Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri
    Þegar það var byrjað að brytja einhvern niður gat maður ekkert sofið. En þá sagði mamma: Þetta er bara tómatsósa,“ rifjar kvikmyndagerðarmaðurinn Gunnar Björn Guðmundsson upp um sérstakt kvikmyndauppeldi móður sinnar. Hann þakkaði móður sinni uppátækið með því að tileinka henni kvikmyndina Amma Hófí sem nú er í bíó.
    Gunnar hefur á gert um fjögur hundruð auglýsingar á ferlinum og margar eftirminnilegar. Meðal annars á hann, ásamt Óskari Þór Axelssyni leikstjóra, heiðurinn af því að klæða Jón Gnarr í latexbúning í auglýsingu fyrir Villikattarsúkkulaði frá Freyju. Sú var einmitt grafin upp þegar Jón gegndi embætti borgarstjóra Reykjavíkur og þótti sérstaklega kómísk í því samhengi. Þeir Gunnar og Óskar stofnuðu fyrirtækið Þeir tveir og nálguðust auglýsingar, sem þeir framleiddu fyrir hin ýmsu fyrirtæki við góðan orðstír, sem stuttmyndir.
    Hann vissi nefnilega strax á unglingsaldri að hann stefndi að kvikmyndagerð og hann hefur líka alla tíð verið mikill spéfugl. Gunnar er yngstur í fjölskyldunni og lagði hann sig alltaf mikið fram við að skemmta foreldrum sínum og fjölskyldu sem barn. Það lá því vel fyrir honum að leikstýra áramótaskaupinu, sem hann gerði fjögur ár í röð frá 2009-2012. Þá hafði hann sannað sig með því að gera hina geysivinsælu Astrópíu með Ragnhildi Steinunni í aðalhlutverki um konu sem fær vinnu í nördabúð og lærir hlutverkaspil. Um fimmtíu þúsund manns sáu Astrópíu í bíó.
    40 min
  • Harpa Einarsdóttir framkvæmdastjóri
    Hún talar um covid og segir frá því ferli öllu og að það tók langan tíma fyrir hana að jafna sig . Hún er stofnandi og framkvæmdastjóri Surprize en hún er með yfir 20 ára reynslu af ferðaþjónustu.
    40 min
  • Þorsteinn J.
    Fjölmiðlamaðurinn og rithöfundurinn Þorsteinn J. skrifaði um skelfilegt fráfall móðurbróður síns, sem varð fyrir bíl fyrir utan heimili sitt, í bókinni Takk, mamma og kom út árið 2000. Þar fór hann í saumana á sambandinu við móður sína, áhrifum slyssins og þögguninni í kringum það. Nú er hann að senda frá sér nýja bók, Ég skal vera ljósið, sem gerist í Slippnum en fjallar um hvernig hægt er að endurskapa söguna.
    Sjónvarps- og fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson fann snemma fyrir ástríðu sinni fyrir dagskrárgerð og miðlun. Hann fékk í jólagjöf sem barn lítið upptökutæki sem hann notaði til að taka sjálfan sig upp og stundum einnig viðtöl við systur sína. Seinna eignaðist hann kasettutæki sem hann þvældist með um allt og tók alls konar hljóð og pælingar upp á segulbandsspólur sem hann geymir enn. „Ekki því þetta sé svo merkilegt heldur vegna þess að þetta er heimild. Maður ýtir á play og er kominn í huganum til Los Angeles 96 eða til Torfa á Hala sautjánhundruð og súrkál. Þetta er svo aðlaðandi finnst mér,“ segir hann. Þorsteinn hefur líka látið til sín taka á ritvellinum og vakti bók hans, Takk mamma, sem kom út árið 2000 mikla athygli. Bókina byggir hann á eigin reynslu og fjölskyldusögu. Frásögnin er persónuleg og fjallar um samband Þorsteins við móður sína sem lést úr krabbameini 67 ára. „Það vita það náttúrlega allir sem missa foreldra sína að það er akkúrat tíminn sem þú færist úr stað frá því að vera barn í að vera fullorðinn,“ segir hann í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttir í þættinum Segðu mér á Rás 1. „Sá tími kallar á þörf til að skilgreina, horfa til baka og sjá hvað var í gangi. Hvað gerðist og af hverju það hafði áhrif.“
    40 min
  • Gunnar Hilmarsson fatahönnuður og tónlistarmaður
    Þegar Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, eiginkona tónlistarmannsins Gunnars Hilmarssonar, greindist með krabbamein var þeim sagt að þau gætu aldrei eignast fleiri börn. Það var því kraftaverki líkast að Kolbrún varð ófrísk skömmu eftir að hún hafði afþakkað að ljúka krabbameinsmeðferðinni. Hjónin berjast fyrir bættum aðbúnaði útigangsfólks með Minningarsjóði Lofts Gunnarssonar. Loftur var mágur Gunnars og lést á götunni 2012.
    Hljómsveitin Sycamore Tree er hugarfóstur Gunnars og hafa lög hennar, á borð við Beasts in my bones, Fire, My heart beats for you og Wild Wind, fengið mikla spilun undanfarið og notið vinsælda. Söngkona sveitarinnar er Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem er fræg fyrir túlkun sína á Sylvíu Nótt og framlagi Íslands í Eurovision árið 2006. Vinsældirnar komu Gunnari að mörgu leyti á óvart en hann segist hafa áttað sig á að Ágústa myndi vekja athygli, hvað sem hún tæki sér fyrir hendur. „Ég var ekki alveg búinn undir þetta,“ segir Gunnar sem segist ekki alltaf njóta athyglinnar sem vinsældunum fylgi. „Mér finnst þetta ekki þægilegt sko.“
    40 min
  • Anna Dóra Antonsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir
    Anna Dóra og Kristrún fengu í hendur handskrifaðar matreiðslubækur systranna Sigurlaugar og Guðbjargar Sveinsdætra frá Tjörn á Skaga. Þær stunduðu nám við Kvennaskólann á Blönduósi á stríðsárunum. Anna Dóra og Rúna skrifuðu í kringum uppskriftirnar texta um daginn og veginn, ásamt vangaveltum um lífið og tilveruna.
    40 min
  • Ágústa Sigrún Ágústsdóttir markþjálfi
    Ágústa hefur marga titla og brosir þegar hún er spurð hver af þessum titlum er mikilvægastur. Hún er söngkona, sáttamiðlari, leiðsögumaður og mannauðsráðgjafi.
    Ágústa segir frá dvöl sinni á Ítalíu. Hún lenti í jarðaskjálftanum 1997 þegar allt hrundi í Assisi.
    40 min
  • Þóra Karítas Árnadóttir leikkona
    Þóru Karítas Árnadóttur, leikkonu og rithöfund, dreymdi sérkennilegan draum fyrir um fimm árum þar sem Bubba Morthens brá meðal annars fyrir. Draumurinn leiddi Þóru á slóðir Þórdísar Halldórsdóttur, einnar af konunum sem drekkt var í Drekkingarhyl á Þingvöllum. Henni var gefið að sök að hafa eignast barn með mági sínum. Þóra er að leggja lokahönd á skáldsögu byggða á ævi Þórdísar.
    40 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

6 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners