Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

By Birtingur UtgafufelagComedyHistoryKids & Family
Download on the App Store

Lífsreynslusögur Vikunnar episodes

  • lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Falin veikindi: 

    „Ég vissi að nágrannakona mín væri skapbráð en ekki að hún legði hendur á barn sitt sem var fjarlægt af heimilinu tímabundið. Ekki löngu síðar frétti ég að hún glímdi við vissan sjúkdóm sem gæti skýrt ofsann sem hafði víst hrjáð hana. Um svipað leyti komst ég að því að ljúfa amma mín hefði sannarlega ekki verið lamb að leika við þegar mamma og systkini hennar voru lítil.“



    - Örlagarík heimsókn í sveitina: 


    „Frænka mín hafði átt frekar erfitt líf, upplifði einelti í grunnskóla og síðar á vinnustað. Hún þótti svolítið sérstök og var ekki allra, en þegar hún flutti í sveitina upp úr þrítugu byrjaði hún að blómstra fyrir alvöru.“



    - Þegar læknar bregðast:


    „Saga fjölskyldu minnar er svo ótrúleg að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Á síðasta ári urðu atburðir sem gera það að verkum að ég get ekki treyst íslensku heilbrigðiskerfi og við sitjum uppi í sárum vegna alvarlegra læknamistaka.“



    - Lærdómsrík tímasóun:


    „Fyrir nokkrum árum átti ég í skrítnu haltu-mér-slepptu-mér sambandi við mann sem ég var hrifin af. Sambandið var reyndar platónskt því hvorugt okkar tók af skarið. Eftir á að hyggja fór mér að finnast þetta svolítið fyndið, tvær fullorðnar manneskjur sem fóru í kringum hlutina eins og köttur í kringum heitan graut þar til neistinn hvarf.“



    - Hefndin snert í höndunum á honum:


    „Hjónaband systur minnar var erfitt en henni tókst fyrir rest að rífa sig lausa úr því. Þegar fyrrverandi maðurinn hennar hélt að honum hefði tekist að hefna sín illilega á henni snerist hefndin þó í höndunum á honum ...“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    42 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Fornar ástir fyrnast ei: 

    „Lífið kemur manni sífellt á óvart og það sannaðist sannarlega á foreldrum mínum þegar tilvera þeirra beggja snerist við en þá voru þau fyrir löngu skilin hvort við annað. “ 


    - Óheillakrákan: 

    „Mjög sorglegur atburður átti sér stað á unglingsárum mínum þegar ég passaði barn úti á landi eitt sumarið. Löngu seinna hitti ég konu, góða vinkonu á þessum tíma, en ég hafði þurrkað tilvist hennar algjörlega út úr minni mínu. “


    - Vinkona í gullbúri: 

    „Besta vinkona mín var gift manni sem bannaði henni að tala við mig eftir að mér og honum lenti saman. Þegar við vinkonurnar hittumst loks aftur mörgum árum seinna, var það við sérstakar kringumstæður. “


    - Heppnust í heimi: 

    „Þegar ég var fimmtán ára fékk ég vægast sagt erfiðar fréttir. Fólkið sem ég hafði þekkt alla ævi

    sem mömmu og pabba sagði mér að þau hefðu ættleitt mig þegar ég var nýfædd. Ég varð bálreið

    og ákvað að að finna „alvöruforeldra“ mína. “


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    40 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - lllt er að leggja ást við þá sem enga kunna á móti: 

    „Frá því að ég var barn hefur mér fundist sjálfsagt að ég myndi gifta mig og eignast börn. Ég fann líka að allir aðrir gerðu ráð fyrir þessu. Mamma talaði stundum um ömmubörnin sem hún ætti von á í framtíðinni við okkur systurnar og það áður en við urðum kynþroska. Út af fyrir sig er þetta auðvitað eðlilegt því innst inni langar flesta að eignast góðan maka og falleg börn.“ 


    - Hann bankaði á gluggann minn: 

    „Þegar ég hitti Sigga var hann efnilegur íþróttamaður og á uppleið á vinnustaðnum sínum. Hann var skemmtilegur, ákveðinn og þægilegur í umgengni. Mér hefði aldrei dottið í hug að hlutirnir gætu snúist svo algerlega við á stuttum tíma og raunin varð. Á endanum fannst mér ég ekki eiga annars úrkosti en að skilja en sú ákvörðun kostaði mig bestu vinkonu mína þegar maðurinn hennar bankaði á gluggann hjá mér.“ 


    - Ég vissi ekki að ég var beitt ofbeldi: 

    „Ég var fimmtán að verða sextán ára þegar ég kynntist manninum mínum. Hann var tíu árum eldri en ég, vinnufélagi föður míns og mjög trúaður, eins og pabbi og mamma. Við fórum að vera saman eftir að ég lét undan þrýstingi hans og svaf hjá honum kvöld nokkurt en enginn hafði sagt mér að gæti sagt nei. Í fimmtán ár eftir það bjó ég við mikið ofbeldi án þess að gera mér grein fyrir því.“ 


    - Barnaníðingur í hárri stöðu: 

    „Þegar ég var sautján ára fékk ég vinnu á sveitahóteli. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór að heiman ein og ég var mjög spennt. Vinkona mín hafði fengið vinnu á hestabúgarði í nágrenninu og við ætluðum að skemmta okkur vel þetta sumar og það gekk sannarlega eftir, að undanskildu einu ljótu atviki.“ 


    - Amma kom fyrir mig vitinu: 

    „Mörgum árum eftir skilnað foreldra minna áttaði ég mig á því að mömmu hafði nánast tekist að eyðileggja samband mitt við pabba.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    36 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Kennari á flótta ...: 

    „Tóta vinkona kynntist manninum sínum undir nokkuð sérstökum kringumstæðum. Það má segja að hann hafi hlaupið í fangið á henni, á flótta undan ágengri konu.“ 


    - Falskur og fláráður: 

    „Ég ólst upp í bæ á landsbyggðinni. Bekkjarbróðir minn í grunnskóla þótti stríðinn en í dag myndi hegðun hans vera kölluð einelti. Við erum báðir iðnaðarmenn og störf okkar hafa nokkrum sinnum skarast, síðast þannig að ég mun aldrei starfa með honum eða tala við hann framar.“ 


    - Hræðileg hótelstýra: 

    Eitt sumar fyrir mörgum árum vann ég á hóteli úti á landi. Það var ótrúleg reynsla og hef ég hvorki fyrr né síðar átt yfirmann á borð við hótelstýruna sem stjórnaði öllu með harðri hendi og var óheiðarleg að auki.“ 


    - Sökuð um vanrækslu af læknum: 

    „Þegar sonur minn fæddist ríkti mikil gleði í fjölskyldunni. Hann var fyrsta karlkyns barnabarn foreldra minna en við systkinin áttum fyrir stóran stelpnahóp. Það var oft gert grín að því að pabbi, sem er mikill tónlistarmaður, gæti auðveldlega stofnað kvennakór með dætrum sínum og afabörnum.“ 


    - Lúmskur og lyginn yfirmaður: 

    „Fyrir nokkrum árum vann ég hjá fyrirtæki þar sem var ákaflega góður mórall. Á skrifstofunni starfaði hópur kvenna og við vorum allar vinkonur. Ég hlakkaði til að koma í vinnuna allt þar til skipt var um yfirmann.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    42 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Ó, ó, óbyggðaferð: 

    „Eitt árið lenti ég í nokkrum kröggum og þurfti aðstoð við að koma málum mínum í lag. Konan sem aðstoðaði mig í gegnum það ferli varð ágæt vinkona mín og ég er alsæll með að eiga smáþátt í því að hún fann hamingjuna.“ 


    - Dropinn holar steininn: 

    „Ég var gift í rúman áratug yndislegum manni. Það skyggði samt á hamingju mína hvernig tengdamóðir mín kom fram við mig. Ég var aldrei nógu fín fyrir son hennar.“ 


    - Í hefndarhug: 

    „Vinkona mín var um árabil gift virtum manni sem gegndi ábyrgðarmiklu embætti. Heima fyrir var hann svo stjórnsamur að það var nánast fyndið, ef það hefði ekki kostað vinkonu mína áratugi nánast í fangelsi ... í gullbúri þó.“ 


    - Hættuleg níska: 

    „Fyrri maðurinn minn var með eindæmum sparsamur og versnaði bara með aldrinum. Fyrst fannst mér þetta í lagi því sjálf er ég engin eyðslukló en svo fór þetta að verða þreytandi. Eitt atvik varð til þess að mér varð endanlega nóg boðið.“ 


    - Nýja mamman: 

    „Ég var sjö ára þegar ég missti móður mína og að verða níu ára þegar pabbi fór að vera með annarri konu. Konan var aldrei beint vond en hún gætti þess að halda góðri fjarlægð milli sín og okkar systkinanna.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    42 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Facebook, fyrst með fréttirnar: 

    „Þegar ég var ófrísk að eldra barninu mínu vorum við hjónin búsett erlendis. Ég kom heim til Íslands til að fæða barnið og maðurinn minn ætlaði að koma síðar, eða nokkru fyrir settan fæðingardag, til að vera viðstaddur. Örlögin áttu þó eftir að grípa í taumana.“ 


    - „Leið best þegar henni tókst að græta mig“: 

    „Ég átti frekar erfiða æsku og enn erfiðari móður. Að þurfa að kljást við hana kenndi mér margt og kom mér oft í gegnum erfiðar áskoranir.“ 


    - Nýfráskildir í röðum ...: 

    „Áður en ég fór að vera með seinni manninum mínum elskulegum átti ég í nokkrum samböndum, sumum eftirminnilegri en öðrum.“ 


    - Misheppnuð afskipti ...: 

    „Þegar foreldrar æskuvinkonu minnar fóru að eldast og heilsan að bila gerðu þeir miklar breytingar á lífi sínu að áeggjan barna sinna. Síðar kom í ljós að betra hefði verið að skipta sér ekki af þótt hugurinn að baki hefði verið góður.“


    - Í álögum: 

    „Mér leist ekki sérlega vel á manninn sem yngri systir mín féll fyrir og giftist en ákvað að gefa honum tækifæri. Með tímanum komst ég að því hvern mann hann hafði að geyma og sá var ekki fagur.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    40 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Í sambúð með fíkli án þess að vita það: 

    „Sextán ára kynntist ég strák sem ég varð yfir mig ástfangin af. Hann var blíður og góður og ólíkt flestum strákum í kringum mig drakk hann ekki. Mér fannst það gott, enda er pabbi minn alkóhólisti og ég vildi sannarlega ekki feta í fótspor mömmu og búa með einum slíkum. Ég taldi mig hafa fundið sálufélaga minn og framtíðarmaka en annað kom á daginn.“


    - Ofnæmi er hættulegur sjúkdómur: 

    „Sonur minn er með ofnæmi fyrir ýmsu og þar á meðal bráðaofnæmi fyrir hnetum og rækjum. Honum liður líka mjög illa innan um flestöll dýr. Mér finnst fólk almennt ekki skilja hversu alvarlegt þetta er. Öllum finnst til dæmis sjálfsagt að koma með dýrin sín upp að honum og sumir verða móðgaðir þegar ég segi að að þeir séu að gera syni mínum mikinn óleik. Víða vantar líka mikið á hvað varðar merkingar vöru.“


    - Siðblind vinkona: 

    Við Jóna kynntumst á leikvellinum í hverfinu okkar þegar við vorum fimm ára. Við urðum samferða gegnum barnaskólann og héldum sambandi eftir að við fórum hvor í sinn framhaldsskólann. Fyrir nokkrum árum kaus ég þó að hætta öllum samskiptum við hana og þegar ég frétti nýlega að hún væri flækt í fíkniefnaviðskipti varð ég ekkert hissa.“


    - Andstyggileg systir: 

    „Mikill aldursmunur er á mér og elstu systur minni. Hún var sextán ára þegar ég fæddist og svo virðist sem hún hafi alla tíð fundið fyrir mikilli andúð og reiði vegna tilkomu minnar. Ég á gott samband við öll systkini mín nema hana en hún kemur andstyggilega fram við mig.“


    - Erfið tengdadóttir: 

    „Vinkona mín stríðir mér stundum á því að ég eigi „mafíufjölskyldu“ sem stendur saman í blíðu og stríðu og vissulega er eitthvað til í því. Eldri sonur minn er þó giftur konu sem virðist ekki vilja tilheyra fjölskyldu okkar.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    37 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


    -Gersamlega úr jafnvægi:

    „Ég var í vinnunni að venju á sólríku eftirmiðdegi þegar ég fann fyrir svima og ógleði. Ég hélt að þetta myndi líða hjá en þegar það gerðist ekki gekk ég út og reyndi að jafna mig. Tilfinningin varð sífellt verri og ég ákvað því að fara heim þótt vinnudegi væri ekki alveg lokið og mér tókst með naumindum að komast inn á klósett heima áður en ég byrjaði að kasta upp.“


    - Við vorum þrjú í þessu hjónabandi:

    „Ég kynntist Steina í þriggja daga gönguferð um einn fallegasta stað á Íslandi. Hann var hrókur alls fagnaðar í ferðinni, indæll og ljúfur maður og ég kolféll fyrir honum. Þegar vinur hans sagði mér undir lok ferðar að Steini væri að jafna sig eftir erfið sambandsslit datt mér aldrei í hug að það myndi skipta neinu máli.“


    - Ógeðfelld makaleit:

    „Ég skildi við manninn minn fyrir bráðum níu árum. Ég var afskaplega ósátt þegar hann kvaddi mig að því er virtist gersamlega kalt og tilfinningalaust og fór að búa með konu sem er fjórtán árum yngri en ég. Það tók mig talsverðan tíma að jafna mig á svikunum en þegar ég var tilbúin að reyna á ný komst ég að því að makaleit er fremur ógeðfelld.“


    - Ástin fannst á óvæntum stað:

    „Við Óli urðum góðir vinir í menntaskóla. Hann studdi mig alltaf með ráðum og dáð og ég reyndi að endurgjalda það. Eins og flestir gengum við í gegnum ýmislegt í ástamálum og alltaf þegar ég varð fyrir vonbrigðum grét ég á öxlinni á Óla og hann kom ávallt til mín þegar honum leið illa yfir einhverjum stúlkum sem skildu ekki hvílíkur gullmoli hann var.“


    - Mér finnst ég föst í gildru:

    „Fyrir tveimur árum síðan komst ég að því að maðurinn minn hafði skráð sig á stefnumótasíðu á Netinu og hitti reglulega aðrar konur. Oft var hann „heppinn“ eins og hann orðaði það og fór með þeim heim og fékk þar kynlíf. Þetta var mér algjört áfall en hann var kaldur sem ís og setti mér úrslitakosti.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    39 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Erfiðir endurfundir: 

    „Ég fór á árgangsmót fyrr á þessu ári og hitti félagana úr barnaskóla sem var óskaplega gaman. Við hlið mér sat gömul vinkona sem ég hafði hlakkað sérlega mikið til að hitta. Allt viðmót hennar kom mér þó óþægilega á óvart og ég frétti síðar þetta sama kvöld að lífið hafði ekki farið mjúkum höndum um hana.“ 


    - Týnda frænkan: 

    „Afi hélt fram hjá ömmu og eignaðist barn með hinni konunni. Fjölskyldan sneri baki við afa og ég hitti hann aldrei. Áratugum síðar ákvað ég að reyna að finna barnið sem mátti helst ekki tala um, eða móðursystur mína.“


    - Besti pabbi í heimi: 

    „Mér fannst ég alltaf vera hálfutangarðs í eigin fjölskyldu. Ég gat þó leitað til pabba þegar mér leið illa og hann sýndi mér mun meiri væntumþykju en mamma gerði. Heimur minn hrundi þegar ég komst að því að hann var ekki líffræðilegur faðir minn.“ 


    - Með alla ásana á hendi: 

    „Æskuvinur minn bjó yfir ótalmörgum kostum, skaraði fram úr í námi og íþróttum, í raun bar hann af í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann hafði útlitið með sér að auki og naut mikillar kvenhylli.“ 


    - Eitt furðulegasta tímabil lífs míns: 

    „Þegar heilsan fór að bila fyrir nokkrum árum hélt ég fyrst að það stafaði af álagi og streitu. Einkennin versnuðu og ég varð sífellt hræddari. Læknirinn minn ráðlagði mér hvíld og venjulegt fólk í kringum mig breyttist í sérfræðinga sem taldi sig vita hvað amaði að mér og hvað væri til ráða.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    42 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Hlustaði ekki á viðvaranirnar: 

    „Fyrir fjöldamörgum árum féll ég fyrir afar sjarmerandi manni og lét sem vind um eyru þjóta viðvaranir vina minna sem sögðu hann siðblindan lygara.“ 


    - Allt er þegar þrennt er: 

    „Fyrir rúmum þrjátíu árum lentum við Svava vinkona í afar undarlegum aðstæðum en sonur hennar, þá ungbarn, bjargaðist frá bráðum bana á óútskýranlegan hátt. Segja má að lífi hans hafi verið þyrmt tvisvar í viðbót.“ 


    - Óvænt vinslit: 

    „Besta vinkona mín í æsku var Dóra. Hún bjó við sömu götu og ég og var heimagangur á heimili mínu. Einn daginn var henni bannað að umgangast mig vegna nokkurs sem foreldrar mínir áttu að hafa gert.“ 


    - Mömmuraunir: 

    „Ég á fjögur börn en mesta „fjörið“ hefur verið í kringum það elsta, soninn Aron. Hann hefur verið mikill gleðigjafi en fyrirferðin á honum var talsvert meiri en á hinum börnunum mínum öllum til samans.“ 


    - Draumahúsið okkar: 

    „Fyrir mörgum árum keyptum við hjónin gamalt hús. Ég hef alltaf verið næm og fann fyrir undarlegum og ekki góðum straumum þegar við skoðuðum það en hlustaði ekki á innsæið og húsið varð okkar.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    40 min

About Lífsreynslusögur Vikunnar

From the publisher's feed

Lífsreynslusögur með Guðrúnu Óla

Guðrún Óla blaðamaður hjá Vikunni, les upp lífsreynslusögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíðina, en hér er sannleikurinn lyginni líkastur!…

More shows like Lífsreynslusögur Vikunnar

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

122 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Mystík by Ghost Network®

Mystík

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners