Seinni níu

Seinni níu

By Logi Bergmann og Jón Júlíus KarlssonSportsGolf
Download on the App Store

Seinni níu episodes

  • #83 - Evu Maríu dreymir um að spila með Clooney

    Við fengum góðan gest í þátt vikunnar í Seinni níu.Fjölmiðlakonan Eva María Jónsdóttir kom í heimsókn til okkar. Hún er kylfingur í Nesklúbbnum og er með um 25 í forgjöf. Hún kom óvænt í golfíþróttina fyrir um tíu árum og hefur golfið haft það mikil áhrif á hana að hún fékk sér dagvinnu sem kennari til að geta stundað golf af krafti yfir sumartímann þegar kennsla liggur niðri.

    Í þættinum segir Eva okkur frá hvernig hún kynntistíþróttinni og því andlega ferðalagi sem golfíþróttin hefur verið fyrir hana. Hún segir okkur frá nýjum þáttum sem hún er með á RÚV sem kallast Ljóðaland en hugmyndin að þáttunum kom óvænt upp í golfferð. Í fyrsta sinn í Seinni níu varkveðin golfvísa.

    Eva velur draumahollið og kemur einnig með frábærantopplista yfir þau fimm atriði sem hafa komið henni mest á óvart eftir að hún hóf að leika golf.

    Svo kemur í ljós að Logi á nú 10 púttera eftir að hafa fjárfest í tveimur pútterum á síðustu vikum.

    1 hr 9 min
  • #82 - Hrafnhildur hefur spilað alla golfvelli landsins

    Við fáum frábæran gest í Seinni níu. Það er útvarpskonanHrafnhildur Halldórsdóttir sem kom í heimsókn til okkar en flest okkar ættu að kannast við rödd hennar úr Síðdegisútvarpinu á Rás2.

    Hrafnhildur hóf að leika golf fyrir um 20 árum og varð alvegheilluð af golfíþróttinni. Svo heilluð að hún hefur leikið alla golfvelli á Íslandi. Það tókst henni í sumar með því að ferðast ásamt eiginmanni sínum á húsbíl um landið með það að markmiði að spila þá golfvelli sem varð á vegi þeirra.

    Í þættinum fáum við Hrafnhildi til velja topplista yfirbestu níu holu golfvelli landsins sem hún hefur spilað. Þar koma margir stórskemmtilegir vellir við sögu. Hrafnhildur velur einnig draumahollið og svo mælir hún sérstaklega með því að leika golf í Þýskalandi og Austurríki.

    Við komum víða við í þættinum og Hrafnhildur segir okkur frá því að Írinn Shane Lowry sé hennar uppáhalds kylfingur. Frábær þáttur!

    58 min
  • #81 - Sigurvin þolir ekki leiðinlegar golfsögur

    Við fáum góðan gest í Seinni níu í þessari viku en knattspyrnuþjálfarinn Sigurvin Ólafsson kemur í heimsókn til okkar. Sigurvin er alin upp í Vestmannaeyjum og byrjaði ungur að leika sér í golfi en hefur aldrei almennilega hellt sér í golfið.

    Venni er ekki alveg með á hreinu hver forgjöfin er en er sagt að hann sé með óþolandi fallega golfsveiflu. Hann hefur sjaldnast frumkvæðið að því að fara í golf og leikur með gömlum notuðum kylfum. Venni er því nokkuð frábrugðin flestum af okkar gestum sem eru forfallnir golfáhugamenn.

    Í þættinum tengjum við aðeins saman mismunandi tegundir golfhögga og spyrnutækni. Venni velur draumahollið og kemur með með Powerrank yfir þá hluti sem hann þolir ekki í golfi. Falskar vonir og leiðinlegar golfsögur koma þar við sögu.

    Frábær þáttur þar sem við tengjum saman golf og fótbolta á einstakan hátt.

    59 min
  • #80 - Egill Einarsson er með 7 golfkennara

    Við í Seinni níu erum staddir á Ítalíu en fáum frábæran gest í þáttinn. Egill Einarsson mætir til okkar og fer yfir það hvernig það sé að vera byrjandi í íþróttinni.

    Egill byrjaði í vor og golfíþróttin hefur heltekið hann. Hann er að vinna með 7 golfkennurum að því að ná betri tökum á íþróttinni.

    Í þættinum ræðum við um golf á skemmtilegum nótum en Egill kemur með frábært Powerrank, velur draumaholl og svarar spurningum frá hlustendum.

    Frábær þáttur þar sem við fáum mjög skemmtilegt sjónarhorn frá einum af okkar efnilegustu kylfingum.

    Carton af boltum kemur við sögu í þættinum.

    1 hr 4 min
  • #79 - Ryder-bikarinn gerður upp frá Royal Troon

    Það var líf og fjör á Ryder-bikarnum um helgina þar sem Evrópu vann góðan sigur. Mikil spenna var á lokadeginum eftir óvænta viðspyrnu Bandaríkjamanna í síðustu umferð. Í nýjasta þætti Seinni níu er farið á faglegu nótunum yfir þetta frábæra mót.

    Logi og Jón eru staddir í Skotlandi og er þátturinn tekinn við 18. brautina á Royal Troon vellinum. Logi kemur með Powerrank yfir fimm bestu hlutina við Skotland þar sem krákur koma óvænt við sögu.

    Við sendum stuðningsyfirlýsingu til lýsenda, förum yfir það hvernig það er að fara næstum því holu í höggi og ræðum það áfall að flugfélagið PLAY sé hætt rekstri.

    45 min
  • #78 - Ingi Rúnar er með sex ása á ferilskránni

    Við fáum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu en Ingi Rúnar Gíslason, kylfingur, golfkennari og sölumaður Titleist hjá ÍSAM kemur í heimsókn til okkar.

    Í þættinum hitum við upp fyrir Ryder-bikarinn en Ingi Rúnar mun lýsa mótinu um helgina. Við spáum aðeins í spilin og erum sammála um að þetta verði hörkumót.

    Við duttum aðeins á tæknilegar nótur í þættinum að þessu sinni. Meðal annars segir Ingi okkur frá því að kaupa alls ekki vatnabolta.

    Ingi fór aðeins yfir ferilinn sem golfkennari en hann hefur meðal annars þjálfað Heiðar Davíð Bragason, Kristján Þór Einarsson og Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson. Ingi segir okkur frá lífi golfkennarans og tekur það sér á Powerranka fimm bestu æfingasvæðin á Íslandi í dag.

    Ingi hefur sex sinnum farið holu í höggi og þar af á hann albatross á 10. braut á Akranesi. Hann rifjar þetta upp, Loga til ómældrar gleði.

    Draumahollið og ýmislegt stórskemmtilegt á sínum stað í þessum frábæra þætti.

    1 hr 9 min
  • #77 - Fannar fór holu í höggi en átti að vera á fundi

    Við fáum til okkar einn þekktasta áhrifavald landsins í íslensku golfi því Fannar Már Jóhannsson kom í heimsókn til okkar. Fannar Már þekkja margir sem Fannar golf en hann hann hefur síðastliðið ár gert frábært efni af golfvellinum á Instagram og TikTok.

    Fannar fer aðeins yfir það ferli að búa til svona efni og viðbrögðin. Fannar segir okkur einnig frá því þegar hann fékk alveg nóg af golfi um 16 ára aldur og hætti að spila golf. Sem betur fer fékk hann aftur golfdellu nokkrum árum síðar á lokastigi og starfar nú sem markaðsstjóri Golfsambands Íslands.

    Í þættinum segir Fannar okkur frá því þegar hann fór holu í höggi í annað sinn í sumar á 4. holu á Jaðarvelli. Það var margt frábært við það atvik sem Fannar greinir skemmtilega frá.

    Fannar velur draumahollið, kemur með Powerrank með fimm bestu 9 holu velli landsins og svarar spurningum frá hlustendum. Frábær þáttur í alla staði.

    1 hr 3 min
  • #76 - Aron Pálmarsson drævar yfir 250 metra

    Við fengum frábæran gest í þátt vikunnar af Seinni níu því handboltamaðurinn Aron Pálmarsson kom í heimsókn. Aron var að ljúka mögnuðum handboltaferli á dögunum og er nú orðinn forfallinn kylfingur. Hann ætti því að hafa meiri tíma fyrir golfið núna þegar hann er hættur í handboltanum.

    Aron byrjaði ungur í golfi en spilaði lítið á meðan handboltaferlinum stóð. Hann byrjaði aftur að spila þegar hann fluttist til Barcelona og er í dag með um 7 í forgjöf.

    Óhætt er að segja að sveifluhraðinn komi beint úr handboltanum því Aron getur slegið mjög langt og hátt með drævernum eða allt að 250 metra í réttri vindátt.

    Aron velur draumahollið en kemur jafnframt með frábært Powerrank yfir það sem hann þolir ekki í golfi. Einnig deilir hann með okkur þeirri upplifun að fara holu í höggi á Hvaleyrarvelli.

    Frábær þáttur með einum af okkar dáðustu íþróttamönnum.

    1 hr 6 min
  • #75 - Valdís Þóra var lengi að jafna sig eftir dramatískt viðtal

    Gestur vikunnar í Seinni níu er Valdís Þóra Jónsdóttir frá Akranesi. Hún er þrefaldur Íslandsmeistari í golfi og hefur náð einna lengst íslenskra atvinnukylfinga. Hún lék á Evrópumótaröð kvenna en náði einnig að leika á tveimur risamótum ferlinum.

    Í þættinum förum við yfir ferilinn og erfið bakmeiðsli sem urðu þess valdandi að hún þurfti að hætta golfiðkun fyrir nokkrum árum. Valdís er þó eitthvað farin að spila golf að nýju.

    Valdís fer einnig yfir þá miklu gagnrýni sem hún hlaut eftir viðtal á Íslandsmótinu í golfi árið 2016. Sú gagnrýni sat lengi í henni og varð til þess að hún breytti því hvernig hún nálgaðist fjölmiðla.

    Valdís kemur með frábært Powerrank og velur einnig draumahollið.

    Frábær þáttur á mjög einlægum nótum.

    1 hr 2 min
  • #74 - Neal Shipley upplifði drauminn og lék með Tiger á Masters

    Í þessari viku fáum við frábæran gest því PGA-kylfingurinnNeal Shipley kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þetta er í fyrsta sinn sem við tökum Seinni níu upp á ensku sem er skemmtileg tilbreyting. Shipley var á landinu í síðustu viku og hóf heimsóknina til Íslands á því að koma í Seinni níu.

    Shipley er 24 ára gamall og vann sér inn keppnisrétt áPGA-mótaröðinni á næstu leiktíð. Hann er nú þegar orðinn einn af eftirlætiskylfingum okkar í Seinni níu. Fyrir áhugasama þá kemur Shipley við sögu í þáttunum Full Swing á Netflix.

    Saga Shipley er áhugaverð. Hann varð í öðru sæti á Opnabandaríska áhugamannamótinu árið 2023 sem gaf honum keppnisrétt bæði á Masters og Opna bandaríska meistaramótinu árið eftir. Á báðum mótum fór hann í gegnumniðurskurðinn og lék lokahringinn á Master með Tiger Woods. Hann fer aðeins yfir þá upplifun að leika með Tiger í þættinum.

    Í ár hefur hann staðið sig frábærlega á Korn Ferrymótaröðinni og hefur tryggt sér fullan keppnisrétt á PGA-mótaröðinni á næstu leiktíð.

    Shipley hefur skemmtilega tengingu til Íslands en hann ergóður vinur Sigurðar Bjarka Blumenstein sem er einn af okkar bestu kylfingum. Þeir voru saman í háskóla í Bandaríkjunum og er mestu mátar.

    Í þættinum fáum við innsýn inn í hugarheim hjá atvinnukylfingi sem er að leika á sterkustu mótaröð í heimi og hvernig það sé fyrir ungan mann að vera kominn á þennan stað. Shipley velur draumahollið og kemur víða við í mjög fróðlegu og skemmtilegu spjalli.

    Seinni níu er í boði:

    ✈️- PLAY

    💊- Unbroken

    👟- ECCO

    🥻 - J. Lindeberg - ntc.is

    ⛳- Eagle Golfferðir

    🚗- XPENG - xpeng.com/is

    🧼- Lindin bílaþvottastöð

    🏚️ - Betri stofan fasteignasala

    🏌️‍♀️- Golfsvítan

    🔋- HS Orka

    😎 - Nivea

    🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun

    🥑 - Hjá Höllu

    👷‍♂️ - Giggo

    59 min

About Seinni níu

From the publisher's feed

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.

Best of Seinni níu

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Seinni níu

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners