Segðu mér

Segðu mér

Download on the App Store
  • Favorites

    41

    Followers

  • Typical duration

    40 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Segðu mér episodes

  • Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Ísland
    Lára segir frá uppvexti sínum á Húsavík og því skapandi umhverfi sem hún ólst upp í , hún var einungis 5 ára þegar hún ákvað að læra á fiðlu og segir frá tónlistarlífinu þar, og rifjar upp þegar hún 17 ára gömul skipulagði ýmsa tónleika í kirkjunni.
    Hún segist vera full tilhlökkunar og eftirvæntingar fyrir komandi starfsári Sinfóníuhljómsveitar Íslands . Í mars fagnar hljómsveitin 70 ára afmæli sínu með tónleikum í Eldborg
    39 min
  • Karl Ferdinand Thorarensen viðskiptafræðingur
    Viðskiptafræðingurinn Karl Ferdinand Thorarensen verður með örnámskeið um Dallas-þættina sem hófu göngu sína 1978 og voru vinsælasta sjónvarpsefni heims á níunda áratugnum.
    Hann segir að hugmyndin á bak við námskeiðið sé ekki bara að þylja upp staðreyndir heldur líka rýna í umhverfið sem þættirnir spruttu úr. „Reyna að kryfja stemmninguna í kringum Dallas, af hverju varð þetta svona vinsælt um allan heim?“ Í þáttunum segir af ástum, örlögum, en aðallega illindum, forríkra fjölskyldna í Dallas. Siðspillti olíubarónninn J.R. Ewing varð fljótlega einn vinsælasti karakterinn, en einn frægasti þáttur sjónvarpssögunnar fjallar um hver skaut hann, Who shot J.R.? Fleiri horfðu á þann þátt í Bandaríkjunum en kusu í forsetakosningunum árið 1980, um 83 milljónir.
    Karl segir einnig frá dvöl sinni Rússlandi þar sem hann lærði sögu og bókmenntir og segir að sá tími hafi kennt honum hvernig hann horfir á heiminn.
    40 min
  • Hrannar Björn Arnarsson framkvæmdastjóri ADHD samatakana
    Hrannar segir pólítíkina hafa verið fyrirferðamikla í lífi hans og rifjar upp árin sem aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur þar sem vinnan var mikil og hann lítið heima. Hrannar brosir þegar hann segir frá heimilislífinu í æsku með stjúpföður sínum Böðvar Guðmundsson og móðir hans Kristín Ólafsdóttur og talar um að það hafi verið menningarlegt og pólitískt heimili sem hafi mótað hann.
    Hrannar er í dag framkvæmdastjóri ADHD samtakana og talar um baráttumálin, fordómana og skilningsleysi fólks á ADHD
    40 min
  • Guðrún Ágúsdóttir fyrrverandi forseti borgarstjórnar
    Guðrún var önnur konan sem gegnir embætti forseta borgarstjórnar, rauðsokka, sendiherrafrú, skógarbóndi og aðgerðasinni. Hún er alin upp í hægrisinnaðri fjölskyldu og það varð fljótt ljóst að hún hefði sterkar skoðanir en færi ótroðnar slóðir. Það má segja að það hafi ekki beinlínis verið hrópað af gleði á heimilinu þegar hún tilkynnti foreldrum sínum að hún væri í framboði fyrir Alþýðubandalagið, þá tæplega þrítug. Faðir Guðrúnar sagði ömmu hennar fréttirnar símleiðis en sú síðarnefnda svaraði þurrlega: „Ágúst minn, svona nokkuð talar maður ekki um í síma.“
    Guðrún segir frá lífi sínu ,baráttumálunum og talar um þann tíma þegar var sendiherrafrú
    40 min
  • Ugla Stefanía Jónsdóttir formaður Trans Íslands
    Ugla Stefanía var 18 ára þegar hún kom út úr skápnum og segir að það hafi tekið á og hún skrifaði foreldrum sínum langt bréf . Það tók foreldra hennar tíma til að melta þessar fréttir en Ugla rifjar upp brosandi þegar faðir hennar bauð henni á Búnaðarþing og kynnti hana sem dóttur sína Uglu.
    40 min
  • Ragnhildur Sverrisdóttir stjórnarmaður í hinsegin dögum
    Ragnhildur segist hafa verið bólusett fyrir pólitík fyrir lífstíð, en faðir hennar Sverrir Hermannsson var þingmaður og ráðherra. Hún segir frá heimilislífinu á æskuheimili sínu, en segir brosandi frá því að í dag er hún gift þingmanni, en kona hennar Hanna Katrín Friðriksdóttir situr á þingi. Ragnhildur rifjar upp þann tíma þegar hún kom út úr skápnum og segir brosandi að hún hafi haldið að hún væri eina lesbían á landinu. Hún talar um mikilvægi þess að hafa góðar fyrirmyndir í tengslum við baráttu hinsegin fólks.
    40 min
  • Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarmaður
    Gestur þáttarins er Hrafnhildur Gunnarsdóttir, kvikmyndagerðarmaður.
    Hrafnhildur lauk kvikmyndagerðarnámi í Bandaríkjunum fyrir 30 árum. Hún hefur gert mikinn fjölda heimildamynda og einnig unnið að gerð ýmissa þátta fyrir sjónvarp sem hún segir að hún hafi gert "til að fjámagna fíknina". Í haust verður frumsýnd ný heimildamynd hennar Vasulka-áhrifin, sem fjallar um hjónin og listamennina Steinunni og Woody Vasulka. Þá verður einnig frumsýnd á RÚV í haust þáttaröð hennar í 5 hlutum, Svona fólk, sem fjallar um sögu samkynhneigðra á Íslandi frá áttunda áratug síðustu aldar fram á okkar daga.
    Umsjón hefur Viðar Eggertsson.
    40 min
  • Inga Sól Ingibjargardóttir vöruhönnuður
    Gestur þáttarins er Inga Sól Ingibjargardóttir, vöru- og húsgagnahönnuður.
    Inga Sól hefur lokið 4 háskólagráðum og stefnir á þá 5. til að jafna met Georgs Bjarnfreðarsonar, eins og hún segir. Hún starfar í dag sem vöru- og húsgagnahönnuður ásamt því að vera leikskólakennari. Í þættinum segir hún m.a. frá bernskuárum í Svíþjóð og námsárum í Danmörkum og frá hönnun sinni, en hún kynnir hana á vefsíðu sinni, ingasoldesign.com Á 50 ára afmæli Bókasafns Norræna hússins, 11. ágúst n.k., verður tekið í notkun ný bókasafnskort fyrir lánþega sem Inga Sól hefur hannað úr viði.
    Umsjón hefur Viðar Eggertsson.
    40 min

About Segðu mér

From the publisher's feed

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Best of Segðu mér

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1:
    40 min
  2. Number 2:
    40 min

More shows like Segðu mér

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Mannlegi þátturinn by RÚV

Mannlegi þátturinn

4 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur by RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

4 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

5 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

9 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners