Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Anna Dís Ólafsdóttir framleiðandi og leikstjóri
    Anna Dís frá Pro film segir okkur frá ævintýralegu lífi Guðríðar Guðríður Þorbjarnardóttir sem hafði um miðja 11. öldina orðið víðförulasta kona miðalda. Hún var landkönnuður sem sigldi átta sinnum yfir úfið Atlantshafið og kannaði veröldina allt frá norðurströndum Ameríku og vestur til Vatíkansins í Rómarborg. Leifur Eiríksson bjargaði henni, síðar mágkonu sinni, úr sjávarháska sem varð til þess að hann fékk viðurnefnið “heppni“ en hún “hin víðförla.“
    40 min
  • Áslaug Dröfn Sigurðarsdóttir gerfihönnuður
    Áslaug Dröfn segir frá móður sinni sem fékk heilabilun 64 ára gömul og hvernig líf þeirra systra umturnaðist. Eins og oft gerist þá fór hún á netið til að fræðast um heilabilun og fann fljótlega Teepu Snow sem heldur fyrirlestra og skýrir út hvernig best er að umgangast fólk með heilabilun. Áslaug Dröfn ásamt fleirum eru búin að bjóða Teepu til íslands til að halda fyrirlestur, sme getur hjálpað fjölskyldun þeirra sem veikjast að skilja út á hvað þetta gengur
    40 min
  • Tinna Hrafnsdóttir leikkona og leikstjóri
    Gestur þáttarins er Tinna Hrafnsdóttir leikkona og leikstjóri.
    Umsjón: Viðar Eggertsson
    Tinna er í miðju ferli að leikstýra sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Skjálfta, sem er byggð á skáldsögu Auðar Jónsdóttur, Stóra skjálfta. Þó gaf hún sér tíma til að setjast inn í hljóðstofu til að spjalla um líf sitt og list. Eftir samtalið tók hún flug til Prag þar sem hún er að mæta í fyrstu töku sína sem leikkona í danskri kvikmynd um Margréti fyrstu Danadrottningu, en þar fer Tinna með hlutverk aðstoðarkonu drottningar. Hún mun fljúga fram og til baka næstu vikurnar til að ýmist að leikstýra Skjálfta eða leika aðstoðarkonu drottningar.
    Í þættinum segir hún frá kvikmynd sinni Skjálfta, sem hún skrifaði einnig handritið að, ferli sínum sem lögfræðinemi, bókmenntafræðinemi, leiklistarnemi og loks nemi í MPA námi. Tveimur síðustu námsgreinunum lauk hún með lokaprófi. Þá segir hún frá ferli sínum sem sviðslistamaður og kvikmyndagerðarmaður.
    40 min
  • Magnús Ragnarsson organisti og kórstjóri
    Gestur þáttarins er Magnús Ragnarsson organisti og kórstjóri.
    Umsjón: Viðar Eggertsson.
    Magnús er kominn af leikhúsfólki í móðurætt. Langalangafi hans var Indriði Einarsson leikskáld og hvatamaður að byggingu Þjóðleikhússins og var á sínum tíma kallaður „faðir Þjóðleikhússins". Afkomendur hans sem margir hverjir báru ættarnafnið Waage hafa verið leikstjórar og leikarar. Magnús segir lítillega frá þessu fólki. Magnús var í unglingahljómsveitinni Kósý með þeim Markúsi Þór andréssyni, Ragnari Kjartanssyni og Úlfi Eldjárn. Hann segir sér sem skólapilti, bæði í menntaskóla og háskóla. Einnig frá tónlistarnámi sínu og störfum í Svíþjóð. Hann segir frá kórunum sem hann hefur stjórnað, kór Áskirkju, kór Íslensku óperunnar en ekki síst Söngsveitinni Fílharmóníu. Magnús hefur stjórnað Fílharmóníunni í 14 ár og fyrir dyrum standa miklir tónleikar, Requiem eftir Verdi sem Fílharmónían flytur 15. mars 2020 á 60 ára afmæli söngsveitarinnar í Langholtskirkju.
    40 min
  • Pétur Magnússon lyfjafræðingur og forstjóri Hrafnistu
    Gestur þáttarins er Pétur Magnússon lyfjafræðingur og forstjóri Hrafnistu.
    Umsjón: Viðar Eggertsson.
    Pétur segir frá ævintýralegri ferð sem hann fór ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Eydísi Ingimarsdóttur, og fleirum í Simien-þjóðgarðinn í Eþíópíu og mannlífinu þar síðasta haust. Einnig frá því þegar þau hjónin gengu á hæsta fjall Evrópu, Elbrus í Kákasusfjöllunum í Rússlandi.
    Þá sagði hann frá starfi sínu sem forstjóri Hrafnistuheimilanna síðustu 12 ár. Í hverju áskoranirnar eru fólgnar en heimilin eru orðin átta talsins og þjónusta yfir 1.000 aldraða á degi hverjum í hjúkrunarrýmum, dagdvalarrýmum og leiguíbúðum. Einnig um hinn stóra hóp starfsmanna sem starfar við Hrafnistuheimilin og starfshætti.
    40 min
  • Þórdís Guðjónsdóttir fararstjóri og veitingahúsahönnuður
    Gestur þáttarins er Þórdís Guðjónsdóttir fararstjóri og veitingahúsahönnuður.
    Umsjón: Viðar Eggertsson.
    Þórdís ólst upp í Vogahverfinu í Reykjavík. Hún segir frá þeim tíma og áttundaáratugnum sem var fullur af bjartsýni og þori og nýjum hugmyndum sem fengu að blómstra á þessu vaxtarskeiði sínu og borgarinnar. Faðir hennar stofnaði ferðaskrifstofuna Ferðamiðstöðina sem bauð upp á ferðir til nýs áfangastaðar fyrir sólþyrsta Íslendinga. Þórdís fór fljótlega að vinna sem fararstjóri enda lærði hún spænsku hratt og gat orðið löndum sínum góð stoð á þessum framandi slóðum. Á Benidorm hitti hún Augustín, Spánverjann sem varð eiginmaður hennar. Þau fluttust til Íslands og í fyllingu tímans opnuðu þau ekta spænskan bar / kaffihús / tapasstað; Kaffi List. Þau eru skilin núna en Augustín hjálpar Þórdísi við að reka staðinn sem hún á núna, Spánski í Ingólfsstræti.
    40 min
  • Jóhanna Guðríður Linnet óperusöngkona og söngkennari
    Gestur þáttarins er Jóhanna Guðríður Linnet, óperusöngkona og söngkennari.
    Umsjón: Viðar Eggertsson.
    Jóhanna segir frá afasystur sinni Ragnheiði O. Björnsson og dvöl hjá henni sem barn á akureyri. Einnig frá afbróður sínum. Þau kveiktu áhuga hennar á söng og tónlist. Hún segir einnig frá öðrum tónlistarmönnum sem hún stundaði nám hjá, eins og Sieglinde Kahmann, Sigurði Demtz og Ragnari Björnssyni. Einnig frá námsárum sínum í Hollandi, þattöku í Söngvakeppni Sjónvarpsins og sýningu Íslenska dansflokksins, Ég dansa við þig, glímunni við krabbameinið sem hefur komið í veg fyrir frekari frama hennar sem söngkonu. Einnig störf sín sem söngkennari og frá nemendum sínum, en hún hefur á síðustu árum kennt að mestu jazz- og rythmískan söng.
    40 min
  • Hjónin Sævar Þór Jónsson og Lárus Sigurður Lárusson
    Gestir þáttarins eru hjónin Sævar Þór Jónsson lögfræðingur og Lárus Sigurður Lárusson lögfræðingur og óperusöngvari.
    Umsjón: Viðar Eggertsson.
    Í þættinum segja þeir Sævar Þór og Lárus Sigurður hvernig þeir kynntust. Þeir segja frá syninum sem þeir ættleiddu og hvernig það var að ganga í gegnum ættleiðingarferlið og síðan að fá barn í hendurnar. Þeir segja frá störfum sínum sem lögmenn og hvernig þeir stóðu að því að stofna eigin lögfræðistofu, Sævar Þór & Partners, og hvernig er að eiga hlutdeild í lífi hvors annars, bæði í vinnunni og heima. Einnig ræða þeir mikilvægi listarinnar og hjónalífið.
    40 min
  • Andri Freyr Viðarsson og Andri Frey HIlmarsson
    Nafnarnir segja frá nýjum sjónvarpsþætti þar sem þeir leggja land undir fót og er ferðinni heitið til Bretlandseyja. Þar freista þeir þess að hitta átrúnaðargoð Andra Freys Hilmarssonar, Mr. Bean. Á meðan Andri Freyr Viðarsson reynir að komast í samband við leikarann Rowan Atkinson nota nafnarnir tímann og skoða sig um á Bretlandseyjum.
    40 min
  • Þórunn Magnea Magnúsdóttir leikkona
    Gestur þáttarins er Þórunn Magnea Magnúsdóttir leikkona.
    Umsjón: Viðar Eggertsson.
    Þórunn Magnea gaf út sína fyrstu ljóðabók aðeins 14 ára gömul. Þegar hún var nýorðin 17 ára lék Ófelíu í sýningu Þjóðleikhússins 1962. Að loknu námi við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins hélt hún til Parísar í framhaldsnám í tvö ár. Þórunn Magnea segir frá þess tímaskeiði í lífi sínu, frá eftirminnilegu samstarfsfólki og leiksýningum sem hún tók þátt í. Á allra síðustu árum hefur Þórunn Magnea starfað með Leikhúslistakonum 50+ og nú starfar hún með Leiklestrarfélginu sem hún stofnaði ásamt fleira leikhúslistalistamönnum. Leiklestrarfélagið stendur fyrir leiklestrum á nýjum sem eldri leikritum og hefur aðsetur í Þjóðleikhúskjallaranum.
    40 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

6 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners