Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauður raunveruleiki - Byltingarkenndir tímar / Þorleifur Friðriksson
    Við ræðum við Þorleif Friðriksson sagnfræðing um mikla umbreytingartíma, frá nýlendustefnunni og fram undan iðnbyltingunni.
    Tímabilið skilgreindist af miklum breytingum og átökum á milli nýrra og breyttra stétta. Aðallinn gaf eftir borgarastéttinni og fólk þyrptist úr sveitinni í borgina. Upp úr þessu hefst verkalýðsbaráttan eins og við könnumst við hana í dag.
    Þorleifur er höfundur tveggja bóka um sögu Dagsbrúnar, sem nú heitir Efling, og vinnur að þriðja og síðasta bindi þessa verks.
    Kynnum okkur sögu nútímans með Þorleifi, á Samstöðinni kl. 17:00.
    1 hr 17 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 51
    Föstudagur 20. desember
    Vikuskammtur: Vika 51
    Gestir borðins að þessu sinni eru úr öllum áttum og hyggjast fara um víðan völl um liðna viðburðaríka fréttaviku. Á boðstólnum eru skipulag í Breiðholti, vinnumansal, ný ríkisstjórn, hvalveiðar, rafbyssur, fyrirtækjaleiksskólar, stúdentar og Iceguys. Þetta eru þau Saga Kjartansdóttir así, Lísa Margrét Gunnarsdóttir, formaður lís Jón D Ásgeirsson, arkitekt og Stefán Víðisson.
    49 min
  • Rauða borðið 19. des - Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð
    Fimmtudagur 19. des
    Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð til stjórnvalda
    Við Rauða borðið í kvöld er umræðan lífleg og nær yfir mörg svið. Fyrstur mætir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara og ræðir um fyrirtækjavæðingu leikskólans. Valur Ingimundarson prófessor fjallar um minni áhuga stjórnvalda á norðurslóðum og breytt mat á öryggismálum og því næst ræðir Hilmar Örn Hilmarsson, Allsherjargoði um trú og tóna tilverunnar, dauðann, lífið og galdurinn í tilefni sólstöðuhátíðarinnar framundan. Sex höfundar bregða upp balli, þau Linda Vilhjálmsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Daníel Daníelsson, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Sunneva Kristín Sigurðardóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir koma að rauða borðinu á mörkum flóðs og fjöru og segja okkur frá útgáfureynslu sinni og lesa brot úr nýútkomnum bókum sínum. Nýteiknaður hvalur er leynisgestur á ballinu. Í lok þáttar safnast aktívistarnir Sigtryggur Ari Jóhannsson, Pétur Eggerz, Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, Unnur Andrea Einarsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir saman við rauða borðið og föndra jólakort með skýrum skilaboðum til raðamanna. Föndrað með föndra jólakort með skýrum skilaboðum til ráðamanna.
    4 hr 30 min
  • Rauða borðið 18. desember:  Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun
    Miðvikudagur 18. desember 
    Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun
    Myndlistamaðurinn og Öryrkinn Georg Jónasson ræðir við Maríu Lilju um fátækt frá fyrstu hendi, myndlistina og allt þar á milli. Þá mæta til leiks Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, forstýra Kvennaathvarfsins og ræða um ofbeldi í nánum samböndum. Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir halda áfram með ítarlegt bókaspjall. Fyrstur að borði er Bragi Ólafsson með nýja bók Innanríkið Alexíus. Þar strax í kjölfarið verður staða ljóðsins krufin mtt. Tveggja nýútkominna verka skáldkvennanna Guðrúnar Hannesdóttur, Sigurbjargar Þrastardóttur. 
    Sigurjón M. fær til sín álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um framhaldið í samfélaginu þetta eru þau Valur Grettisson, Bryndís Haraldsdóttir og Auður Alfa Ólafsdóttir. 
    Í lokin kemur Svala Jóhannesardóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, og ræðir um velsæld áfengis- og vímuefnasjúklinga.
    5 hr 15 min
  • Rauða borðið 17. des - Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókaspjall
    Þriðjudagur 17. desember
    Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókarspjall
    Ragnar Hjálmarsson, doktor í stjórnarháttum, ræðir um fall stjórnarinnar og nýtt pólitískt landslag í Þýskalandi. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna bíður spenntur eftir því hvort ný ríkisstjórn bæti hag neytenda. Þórdís Ingadóttir prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík ræðir hvernig alþjóðaréttarkerfið er að styrkjast á sama tíma og vettvangur alþjóðastjórnmála veikist. Vigfús Bjarni Albertsson fyrrum sjúkrahússprestur ræðir um lífið, dauðann og lífsglímuna. Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður aðstoðaði móður sína Ágústu Oddsdóttur við bók hennar um listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur og Oddný Eir Ævarsdóttir rtihöfundur skrifaði og ritstýrði bók um ævistarf móður sinnar, Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þau koma öll að Rauða borðinu og ræða bækurnar, listina, tengsl barna við mæður sínar (og öfugt) og hvernig það er að vinna með fjölskyldunni sinni. Í lokin koma rithöfundarnir Valur Gunnarsson og Gunnar Theodór Eggertsson og ræða bækur og samfélag.
    4 hr 30 min
  • Rauða borðið 16. des - Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga
    Mánudagur 16. desember
    Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga
    Við hefjum leik á viðtali við Katrínu Oddsdóttur mannréttindalögmann sem berst gegn laxeldi á Seyðisfirði – að því er virðist í andstöðu við íslenskar ríkisstofnanir.
    Hjónin Ólöf Þorvaldsdóttir og Logi Kristjánsson hafa skrifað bókina Fjall í fangið, sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað en líka um samfélagið sem flóðin féllu á, sérstakt samfélag sem var mótað af völdum og áhrifum sósíalista.
    Jón Þór Þorvaldsson, formaður félags atvinnuflugmanna, ræðir tilraunir flugfélaga til niðurbrots á verkalýðsfélögum og félagsleg undirboð og áhrif þess á kjör flugstétta og samfélagið allt. Við ræðum ástandið á Gaza viðMagneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margrétu Guðmundsdóttur, mannfræðing. Þær eru báðar sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda. Að lokum koma ljóðskáldin Anton Helgi Jónsson, Halla Þórðardóttir og Þórunn Valdimarsdóttir og ræða um ljóðlistina, ljóðadjammið og leyfa okkur heyra lljóð úr nýútkomnum bókum sínum.
    3 hr 58 min
  • Rauður raunveruleiki - „Woke“ Al-Kaída, áróður, heimsvaldastefna, þjóðarmorð.
    Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu.
    Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp með það?
    Af hverju er CNN og aðrir stórir bandarískir fjölmiðlar að hvítþvo fyrrverandi foringja ISIS og Al-Kaída?
    52 min
  • Synir Egils 15. des - Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar
    Sunnudagurinn 15. desember:
    Synir Egils: Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi, Oddný Harðardóttir fyrrverandi þingkona og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða stjórnarmyndun, verkefni nýrrar ríkisstjórnar og fréttir vikunnar. Þeir bræður taka stöðunni á pólitíkinni og reyna síðan að átta sig á stöðu Pírata með fólki úr þeirri hreyfingu: Birgitta Jónsdóttir stofnandi Pírata, Lenya Rún Taha Karim formaður Ungra Pírata, Þórólfur Júlían Dagsson sjómaður og Alexandra Briem borgarfulltrúi fara yfir sögu, erindi og framtíð Pírata.
    2 hr 13 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners