Seinni níu

Seinni níu

By Logi Bergmann og Jón Júlíus KarlssonSportsGolf
Download on the App Store

Seinni níu episodes

  • #93 - Banatilræði Sigurðar Kára við forsætisráðherra í Vestmannaeyjum

    Við fáum til okkar frábæran gest í fyrsta þátt ársins 2026. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fv. þingmaður, mætti til okkar í skemmtilegt spjall um golf.

    Sigurður Kári er með ca 11 forgjöf um þessar mundir og dreymir um að komast í einna tölu forgjöf. Hann hefur leikið golf um árabil og sagði okkur frá því þegar hann féll fyrir íþróttinni í útskriftarferð úr framhaldsskóla. Í þættinum förum við yfir hæðir og lægðir í golfinu en um tveggja ára tímabili týndi Siggi Kári hreinlega sveiflunni.

    Að venju er draumahollið á sínum stað en Siggi bauð okkur jafnframt upp á frábæra kraftröðun þar sem banatilræði við þáverandi forsætisráðherra við golfiðkun í Vestmannaeyjum ber á góma.

    Sigurður Kári er jafnframt bróðir Hafrúnar Kristjánsdóttur sem var gestur okkar í Seinni níu á árinu 2024. Þau eru því fyrstu systkinin til að mæta í Seinni níu.

    Mjög skemmtilegur þáttur að vanda og allir léttir. Gleðilegt nýtt ár!

    1 hr 6 min
  • #92 - Áramótaþáttur Seinni níu

    Nú er komið að síðasta þætti ársins af Seinni níu. Líkt ogjólaþátturinn okkar þá er áramótaþátturinn uppfullur af skemmtilegum brotum úr þáttum ársins. Í þættinum er rætt kylfinga á öllu getustigi. Allt frá atvinnumönnum í golfi til byrjenda og eiginlega allt þar á milli.

    Meðal þeirra sem bregða við í þættinum eru Bjarni Benediktsson, Gummi Ben, Sigríður Andersen, Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Eva María Jónsdóttir og fjölmargir af þeim stórskemmtilegu viðmælendum sem komu til okkar í Seinni níu á árinu.

    Við í Seinni níu viljum þakka samfylgdina á árinu sem er að líðaog hlökkum til að hefja golfárið 2026 af krafti. Við mætum svo með nýjan þátt og nýjan viðmælenda í fyrstu viku nýs árs.

    Gleðilegt nýtt ár!

    2 hr 7 min
  • #91 - Jólaþáttur Seinni níu

    Árið 2025 hefur verið frábært hjá okkur í Seinni níu. Af því tilefni ætlum við að gefa út tvo samantektarþætti með skemmtilegum umræðum við gesti okkar á árinu.

    Fyrri þátturinn kemur út á aðfangadag og sá síðari á gamlársdag. Þættirnir eru báðir um tvær klukkustundir en þar reynum við þar að grípa niður á skemmtileg augnablik í þeim ca 50 þáttum sem við höfum gefið út á árinu.

    Við óskum kylfingum landsins gleðilegra jóla og þökkum samfylgdina á árinu!

    2 hr 2 min
  • #90 - Óli Jó leitar að golfboltum í svartamyrkri

    Við fáum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna því Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og knattspyrnuþjálfari, kemur í heimsókn og ræðir aðallega um golf. Ný bók var að koma út um Ólaf þar sem hann gerir upp litríkan þjálfaraferil.

    Það var létt yfir Óla Jó en hann hefur leikið golf frá unga aldri. Hann var snemma farinn að venja komur sínar út á Hvaleyri og hefur verið félagsmaður í Keili um árabil. Óli er núna með um 13 í forgjöf og er að eigin sögn seigur í kringum flatirnar.

    Nú þegar þjálfaraferilinn er að baki hefur Óli verið duglegur að spila. Hann býr nú hluta ársins á Spáni og reynir að spila mikið þegar hann er búsettur á Spáni. Í þættinum er komið víða við en einna merkilegast er það áhugamál hjá Ólafi að leita að golfboltum í svartamyrkri á golfvöllum. Hann fer reglulega og hefur týnt upp tugþúsundir golfbolta. Ótrúleg frásögn.

    Draumahollið er á sínum stað og svo velur Óli sínareftirlætis golfholur. Frábær þáttur á laufléttum nótum eins og alltaf.

    1 hr 6 min
  • #89 - Bogi Nils fór í dáleiðslu til að laga vippin

    Við fáum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Bogi NilsBogason, forstjóri Icelandair, kíkir í heimsókn til okkar. Bogi er mjög flottur kylfingur með um 4,5 í forgjöf og hóf ungur að leika golf á Eskifirði þar sem hann ólst upp og er enn skráður í klúbbinn á sínum heimaslóðum. Hann er líka félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur og býr við Korpúlfsstaðavöll.

    Bogi sinnir auðvitað stóru hlutverki í einu mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann notar því golf til þess að reyna kúpla sig út úr amstri hversdagsins. Hann nefnir að tvígang hafi vinnutengdir hlutir eyðilagt fyrir honum golfhring og árið 2020 eyðilagi kjarabarátta við eina af stéttum félagsins fyrir honum fyrsta hring í Meistaramóti GR.

    Í þættinum er komið víða. Bogi fer yfir vandræði karlhluta fjölskyldunnar við að fara holu í höggi. Hann velur jafnframt draumahollið þar sem afar ólíkir kylfingar koma saman. Einnig fengum við Boga til að kraftraða fimm bestu flugvellina með tilliti til gæði golfvalla í nálægð við flugvöll.

    Við fáum að heyra með hvaða heimþekktu kylfingum Bogi hefur leikið með en hann hefur í þrígang leikið með Big Easy, Ernie Els, sem er að sögn Boga einstaklega léttur og skemmtilegur.

    Boga segir okkur frábæra sögu af púttharmleik á 18. holu í Grafarholti og einnig hvernig hann nýtti sér dáleiðslu til að reyna að laga vippin sem hafa verið að plaga hann að undanförnu.

    Frábær þáttur sem á erindi við allt golfáhugafólk!

    1 hr 18 min
  • #88 - Jón Bjarki braut tvær kylfur og fór svo holu í höggi

    Við fáum skemmtilegan gest til okkar í þessari viku í Seinni níu. Jón Bjarki Oddsson kemur í heimsókn en hann starfar sem kírópraktor og sinnir því fjölmörgum kylfingum sem eru að glíma við meiðsli af einhverju tagi.

    Jón Bjarki er hörku kylfingur með um 1 í forgjöf. Hann er með golfhermi á skrifstofunni þar sem hann sinnir störfum sem kírópraktor sinnir því bæði meðferðum og kennir golf. Jón Bjarki gaf einnig út skemmtilega bók um golf fyrr á þessu ári sem er mjög áhugaverð.

    Í þættinum segir Jón okkur margar skemmtilegar sögur af sér í golfi. Meðal annars frá ótrúlegum sviptingum á lokadegi í meistaramóti í Mosfellsbæ. Sömuleiðis fáum við að heyra mjög skrautlegar sögur af ásum sem seint verða toppaðar.

    Frábær þáttur þar sem við komum víða við. Draumahollið og powerrank á sínum stað. Svo óskuðum við Loga líka til hamingju með afmælið.

    1 hr 4 min
  • #87 - Heimir Karls vann bæði Anniku og Monty

    Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu en hann hefur spilað golf um árabil. Heimir náði þeim einstaka árangri að verða bæði Íslandsmeistari í fótbolta og handbolta.

    Í seinni tíð hefur hann einbeitt sér að golfinu og náði best rétt undir 10 í forgjöf. Í dag er Heimir með um 16 í forgjöf og kveðst vera sterkastur í innáhöggunum. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur og er einnig nýlega skráður í Golfklúbb Öndverðarness.

    Í þættinum er komið víða við. Heimir segir okkur frá því hvernig hann fór tvívegis holu í höggi. Sömuleiðis segir hann okkur frá því þegar hann vann bæði Colin Montgomerie og Anniku Sörenstam á einni holu í golfi.

    Heimir kemur með topplista yfir golfholur með bestu teigstæðin og velur draumahollið. Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf!

    1 hr 12 min
  • #86 – Þórhallur fann draumahúsið á golfvellinum

    Við fáum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna því tilokkar kemur Þórhallur Sverrisson sem er einna best þekktur fyrir að hafa leikið aðalhlutverkið í kvikmyndinni Íslenski draumurinn. Myndin fagnaði 25 ára afmæli fyrir skömmu og því rifjum við aðeins upp þá frábæru kvikmynd auk þess að ræða auðvitað um golf.

    Þórhallur er rétt undir 10 í forgjöf og spilar mjög reglulega.Hann byrjaði að spila fyrir um 20 ár og leikur aðallega á sínum heimavelli sem er GKG. Hann fann raunar draumahúsið við að spila golf á Leirdalnum og býr rétt fyrir ofan 12. braut vallarins – þar sem stundum koma golfboltar inn á pallinn hjá honum.

    Þórhallur kemur með frábæran lista yfir bestu augnablikinsín í golfi og velur jafnframt draumahollið með þremur sterkum kylfingum. Í þættinum er komið víða við og einnig rætt um breytingar á reglum sem snýr að notkun golfbíla hjá Golfklúbbi Reykjavíkur sem hefur valdið smá fjarðafoki.

    1 hr 5 min
  • #85 - Kristján Þór sjankaði á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum

    Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara í heimsókn þessa vikuna þegar Kristján Þór Einarsson mætti til okkar í Seinni níu. Kristján varð Íslandsmeistari í golfi árin 2008 og 2022. Í bæði skiptin komu titlarnir í Vestmannaeyjum.

    Í þættinum rekur Kristján aðeins keppnisferilinn, velur fimm bestu keppnisgolfholur landsins. Hann segir okkur jafnframt frá sínum mesta ótta í golfi sem er að sjanka. Kristján segir okkur skemmtilega frá því þegar hann sjankaði í beinni útsendingu á Íslandsmótinu í golfi árið 2022 þar sem hann stóð að lokum uppi sem sigurvegari.

    Já þessir bestu eru víst mannlegir eftir allt saman.

    Frábær þáttur með einum af sigursælasta kylfingi landsins.

    1 hr 10 min
  • #84 - Reiðilestur frá Bogdan ýtti Arnari yfir í golf

    Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna þegarArnar Már Ólafsson, golfkennari og frumkvöðull í golfkennslu, kom í heimsókn til okkar. Arnar ræddi við okkur um golf í yfir klukkustund en hann er einn færasti golfkennari landsins og hefur þjálfað marga af bestu kylfingum Íslands.

    Í þættinum fer Arnar aðeins fyrir ferilinn í golfkennslu enhann er nýlega kominn aftur heim til Íslands eftir langa dvöl í Þýskalandi. Arnar segir okkur frá því að hann hafi þurft að fara erlendis að þjálfa enda fáir í golfkennarafaginu hér heima á þeim tíma. Tímarnir hafa svo sannarlega breyst enda er sannkölluð golfsprengja í gangi á Íslandi.

    Arnar er nýlega byrjaður að spila golf af krafti á nýjanleik og er það ekki síst fyrir tilstilli nýrrar tækni í hugbúnaðinum ELVA Golf sem Arnar hefur tekið þátt í að þróa. Með þeirri tækni gat Arnar farið að þjálfa sjálfan sig en ELVA Golf er nákvæm sveiflumæling án skynjara sem hefurvakið athygli á heimsvísu. Arnar útskýrir aðeins fyrir okkur þessa nýju tækni sem er almenningi aðgengileg.

    Í þættinum velur Arnar Már draumahollið. Við fáum skemmtilegan topplista þar sem Arnar velur bestu kylfinganna sem hann hefur þjálfað á ferlinum.

    Mjög skemmtilegt og fróðlegt spjall við einn bestagolfkennara landsins. Arnar segir okkur jafnframt frá örlagaríku atviki sem varð þess valdandi að hann hætti í handbolta og lagði áherslu á golfið. Handboltaþjálfarinn Bogdan Kowalczyk og heilahristingur kemur þar við sögu.

    1 hr 8 min

About Seinni níu

From the publisher's feed

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.

Best of Seinni níu

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Seinni níu

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners