Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Arngrímur Hermannsson
    Flugbjörgunarsveitinn heldur upp á 70 ára afmæli og segir Arngrímur sem skrifaði bók um sveitina að leitin að Geysi árið 1950 skipti sköpum og Íslendingar gerðu sér grein fyrir því að það þurfti að koma á fót sérþjálfaðri sveit manna og stofnuð var Flugbjörgunarsveitin. Arngrímur segir að í sveitinni myndast traustur og ævilangur vinskapur.
    40 min
  • Gullveig Teresa Sæmundsdóttir fyrrverandi ritstjóri
    Hvern gat ég verið reið við yfir að missa barnið mitt? Guð?“ segir Gullveig Teresa Sæmundsdóttir fyrrum ritstjóri sem missti dóttur sína aðeins tveggja ára gamla úr krabbameini og síðar bróður sinn fyrir aldur fram úr sama sjúkdómi. Þrátt fyrir miklar sorgir nýtur hún lífsins jákvæð og brosmild og segir að það sé skemmtilegt og gott. Gullveig er kaþólsk og skriftaði sem barn en trúir ekki á himnaríki lengur.
    Gullveig Teresa Sæmundsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Nýs lífs, er kaþólsk og alin upp við trúna. Þegar hún fæddist var til siðs að börn fengju dýrlinganafn svo móðir hennar valdi Gullveigarnafnið úr Völuspá og Teresunafnið sem dýrlingsnafn. Gullveig er 75 ára, hraust með áhuga á lífinu og tilverunni og lítur síður en svo á sig sem aldraða. „Ég er vakandi og hef verið mjög gæfusöm, þó sorgin hafi líka bankað upp á, svo ég lít ekki á mig sem gamla,“ segir hún. Hún skrifaði grein sem kom út í bókinni Raddir - annir og efri ár sem nýverið kom út á vegum Skruddu og er ætlað að miðla fróðleik um hvernig það er að eldast, hvernig lífi fólk lifir á efri árum og væntingar til lífsins.
    40 min
  • Björg Björnsdóttir mannauðsstjóri Skógræktarinnar
    Björg Björnsdóttir mannauðsstjóri Skógræktarinnar var að gefa út ljóðabók þar sem hún yrkir um hina eilífu hringrás árstríðanna, hversdaginn og náttúruna. Björg segir brosandi frá skógarverðinum sem hún hitti fyrir austan og í ferðalagi þeirra til Perú bað hann hennar. BJörg hefur unnið í París og Istanbúl en ákvað að flytja á æskustövðarnar býr á æskuheimili sínu og býr á efri hæðinni með dóttur sinni og niðri býr móðir hennar.
    40 min
  • Jóhanna Vilhjálmsdóttir
    Jóhanna hefur á undanförnum árum sökkt sé rniður í fjölda rannsókna um manngerð eiturefni af ýmsu tagi, sem eru orðin hluti af daglegu lífi okkar. Hún segir frá bókinni, og fer á flug þegar hún talar um þann mikla vanda sem taumlaus framleðisla og notkun á plasti skapar. Hún gerði tilraun á sjálfri sér og hefur ekki keypt sér föt í þrjú ár og segir brosandi frá þeirri reynslu. Jóhanna sem býr í Þýskalandi ásamt eiginmanni sínum Geir Sveinssyni segir frá lífi þeirra í sveitinni, jþakklætinu og auðvitað kærleikanum.
    40 min
  • Katrín Oddsdóttir lögfræðingur
    Katrín Oddsdóttir kynntist eiginkonu sinni, Kristínu Eysteinsdóttur, á galeiðunni í Reykjavík. Þá var Katrín blaðamaður í Neskaupstað og Kristín var í lesbíurokksveitinni Rokkslæðan. Þær ala börnin sín upp í þeirri trú að þau hafi rödd og geti breytt samfélaginu og þannig uppeldi fékk Katrín sjálf hjá móður sinni. Katrín er ein helsta baráttukonan um nýja stjórnarskrá og er að gera þætti um meint skemmtanagildi lögfræðinnar.
    Þegar dóttir Katrínar Oddsdóttur lögfræðings og konu hennar, Kristínar Eysteinsdóttur leikstjóra og fyrrum borgarleikhússtjóra, var að kríta í skólanum með öðrum bekkjarsystkinum sínum á dögunum sáu leikskólakennararnir ástæðu til að taka mynd af listaverkinu hennar. Á meðan önnur börn teiknuðu blóm og skrifaði dóttir lögfræðingsins og leikstjórans: HVAR ER NÝJA STJÓRNARSKRÁIN? með krít á flötina. Þegar Katrín fékk að sjá myndina fékk hún endurlit til eigin æsku og hló. „Ég var alin upp með þeim hætti að mamma og pabbi voru mikið að reyna að breyta samfélaginu og láta til sín taka,“ segir Katrín sem barnung tók þátt í aktívisma móður sinnar, Hólmfríðar R. Árnadóttur, sem er ein af stofnendum Kvennalistans.
    40 min
  • Guðbjörg Gissurardóttir ritstjóri
    Guðbjörg fagnar tíu ára útgáfuafmæli Í boði náttúrunnar. Hún segist leggja áherslu á að lifa betur, að halda áfram, eitthvða sem hún hefur reynt að gera allt sitt líf.
    Hún telur mikilvægt að miðla og gefa fólki innblástur og fróðleik, sem getur einnig bætt líf þeirra á einhvern hátt, sama hversu stórt eða lítið það er.
    40 min
  • Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingkona
    Þingkonan Rósa Björk Brynjólfsdóttir vakti athygli á dögunum þegar hún sagði sig úr þingflokki Vinstri grænna þegar til stóð að vísa egypskri fjölskyldu sem hafði sótt um hæli af landi brott. Hún á að baki gifturíkan fótboltaferil með sigursælu liði Breiðabliks og segir það hvorki sjálfgefið né auðvelt að standa með sjálfri sér, heldur útheimti það þrautseigju og mikla vinnu.
    „Ég er mikil keppnismanneskja, Sigurlaug, það verður nú bara að segjast eins og er,“ segir Rósa Björk . „Ég hef verið að spila við börnin mín sjö og átta ára og það er hálfvandræðalegt hvað ég fagna mikið þegar ég sigra þau.“ Rósa á ekki langt að sækja keppnisskapið en hún lék knattspyrnu með gullaldarliði Breiðabliks sem sópaði til sín nánast öllum titlum um margra ára skeið. „Það var ekkert annað í boði en að vinna. Það var svolítið gott veganesti inn í lífið.“
    40 min
  • Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri Borgarleikhússins
    Ég var 38 ára gömul og hugsaði nei, þetta er búið. Nú fer ég í leshring og stafagöngu með konum á mínum aldri,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri sem kynntist kærastanum Heimi Sverrissyni fyrir tíu árum, þá nýskilin. Nýtt leikár er loksins hafið í Borgarleikhúsinu og kveðst Brynhildur óþreyjufull að fá að bjóða áhorfendum á sýningar í stóra salnum eftir margra mánaða lokun.
    Brynhildur Guðjónsdóttir ákvað eftir BA-nám í frönsku að hætta við öll áform um að verða læknir og flugmaður og læra frekar leiklist úti í London enda hefur henni aldrei leiðst athyglin og hún nýtur sín jafnan best þegar hún hefur sjálf orðið. „Ég talaði út í eitt sem krakki og geri það enn. Það er mjög heppilegt fyrir leikkonuna en leikhússtjórinn þarf stundum að passa sig. Listamaðurinn hefur meira frelsi en leikhússtjórinn sem tekur ríkari ábyrgð og á að gera það,“ segir Brynhildur í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1.
    40 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

6 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners