Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Ræningjarnir þrír
    Allir Íslendingar þekkja ræningjana úr Kardemommubæ Thorbjörns Egners, þá Kasper, Jesper og Jónatan, uppátæki þeirra, sjarma og óþekkt. Flestir kunna jafnvel textann við vísur ræningjanna sem ýmist læðast hægt og hljótt eða eru búnir að týna öllum eigum sínum. Frægust eru lögin í flutningi þeirra Baldvins Halldórssonar, Bessa Bjarnasonar og Ævars R. Kvaran sem gerðu ræningjana ódauðlega árið 1960 og var sú uppfærsla gefin út á hljómplötu og síðar geisladisk sem spilaður hefur verið á íslenskum heimilum í áratugi.
    Margir hafa síðan fetað í þau stóru fótspor og brugðið sér í hlutverk ræningjanna. Í nýjustu uppfærslunni, sem var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á laugardag, eru það félagarnir Hallgrímur Ólafsson eða Halli eins og hann er kallaður, Sverrir Þór Sverrisson sem er kallaður Sveppi og Oddur Júlíusson sem leika þjófóttu pörupiltana. Þeir komu til Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1 og sögðu frá leikritinu og því sem hefur verið skemmtilegt en líka krefjandi í ferlinu.
    Niðurlægjandi þegar Halli var beðinn að kenna Sveppa sporin
    Eitt það erfiðasta að Sveppa mati er að dansa, hann ruglaðist svo mikið um helgina að hann fór huldu höfði í gleðskapnum eftir sýninguna. „Ég fokkaði upp öllum dönsunum og eftir frumsýninguna forðaðist ég danshöfundinn,“ segir Sveppi. „Svo var einhver sem sagði við mig: Þú ert Sveppi og þú kemst upp með allt. Það er allt í lagi að þú klúðrir. En mig langar ekkert að klúðra.“
    Sveppi vissi þó ekki hversu slæmur dansari hann væri fyrr en Hallgrími var falið það verkefni að kenna honum sporin. „Hann er líka alveg hræðilegur dansari en hann fékk skilaboð frá danskennaranum í frumsýningarpartýinu þar sem hann var beðinn um það.“
    40 min
  • Vala Kristín Eiríksdóttir leikkona
    Vala Kristín Eiríksdóttir leikkona ákvað sjálf að vera algjör draumaunglingur og ná stjórn á umhverfi sínu í öllu því kaosi sem fylgir því að fullorðnast. Stjórnunarþörfin breyttist á tímabili í áráttu og Vala þróaði til dæmis með sér átröskun sem hún hefur sigrast á. Hún er að leika í sínu stærsta hlutverki til þessa í Borgarleikhúsinu um þessar mundir.
    Vala Kristín Eiríksdóttir hefur leikið fjölmörg gamanhlutverk á sviði og á skjánum og getið sér gott orð sem grínisti. Vala hefur meðal annars verið meðal handritshöfunda áramótaskaupsins og leikið í og skrifað grínþættina Þær tvær og Venjulegt fólk. Nú er hún að sýna leikritið Oleanna í Borgarleikhúsinu þar sem hún leikur á móti Hilmi Snæ í leikriti eftir David Mamet. Þó nýjast hlutverkið sé dramatískt er hún vönust því að fá fólk til að hlæja. „Það eru ákveðnir ofurkraftar að fá fólk til að hlæja og það getur reynst mér vel að hafa áhrif á aðstæður,“ segir Vala sem í gegnum lífið hefur haft mikla tilhneigingu til að taka sjálf í taumana og reyna að beisla umhverfi sitt. Það hefur hins vegar gengið misvel. „Það kemur á daginn að ég stjórna miklu minna en ég hef oft haldið. Ég hef í raun ekkert með þessa veröld að segja og gera,“
    40 min
  • Marzibil Snæfríðar Sæmundardóttir og Ársæll Sigurlaugar Níelssonar
    Hjónin Marzibil Snæfríðar Sæmundardóttir og Ársæll Sigurlaugar Níelsson vinna nú að því að hópfjármagna eftirvinnslu á stuttmyndinni Drink My Life þar sem Marzibil skrifar og leikstýrir spúsa sínum í aðalhlutverkinu. Hjónakornin voru gestir Sigurlaugar M. Jónasdóttur í Segðu mér.
    Marzibil og Ársæll kynntust á Tinder og segja það nokkuð algengt meðal hjóna í þeirra vinahópi. „Meðan þetta var nýtt, áður en þetta var gruggað með „hook up“-menningu,“ segir Ársæll. Þau spjölluðu mikið saman á netinu í tíu daga áður en þau loksins hittast á bar meðan Airwaves stóð yfir. „Ég fór beint á barinn að fá mér bjór áður en ég þorði að horfa í kring um mig. Hún er náttúrulega níu árum eldri en ég og stórglæsileg kona. Mér fannst hún vera að spila í úrvalsdeildinni ég einhvers staðar í þriðju,“ segir Ársæll og bætir við að sjálfstraustið hafi á þessum tíma ekki verið upp á marga fiska þar sem hann bjó í kjallara hjá vini sínum meðan hann stóð í skilnaði.
    En hún sló ekki hendinni á móti kauða og þau hafa verið saman allar götur síðan. „Við ákváðum að fara í pool,“ segir Marzibil. „Það var auðveldara að þurfa ekki að vera alltaf stressuð, hvað eigum við að tala um núna? Við tókum bara leik og þá fór flæðið vel í gang. En við kláruðum reyndar ekki leikinn.“ Hún segir aldursmuninn milli þeirra aldrei hafa truflað sig. „Fólk sem er orðið þrítugt er bara fullorðið fólk, mér finnst ekki skipta máli einhver ár til eða frá.“
    40 min
  • Bjarni Harðarson bóksali og rithöfundur
    Bjarni Harðarson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, segir að við sem búum við allsnægtir á Íslandi getum ekki fyrirgefið okkur að loka dyrum á fólk sem er á flótta. Hann gaf nýverið út þriðju bók sína í þríleik um Skálholt 18. aldar og segir að við megum til með að taka forfeður og -mæður okkar til fyrirmyndar sem buðu hjálparhönd og deildu með þeim sem þurftu, jafnvel þó þau byggju sjálf við vosbúð.
    Bjarni Harðarson bóksali, rithöfundur og útgefandi hefur oft þurft að henda bókum og það segir hann hafa verið sérstaklega erfitt til að byrja með. „Sem ungur maður var ég einu sinni í mánuð úti í Drangey að drepa lunda. Vinur minn hafði ætlað að fara en hann komst ekki út af barneignum og fékk mig til að fara fyrir sig,“ rifjar hann upp í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1. „Ég var lélegur veiðimaður og ég man hvað mér fannst ofboðslega erfitt að snúa fyrsta fuglinn en svo komst það upp í vana. Þetta var eins með bækurnar, ég átti ofsalega erfitt með að henda bókum fyrst en svo komst þetta upp í vana.“
    40 min
  • Þórhallur Heimisson prestur og leiðsögumaður
    Þórhallur hefufr lengi starfað sem prestur í íslensku og sænsku þjóðkirkjunni en ferðalög um heiminn hafa alltat togað í hann. Hann hefur í gegnum árin ferðast vítt og breitt um heiminn einn og sem leiðsögumaður og þar hefur hann heimsótt höfðustöðvar og söguslóðir trúarheima.
    Þórhallur var að skrifa bók sem hann nefnir Saga guðanna og þar sem hann býður lesandanum í ferðalag um heim trúarbragðanna.
    40 min
  • Tryggvi Hjaltason
    Tryggvi Hjaltason Vestmannaeyingur, sem starfar hjá CCP, hefur stúderað langlífi. Hann sendi endajaxl úr sér til Bandaríkjanna í von um að hægt verði að nýta stofnfrumur til að skapa honum ný líffæri þegar hans fara að bregðast í ellinni. Stundum fastar hann dögum saman en segir einna mikilvægast að rækta vinskapinn því einmanaleiki sé mjög lífshættulegur.
    36 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

6 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners