
    4 hr 38 min
  • Synir Egils: Pólitík, kosningar, sviptingar og umturnun
    Sunnudagurinn 24. nóvember: 
    Synir Egils: Pólitík, kosningar, sviptingar og umturnun
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður fara líka yfir stjórnmálin og fá síðan Boga Ágústsson fréttamann og Ólaf Þ. Harðarson prófessor til að fara yfir liðnar og komandi kosningar.
    2 hr 36 min
  • Rauða borðið - AUKAÞÁTTUR - Oddvitar Sósíalista
    Laugardagurinn 23. nóvember
    Aukaþáttur: Oddvitar Sósíalista
    Oddvitar Sósíalistaflokksins ræða kosningabaráttuna og þau má sem brenna á almenningi. Þorsteinn Bergsson oddviti í Norðausturkjördæmi, Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti í Reykjavík suður, Guðmundur Hrafn Arngrímsson oddviti í Norðvesturkjördæmi, Davíð Þór Jónsson oddviti í Suðvestri, Unnur Rán Reynisdóttir oddviti í Suðurkjördæmi og Gunnar Smári Egilsson oddviti í Reykjavík norður ræða kosningamálin og erindi Sósíalista.
    1 hr 5 min
  • Grimmi og Snar - #29 Blár og rauður eru fjólublár samkvæmt Panton ♥️💙=💜
    Föstudagur 22. nóvember
    Grimmi og Snar - #29 Blár og rauður eru fjólublár samkvæmt Panton ♥️💙=💜
    Hvort er betra: Heit sár reiði sem getur gosið? Hana finnur þú i kalda pottinum 🥵 henni er alltaf heitt. Eða bæld og frosin reiði, finnur hana í saunu, henni er alltaf kalt, enda þolir engan kulda 🥶 Er kannski bæði gott í hófi? Hefur Gunnar Smári svar við þessum spurningum?
    Grimmi og Snar vita hvorki upp né niður, enda bandbrjálaðir báðir tveir 😱🤩😎 varist að hlusta á þá tvo.
    1 hr 20 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 47
    Föstudagur 22. nóvember
    Vikuskammtur: Vika 47
    Kosningabaráttan, lög sem brjóta stjórnarskrá, framferði formanns Miðflokksins fyrir norðan og margt fleira skemmtilegt og óskemmtilegt verður til umræðu í Vikuskammti. Fréttir vikunnar og tíðandi líðandi stundar verður krufinn. Til þess mæta í beina útsendingu til Björns Þ:orlákssonar þau Kári Jónsson, Hjörtur Hjartarson, Magnea Marínós og Atli Fanndal.
    1 hr 20 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners