Víðsjá

Sköp, myndlistarrýni, Egla, nautnagarður


Listen Later

Í Víðsjá í dag verður meðal annars fjallað um 33ja metra löng kvensköp í almenningsgarði sem hafa valdið blóðheitum umræðum í Brasilíu og víðar. Listakonan á bak við verkið vildi varpa ljósi á þann ójöfnuð og þau vandræði sem kynferði getur skapað en bjóst alls ekki við að það kveikti jafn hatursfulla orðræðu og raun hefur borið vitni. Torfi Tulinus les kvöldsöguna, Egils sögu, fyrir hlustendur Rásar 1 þessa dagana, hann hóf lesturinn á föstudag. Víðsjá fylgist grannt með og ræðir af þessu tilefni við Torfa um Egils sögu út frá ýmsum vinklum. Í dag svarar Torfi spurningunni: Hvað vitum við um Egils sögu? Hugað verður meðal annars að handritum og ritunartíma. Í myndlistarpistli dagsins fjallar Ólöf Gerður Sigfúsdóttir um tvær yfirlitssýningar sem nú standa yfir í Listasafninu á Akureyri, sýningar sem eru afar ólíkar en vekja upp áhugaverðar spurningar um listina og samspil hennar við hversdagsleikann annars vegar og opinber söfn hins vegar. Þetta eru sýningarnar Kristín Th - málverk og ljósmyndir, þar sem gefur að líta verk eftir Kristínu Katrínu Þórðardóttur Thoroddsen, og Lengi skal manninn reyna, sem er umfangsmikil yfirlitssýning um ævi­fer­il lista­manns­ins Þor­vald­ar Þor­steins­son­ar sem lést árið 2013. Einnig verður sagt frá fornfrægum nautnagarði sem fundist hefur við fornleifauppgröft suður í Rómaborg.
Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

VíðsjáBy RÚV

  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5

4.5

2 ratings


More shows like Víðsjá

View all
Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,919 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

9 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

41 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

4 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners