
Sign up to save your podcasts
Or


Forseti Íslands var með skilaboð til þjóðarinnar í þættinum. Við horfðum til ferðaþjónustunnar og heyrðum líka í sóttvarnarlækni. Óli Guðmunds ræddi nýja einbreiða brú og holur í veginum og stjórnarandstaðan vill vera með í ráðum varðandi aðgerðir í faraldrinum. Í lokin opnuðum við svo tæknihornið.
Þennan mánudaginn heyrðum við af innflutningi á tarantúlum og fésuglum, og heyrðum svo í framkvæmdastýru kvennaathvarfsins um heimilisofbeldi. Skemmtiferðaskip verða sjaldséð næsta sumar en vinnutækjum á vegum mun fjölga enda framkvæmdir framundan.
Þjóðinni barst vegleg gjöf í dag og við heyrðum í gefandanum. Köttur hefur greinst með covid-19 í Belgíu og nýtt áfengisfrumvarp liggur á borðinu. Hvað er að frétta af leigumarkaði og kannski ekki síst bílaleigumarkaði? Við könnuðum stöðuna á fæðuöryggi þjóðarinnar og heyrðum loks af miklu álagi á hjálparsíma Rauða krossins.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Við ræddum um fjölskylduna í upphafi þáttarins og heyrðum svo af aðgerðapakka borgarinnar vegna faraldursins. Við ræddum um bakvarðasveitina, fjölmiðlamarkaðinn, dauðar kanínur í Elliðaárdal og ýmislegt fleira.
From the publisher's feed
Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28. ágúst árið 1986.

7 Listeners

462 Listeners

6 Listeners

24 Listeners

11 Listeners

15 Listeners

4 Listeners

28 Listeners

19 Listeners

15 Listeners

1 Listeners

8 Listeners

27 Listeners

15 Listeners

1 Listeners