Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Davíð Þór Jónsson prestur
    Davíð Þór Jónsson prestur í Laugarneskirkju viðurkennir að saga hans sé ekki öll falleg og til fyrirmyndar. Þegar hann tók fyrst við prestakalli efuðust sumir um þjóðþekktan grínistann hlutverkinu og stundum hefur fólk afþakkað þjónustu hans vegna fortíðarinnar. Fleiri hafa þó leitað til sérstaklega til hans í trausti um að mæta ekki siðferðislegu yfirlæti.
    Séra Davíð Þór Jónsson Radíusbróðir og prestur í Laugarneskirkju kveðst almennt séð ekki vera kjaftfor maður. Fúkyrðin sem hann brúkar þegar ástæðan er ærin eru allavega ekki þau ljótustu en stundum þarf hann að tjá skoðun sína um það sem honum mislíkar. „Ég reyni bara að sníða orðfæri mitt að því sem hentar tilefninu hverju sinni. Það er meira þannig að manni blöskrar eitthvað eða svíður svo mikið að maður verður bara að leyfa sér að segja eitthvað eins og: Þetta er argasta kjaftæði. Því frjálslega farið með staðreyndir eða vafasamar fullyrðingar ná ekki að fanga hve óforskammað það er sem maður er að gagnrýna.“
    Þetta gerist þegar prestinum ofbýður og það gerist stundum. „Böl mitt og blessun í senn er þessi réttlætiskennd sem ég er fæddur með og kemur mér stundum í uppnám þegar henni er gróflega misboðið.“ Davíð Þór sagði frá fortíðinni, prestsstarfinu, gagnrýninni og ljóðabók sem hann er að senda frá sér.
    40 min
  • Mjöll Hólm söngkona
    Mjöll Hólm segir frá laginu Jón er komin heim sem varð feikilega vinsælt á sínum tíma. Mjöll segir frá æsku sinni en hún á sjö bræður og ólst upp í Pólunum. Mjöll segir að þeir sem bjuggu í bröggunum litu niður á þá sem bjuggu í Pólunum,
    40 min
  • Guðrún BJörnsdóttir framkvæmdastjóri
    Guðrún Björnsdóttur sem hefur stýrt Félagsstofnun stúdenta (FS) í 20 ára eða svo. Hún var fyrsta konan sem tók við því starfi og hefur haldið lengst allra. FS byggir á hugmyndafræði um bæta lífskjör stúdenta og er algjörlega óhagnaðardrifið. Félagið hefur byggt yfir 1000 leigueiningar fyrir stúdenta og fjölskyldur þeirra, rekur þrjá leikskóla, veitingastað á Háskólatorgi og í veitinga- og skemmtistað í Stúdentakjallaranum fyrir utan hina stórkostlegu bókabúð Bóksölu stúdenta.
    Guðrún er mikil hugsjónamanneskja í sínu starfi og hún segir að Mest af öllu er henni annt hag um hag stúdenta og hvernig þeir geta fundið heimili að heiman hjá þeim á görðum. Hún skilur líka að ungt fólk hugsar öðruvísi en kynslóðin á undan. Það vill ekkert endilega búa stórt, þau vilja frekar fjárfesta í ferðalögum og hafa svigrúm.
    40 min
  • Eyjólfur Pálsson í Epal
    Eyjólfur Pálsson stofnaði Epal í 30 fermetra bílskúr fyrir meira en fjórum áratugum síðan sem er nú ein stærsta hönnunar- og húsgagnaverslun landsins með fjórar búðir. Hann lærði húsgagnaarkitektúr í Kaupmannahöfn og vinnan er hans helsta áhugamál, þó hann hafi nú eftirlátið syni sínum stjórn fyrirtækisins.
    „Ég er nýbúinn að eignast Eggið [stólinn],“ segir Eyjólfur Pálsson. „Ég hef forðast að eiga á mínu heimili mest seldu hlutina úr versluninni, þannig ég skilgreini hvenær ég er heima og hvenær ég er í vinnunni,“ segir Eyjólfur. Hann hefur til að mynda aldrei tekið í mál að láta mynda sig á sínu heimili. „Það er ekki í boði. Ég vil bara hafa mitt prívat. Velkomið að taka myndir og viðtal í versluninni en ekki heima,“ segir Eyjólfur og gengst við því að vera prívat maður. „Væntanlega er ég of mikill vinnuhestur í mínu áhugamáli. Sem gerir það að ég hef átt þrjár konur og tvö börn, stráka, með sitt hvorri konunni. Það gefast allir upp á mér.“ Vinnan hans Eyjólfs snýst um hönnun sem er líka hans helsta áhugamál. Hann segir erfitt að fá fólk til að skilja hversu mikilvæg hönnun sé. „Össur, Marel, CCP, þetta byggist allt upp á hönnun. Auðvitað er fullt af tækni í kring um þetta en hönnun er lykilatriði“.
    40 min
  • Sólveig Pálsdóttir rithöfundur
    Þegar Sólveig settist niður til að skrifa nýjust glæpasögu sína, fór hugurinn á flug og áður en hún vissi af var hún búin að setja glæpasöguna ofan í skúffu og skrifaði bókina Klettaborgin sem byggir að mestu leyti á æskuminningum. Í bókinni birtast myndir og minningabrot sem hafa fylgt henni og hvergi vikið. Sólveig var ung send í sveit og segir og dvaldi á bænum Hraunkoti í Lóni. Segja má að tveir heimar hafi búið í Sólveigu alla tíð. Á veturnar bjó hún í Vesturbænum en dvaldi einnig löngum á Bessastöðum þar sem hafi hennar var forseti Íslands.
    40 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

6 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners