Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Synir Egils 2. feb - Nató-krísan, verkföll, sparnaður, styrkir og VR
    Sunnudagurinn 2. febrúar
    Synir Egils: Nató-krísan, verkföll, sparnaður, styrkir og VR
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu, Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar og Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði og ræða frérttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður taka líka púlsinn á pólitíkinni og fá svo frambjóðendur til formanns VR til að ræða félagið, verkalýðsbaráttuna og stöðu launafólks: Bjarni Þór Sigurðsson stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson viðskiptafræðingur, Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Þorsteinn Skúli Sveinsson sérfræðingur hjá Byko setjast að Rauða borðinu.
    2 hr 41 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 5
    Föstudagurinn 31. janúar
    Vikuskammtur: Vika 5
    Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Árni Kristjánsson aðgerðastjóri, Birgitta Björg Guðmarsdóttir rithöfundur, Gagga Jónsdóttir leikstjóri og Pétur Ben gítarleikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Trump og viðbrögðum fólks við orðum hans og hugmyndum, kjaradeilu kennara, sparnaðartillögum og öðru smálegu.
    1 hr 38 min
  • Rauða borðið 30. janúar 2025:  Nató í krísu, trans og Trumpismi, heilbrigðisþjónusta, bókaspjall og karlmennska.
    Rauða borðið 30. janúar 2025 
    Nató í krísu, trans og Trumpismi, heilbrigðisþjónusta, bókaspjall og karlmennska.
    Kristinn Hrafnsson blaðamaður ræðir þá kreppu sem Nató hefur ratað í, hvort Trump hafi breytt eðli Nató eða dregið fram raunverulegt eðli þess.
    Arna Magnea Danks, leikkona, kennari, áhættuleikstjóri og mannréttindaaktívisti ræðir um mikilvægi umræðu og aðgerða gagnvart herferð Trumps gegn minnihlutahópum. Pálmi V. Jónsson, öldrunarlæknir segir að við þurfum að umbreyta heilbrigðiskerfinu til að geta þjónustað fólk eftir því sem eldist, bæði til að fjölga árum við góða heilsu en líka að nýta fé betur.
    Hólmfríður Matthíasdóttir (Úa), útgefandi og bókaunnandi kemur í bókaspjall Vigdísar Grímsdóttur og Oddnýjar Eirar og ræðir um bókmenntaverðlaunin og nýbakaðan verðlaunahafa Kristínu Ómarsdóttur.
    Pétur Eggerz, tæknifræðingur, aktívisti og áhrifavaldur tekst á við hin pól umræðunnar og ræðir karlmennsku hjá Maríu Lilju ásamt Jóni Þormari Pálssyni sem er einnig þekktur sem brotkastmaðurinn Nordic Masculinity. Er hægt að finna sameiginlegan snertiflöt og uppræta rót vandans? Er kynjabaráttan kannski í grunninn bara stéttabarátta?
    4 hr 51 min
  • Rauða borðið 29. jan - Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar
    Miðvikudagur 29. janúar
    Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar
    Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku bregðast við sparnaðartillögum Viðskiptaráðs og ræða hvatningu ríkisstjórnarinnar um hagræðingu. Benjamín Julian verkastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins fer yfir verð á matvörumarkaði og spáir í hvort samruni Prís og Nettó muni auka samkeppni. Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna og stuðningsmaður íbúalýðræðis í Seyðisfirði og Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður ræða hvort spilling komi við sögu hjá þeim sem helst vilja sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina ræðir um sálfræðilegar rætur rasisma. Reynsluboltarnir miðla af visku sinni í spjalli um allt mögulegt, menningu, þjóðmál, stjórnmál og hvað eina, í þetta sinn koma þær Elín Albertsdóttir, Soffía Karlsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Smáradóttir koma í Klassíkin rokkar og taka á móti Þórði Magnússyni tónskáldi og Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara í tilefni af nýjum fiðlukonsert Þórðar sem verður flumfluttur í Hörpu á morgun.
    4 hr 16 min
  • Sósíalísk stjórnarandstaða - 2. Þáttur - Málefni leigjenda
    Miðvikudagur 29. janúar
    Sósíalísk stjórnarandstaða - 2. Þáttur
    Leigjendasamtökin hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau fagna því að loksins eigi að taka á skammtímaleigu — máli sem samtökin hafa barist fyrir í áraraðir og komst að miklu leiti fyrir tilstilli samtakanna á dagskrá í síðastliðnum alþingiskosningum. En betur má ef duga skal?
    Við rýnum í málefni leigjenda með þeim Yngva Ómari Sigrúnarsyni varaformanni Leigjendasamtakanna og Jóni Ferdinand Estherarsyni stjórnarmanni í Leigjendasamtökunum.
    1 hr 2 min
  • Rauða borðið 28. jan - Ríkið, kosningar í Þýskalandi, Dylan, Harpa og veiðar á fyrri tímum
    Þriðjudagur 28. janúar
    Ríkið, kosningar í Þýskalandi, Dylan, Harpa og veiðar á fyrri tímum
    Við ræðum sparnað hjá ríkinu og hlutverk ríkisrekstrar á næstu dögum. Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda ríða á vaðið. Ragnar Hjálmarsson stjórnmálafræðingur ræðir áhrif af uppgangi fasismans á kosningar í Þýskalandi. Michael Dean Odin Pollock gítarleikari, Dagur Kári Pétursson leikstjóri, Arnar Eggert Thoroddsen félagsfræðingur, Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfóníunnar og Kristján Freyr Halldórsson rokkstjóri ræða um Bob Dylan og myndina um hann, A Complete Unknown. Hljóðverkfræðingurinn Ólafur Hjálmarsson gagnrýnir hljóðið í Eldborgarsalnum í Hörpu. Hann segir að bæta verði úr hljóðvistinni. Már Jónsson prófessor og Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir sagnfræðingur segja okkur frá veiðum Íslendinga fyrir tíma vélvæðingar.
    4 hr 33 min
  • Rauða borðið 27. jan - Styrkir til flokka, fjölmiðlar, fasismi, hið ritaða og talaða orð
    Mánudagur 27. janúar
    Styrkir til flokka, fjölmiðlar, fasismi, hið ritaða og talaða orð
    Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Atli Þór Fanndal verkefnisstjóri hjá Háskólanum á Bifröst um lög um stjórnmálasamtök of hvort Flokkur fólksins eigi að skila sínum styrkjum. Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins og Jón Trausti Reynisson framkvæmdastjóri Heimildarinnar ræða stöðu blaðamennsku hér á landi, sem sumpart er óviðunandi. Skortur á samstöðu blaðamanna er eitt fjölmargra meina. Eiríkur Bergmann prófessor fjallar um fasisma og Donald Trump, erum við komin á nýtt tímabil stjórnmála í okkar heimshluta. Hallgrímur Helgason ræðir sýningu sína Sextíu kíló og Halldóra Jónsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir ritstjórar orðabóka hjá Árnastofnun segja okkur frá orðabókarstörfum og sýn á framtíð tungumálsins.
    4 hr 27 min
  • Synir Egils: Fasismi, forysta, styrkir, virkjanir og verkföll
    Sunnudagurinn 26. janúar:
    Synir Egils: Fasismi, forysta, styrkir, virkjanir og verkföll
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Benedikt Erlingsson leikstjóri og þingkonurnar Rósa Guðbjartsdóttir og Ragna Sigurðardóttir og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálin. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni og ræða síðan Donald Trump og hvort hann sé að innleiða fasisma við þau Pontus Järvstad sagnfræðing, Nönnu Hlín Halldórsdóttur heimspeking og Guðmund Hálfdanarson sagnfræðing.
    2 hr 39 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners