Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Sigurborg Sveinsdóttir og Svava Arnardóttir
    Svava og Sigurborg eru iðjuþjálfar og Hugaraflsfélagar. Þær vinna með ungu fólki í Hugarafli og segja frá því starfi og frá opna borgarafundinum sem haldin verður 12.september þar sem fjallað verður um sjálfskaða og sjálfsvígshugsanir . Þessi fundur verður aðeins öðruvísi því unga fólkið verður þar í fyrsta sæti og út í sal mun fagfólk og aðrir sem áhuga hafa á þessum málaflokki hlusta á reynsusögur unga fólksins.
    Þær Svava og Sigurborg segja einnig í þættinum frá þeirra eigin sjálfsvígshugsunum og sjálfsskaða.
    40 min
  • Bjarni Frímann Bjarnason
    Bjarni Frímann er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar , stundaði fiðlunám frá unga aldri og lauk prófi í lágfiðluleik frá Listaháskóla Íslands og sigraði einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2009 og lék einleik í lágfiðlukonsert Bartóks með hljómsveitinni. Hann brosir út í annað þegar hann er spurður hvernig það hafi veirð að vera valinn Bjartasta vonin og gerir lítið úr því. Hann hugsar lítið um annað en tónlist og hefur mikið að gera enda er íslenska óperan að setja á svið Brúðkaup Figarós eftir Mozart. Þegar hann vill slaka á það fer hann í sjósund eða keyrir gamla bílinn sín í þögn, enda ekki útvarp í bílnum.
    40 min
  • Anna Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri hjá Advania
    Anna Björk segir að foreldrar hennar hafi sagt henni að elta drauma sína og sem hún hún og gerði. Hún fór ásamt manni sínum til Ungverjalands í skóla og stefndi á myndlistarnám en snéri við blaðinu og fór í íþróttafræði, en segir brosandi að hún hafi svo endað í viðskiptum og þykir sérlega skemmtilegt að hjálpa fólki að sjá hlutina, miðla og kenna. Mydndlistardraumurinn hefur þó alltaf verið til staðar og þegar hún flutti í Borgarnes 1994 á fullorðins aldri var hún dregin inn í nýstofnað Handverksfélagið Hnokka, hvarhún fór á málaranámskeið og tók þátt í samsýningu í Reykholti m.a. Þessar tilraunir þá urðu til þess að hún fór að keyra vikulega í Myndlistaskólann í Reykjavík, þar sem húnsótti öll námskeið sem í boði voru næstu árin í teikningu, módelteikningu og síðar olíumálun. Þegar örverpið fæddist svo 2011 hætti hún að mála vegna tímaleysis og vegna þess hve erfitt er að vera með olíulitina upp um allt í íbúð með ungabarni. Þá fór hún aftur að prófa vatnslitina, sem hægt er að grípa í hvenær sem er og án mikils umstangs og komst að því sem auðvitað er raunin; þeir eru ekki eins einfaldir og þeir virðast í fyrstu. Þú veist aldrei alveg hvernig útkoman verður og færð ekki margar tilraunir, því erfitt er að leiðrétta mistök. Hins vegar eru þeir svo gefandi einmitt vegna þessa og vegna þeirrar einstöku birtu og flæði lita sem hægt er að skapa með þeim. Anna segir brosandi að henni finnst hún vera aftur orðin sjö ára þegar hún fór að leika mér með liti og vatn og endurupplifi og ferðast um æskuslóðir og minningar með því að mála þær. Hún verður með sýningu í Safnahúsið í Borgarnesi í september.
    40 min
  • Guðný Pálsdóttir og Elísabet Sveinsdóttir á allra vörum
    Þær Guðný , Elísabet og Gróa Ásgeirsdóttir fengu hugmynd árið 2008 og stofnuðu Á allra vörum og söfnuðu ríflega 50 milljónum sem voru nýttar til að kaupa brjóstamyndatæki fyrir krabbameinsfélagið. Síðan þá hafa hugmyndirnar ekki hætt að koma en hugmyndafræðin gengur út á að velja eitt málefni á ári og í þetta skipti nýtur "Eitt líf" stuðningsins. Þær Guðný og Elísabet ræða þetta gjöfula samstarf og vináttuna, gleðina og sorgina sem þær vinkonur upplifa í hvert skipti sem þær fara á stað með Á allra vörum.
    40 min
  • Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur
    Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur segir að það hafi mótað sig að hugsa um þrjá ættliði með geðhvörf. Hún segir frá móður sinni sem aldrei var greind en þegar hún horfir til baka þá sér hún hversu veik hún var. Hún lá stundum í viku í rúminu og Sigríður rifjar upp þegar hún lítil stúlka stendur í röð í Kaupfélaginu á Húsavík og fyrir aftan hana standa tvær konur og tala um móður hennar og segja," ja hún dregur nú aldrei frá gardínum fyrr en eftir hádegi" Sigríður talar um fordómana og einnig um barátti hennar og sonar hennar sem einnig er með geðhvörf, en honum líður vel í dag. Í dag eru þau bæði að skrifa kvikmyndahandrit í sitt hvoru lagi þó og hún segir einnig frá því þegar hún greindist með sjálfsofnæmi og hvernig hún tókst á við þau veikindi með langtíma lífstílsbreytingu.
    40 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

6 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners