Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar

By Birtingur UtgafufelagComedyHistoryKids & Family
Download on the App Store

Lífsreynslusögur Vikunnar episodes

  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Kvöldið sem ég kyssti stelpu: 

    „Ég hafði barist lengi við þá tilfinningu að laðast ekki að gagnstæðu kyni. Í mínum huga voru það óskráð lög að eignast kærasta og þegar ég varð fjórtán ára einsetti ég mér það að missa meydóminn. Mér var í raun sama hver yrði valinn til verksins. Fyrir mér var þetta verkefni sem þurfti að leysa og það sem allra fyrst. Þegar ég kynntist Björgu breyttist síðan allt.“ 


    - Fljótfærnisleg ákvörðun: 

    „Ég var rétt búin að jafna mig eftir skilnað við manninn minn til 15 ára þegar ég kynntist afar sjarmerandi manni í gegnum einkamálasíðu á Netinu. Eftir að hafa tekið fljótfærnislega ákvörðun upplifði ég einn furðulegasta tíma lífs míns.“ 


    - Heilaþvegið verkfæri: 

    „Vinkona mín var sérlega leitandi á unglingsárunum og það var fátt sem hún ekki prófaði. Í kringum sautján ára aldurinn gekk hún í sértrúarsöfnuð og þaðan átti hún ekki afturkvæmt um langa hríð.“


    - Siðblind stórasystir: 

    „Frá barnæsku hefur eldri systir mín verið afar ómerkileg persóna. Hún blekkti, sveik, og stal og stjórnaði okkur systkinunum með harðri hendi. Á fullorðinsárum komst hún upp með mjög ósvífið athæfi gagnvart okkur.“ 


    -Dreymdi fyrir áföllum: 

    „Maðurinn minn á fullorðinn son frá fyrra sambandi en litlir kærleikar eru á milli þeirra. Tvisvar dreymdi mig fyrir erfiðum atburðum sem tengdust syni hans en í bæði skiptin láðist mér að taka mark á draumunum.“


    See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

    45 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


    - Að gefast upp á að hjálpa:

    „Í flestum fjölskyldum þykir sjálfsagt að fólk hjálpi og styðji hvert annað. Mín fjölskylda er engin undantekning þar frá en nýlega tókum við hjónin ákvörðun um að hætta alveg að aðstoða systur hans, enda okkur báðum orðið ljóst að það væri eins og að moka í botnlausa tunnu. “


    - Sjúkleg lygaþörf:

    „Þegar ég var barn las ég mér til ánægju sögur Munchausens baróns. Mér fannst öfgar hans og lygi bráðskemmtileg. Hið sama gilti raunar um frásagnir vinar foreldra minna sem allir vissu að var gjarn á að ýkja og bæta við. Ég komst hins vegar nýlega að raun um að lygar eru sannarlega ekki gamanmál og sjúkleg lygaþörf andstyggileg grimmd.“


    - Sonur minn er ekki veikur:

    „Þegar ég fékk litla son minn í hendurnar í fyrsta sinn fann ég fyrir alsælu. Ég hafði aldrei áður fundið jafnsterkar tilfinningar og ég sór þess eið að vernda og styrkja þetta barn alla ævi. Eftir að heim kom fékk ég samt fljótlega eitthvert hugboð um að drengurinn minn væri ekki alveg eins og önnur börn. Í ljós kom að það var rétt hjá mér en sonur minn er ekki veikur, hann fellur einfaldlega ekki fullkomlega í normalformið.“


    - Fangi minninganna: 

    „Ég varð ástfangin fimmtán ára gömul af strák sem var tveimur árum eldri. Við vorum saman í þrjú ár og hluta þess tíma bjó ég heima hjá honum. Ég sleit sambandinu vegna þess að mér fannst ég þurfa að reyna eitthvað nýtt og vera of ung til að gifta mig. Þetta voru stærstu mistök lífs míns og ef ég gæti snúið klukkunni við myndi ég halda sem fastast í hann.“


    - Erfitt að skipta sér milli tveggja:

    „Við Stebbi kynntumst á þrítugsafmælinu mínu. Ég varð strax yfir mig ástfangin af honum. Hann hafði verið giftur áður og átti eitt barn en ég var barnlaus. Þegar við fórum að búa saman var ég ákveðin í að reynast honum og drengnum hans vel en það er hægt að gera of mikið.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    40 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


    - Sjaldan launar kálfur ofeldi:

    „Þegar ég fór að búa með seinni manninum mínum varð ég stjúpmóðir tveggja drengja, fínustu stráka sem mér þykir mjög vænt um. Þeir eru taka sín fyrstu skref núna sem fullorðnir menn og það verður þeim eflaust ekki auðvelt eftir ofdekur og agaleysi í æsku.“


    - Fá ekki að hitta barnabarnið:

    „Fyrir fimm árum lést dóttir okkar 33 ára gömul, hún átti þá sjö ára gamlan son og eiginmann. Þetta er saga um baráttu afa og ömmu til að fá að umgangast barnabarn sitt.“


    - Kærastan í sveitinni:

    „Fyrir um aldarfjórðungi var ég hrifinn af stelpu sem bjó fyrir utan höfuðborgina. Móðir hennar var svolítið sérstök og kom fram við mig sem tengdason sinn frá fyrstu sýn.“


    - Erfiðir yfirmenn:

    „Fyrir nokkrum árum hóf ég störf hjá hinu opinbera. Í vinnu minni hjá tveimur stofnunum hafði ég eftirminnilega en ólíka yfirmenn. Ég lærði mikið um mannlegt eðli á meðan ég vann undir þeirra stjórn.“


    - Ókunnugur faðir á Facebook:

    „Blóðfaðir minn yfirgaf mig þegar ég var enn í móðurkviði. Árin liðu og það var ekki fyrr en ég steig á svið í sjónvarpsþætti að áhugi hans á mér kviknaði. Áhuginn magnaðist með árunum og með tilkomu Facebook breyttist hann í stöðugt áreiti.“


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    45 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    - Örlagaríkar kaffislettur:

    Tæplega sautján ára gömul var ég farin að búa með kærastanum mínum, áratug eldri en ég. Á meðan vinir mínir sátu á skólabekk og sumir hverjir að búa sig undir að taka bílprófið var ég önnum kafin við hreiðurgerð, ólétt að fyrsta barninu. Þótt ég sjái ekki eftir neinu myndi ég ekki vilja sjá dóttur mína feta í fótspor mín.


    - Martraðarkennt matarboð:

    Eftir skilnað við drykkfelldan eiginmann minn ákvað ég að taka U-beygju í lífinu. Nokkrum árum síðar kynntist ég heillandi manni en aðeins nokkrum dögum eftir að við fórum að vera saman gerðist óhugnanlegur atburður.


    - Au pair í stórborg:

    Fyrir mörgum árum var ég barnfóstra hjá íslenskri fjölskyldu í erlendri borg. Mér líkaði afar vel við hjónin og dáði börnin þeirra. Dvöl mín ytra fékk þó skjótan endi og mér leið illa lengi á eftir.


    - Flestir skjóta sendiboðann:

    Sigga, vinkona mín, er einstök manneskja. Kímin, skemmtileg, ákaflega trygg vinum sínum og sérlega greiðvikin. Við sem þekkjum hana erum alltaf jafnhissa á að karlmenn skuli ekki slást um hana en Sigga hefur búið ein í tvo áratugi. Nýlega kynntist hún manni og þau fóru hittast. Þegar ég heyrði frá kunningja mínum að hann væri tvöfaldur í roðinu stóð ég frammi fyrir erfiðu vali.


    - Stjörnuhrap:

    Æskuvinur minn bjó yfir ótalmörgum kostum, skaraði fram úr í námi og íþróttum, í raun bar hann af í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann hafði útlitið með sér að auki og naut mikillar kvenhylli alla tíð.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    42 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - Ætlað að vera saman: 

    Hannes var fyrsta ástin mín og eftir að leiðir skildi hugsaði ég alltaf fallega til hans. Við hittumst ekki aftur, ótrúlegt en satt, fyrr en tuttugu árum síðar. 


    - Skrímslið, faðir minn: 

    Æska mín var afar erfið, svo vægt sé til orða tekið, en þegar ég var sjö ára breyttist líf mitt fyrst í sannkallað helvíti. Það olli því að ég hætti alfarið að treysta fólki. Ég leitaði í fíkniefni frá tólf ára aldri og endaði sem útigangsmaður. Síðustu tíu árin hef ég verið edrú og ég vinn að því að verða hamingjusamur. 


    - Erfitt val: 

    Gamall skólabróðir minn átti í mikilli sálarkreppu. Hann naut þess að lifa venjulegu lífi með okkur vinum sínum en þurfti líka að hlíta ströngum reglum safnaðarins sem hann tilheyrði. Löngu seinna eignaðist ég stjúpföður sem hafði verið í þessum sama söfnuði en í öðru landi. 


    - Skrautleg tengdamamma: 

    Elskuleg vinkona mín frá barnæsku giftist ung kærastanum sínum og hefði eflaust lifað fullkomnu lífi með honum ef hann hefði ekki átt erfiða móður sem gerði þeim lífið leitt alla tíð. 


    - Óheppið tryggðatröll: 

    Bróðir minn hefur verið óheppinn í ástamálum í gegnum árin. Hann getur eflaust kennt sjálfum sér og drykkju sinni um eitthvað en þegar hann fann aftur æskuástina sína varð ég fullviss um að allt ætti eftir að verða gott hjá honum.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    45 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    -Sannleikurinn breytti lífi mínu: 

    Æska mín var erfið en á unglingsárunum kynntist ég konu sem átti eftir að breyta lífi mínu og fjölskyldu minnar mjög til góðs. 


    -Forboðnar ástir: 

    Maðurinn minn hélt fram hjá mér og þegar ég ákvað að fyrirgefa honum og taka saman við hann aftur varð allt vitlaust í fjölskyldu minni sem vildi að ég segði endanlega skilið við hann. Ég mun aldrei sjá eftir því að gefa honum annað tækifæri þótt hann hafi ekki átt það skilið. 


    -Óheiðarleg tengdadóttir: 

    Elsti sonur minn varð faðir ungur að árum, eða um tvítugt. Ég hef alla tíð verið í góðu sambandi við barnsmóður hans og lengi vel skildist mér á henni að hann sýndi henni lítinn stuðning. 


    -Ástin – taka tvö: 

    Ég elskaði manninn minn heitt og hélt að við yrðum saman alla tíð, í gegnum súrt og sætt, sorgir og gleði. Á erfiðum tíma í lífi okkar brást hann og ég var svo sár að ég ætlaði aldrei að bindast öðrum manni ástarböndum. 


    -Dýrt góðverk: 

    Þegar amma var unglingur upplifði hún mikinn samhug og hjálpsemi fólksins í sveitinni þegar erfiðleikar komu upp á einum bænum. Hún sá einnig að fólk sem hún hélt að væri nánast algott var það sannarlega ekki, heldur sýndi það á sér afar ljóta hlið.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    52 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


    -Í leit að lífshamingju: 

    Þegar ég fór til Bandaríkjanna í leit að sjálfri mér og lífshamingju óraði mig ekki fyrir því hvað ég væri að fara út í. Ég varð sannarlega reynslunni ríkari á eftir. 


    -Mikil er ábyrgð þeirra: 

    Ég á yndislegan son sem hefur átt erfitt líf. Ræturnar að erfiðleikum hans má að öllum líkindum rekja alla leið til leikskólans sem hann sótti þegar hann var lítill. 


    -Aðgát skal höfð í nærveru unglings: 

    Sonur minn fermist nú í vor. Ekki hefði mig grunað að það yrði svona erfitt að finna föt á hann í réttri stærð. Það í sjálfu sér væri í lagi en ekki það dónalega viðmót starfsfólks tískuverslana sem mætti okkur. Ég var stundum gráti næst í búðunum og syni mínum leið örugglega enn verr. 


    -Lítill heimur: 

    Án þess að hafa ætlað mér það varð ég heilmikill áhrifavaldur í lífi fjögurra persóna. Ég þoli ekki svik og fannst ég tilneydd til að segja frá því þegar brotið var á tveimur góðum manneskjum. Ég áttaði mig líka á því hvað heimurinn getur verið ofboðslega lítill. 


    -Aðstoð úr óvæntri átt: 

    Börnin mín voru orðin uppkomin þegar ég fann mann sem mig langaði að verja lífinu með. Neikvæð viðbrögð þeirra komu mér á óvart. Ég fékk hjálp úr óvæntri átt við að koma vitinu fyrir þau.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    38 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    – Pabbi minn vill ekkert með mig hafa: 

    Ég átti hamingjusama æsku þótt ég hafi aldrei kynnst blóðföður mínum. Pabbi minn kom inn í líf okkar mömmu þegar ég var smábarn og hann ættleiddi mig. Ég vissi ætíð vel að við værum ekki blóðskyldir en velti því aldrei fyrir mér fyrr en ég átti sjálfur von á barni. Þá reyndi ég að hafa samband við föður minn en fékk þannig viðbrögð að ég gerði mér ljóst að ég væri betur kominn án þess manns í lífi mínu. 


    – Dekurrófurnar: 

    Ég ólst upp hjá ömmu og afa en þráði það alltaf heitt að fá að vera hjá mömmu og fjölskyldu hennar. Stundum var ég þó fegin að þurfa ekki að búa með hálfsystkinum mínum því dekraðri og frekari krökkum hef ég ekki kynnst. 


    – Hressi tengdasonurinn: 

    Ekki löngu eftir að dóttir mín skildi kynntist hún öðrum manni sem heillaði hana upp úr skónum. Ég var ekki jafnheilluð, enda voru fyrstu kynni mín og nýja tengdasonarins ekki sérlega góð. 


    – Sloppið með skrekkinn – þrisvar: 

    Ég held því fram að ég hafi bjargað lífi mannsins míns sama kvöldið og við byrjuðum saman. Mörgum árum seinna áttu sér stað svipuð atvik í kringum mig þar sem ástvinir mínir sluppu með skrekkinn fyrir einhverja tilviljun. 


    – Leyndarmálið: 

    Móðir mín átti sér ljótt leyndarmál árum saman en tókst að fela það svo vel að engan grunaði neitt. Þegar upp um hana komst varð algjört uppnám í fjölskyldunni og systkini hennar brugðust svo hart við að þau hættu að tala við hana.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:


    - Ótrúleg heppni: Systir mín lenti í miklum fjárhagsvandræðum fyrir mörgum árum og minnstu munaði að hún missti allt sitt. Mamma kom með hugmynd sem systir mín hafði enga trú á en átti þó eftir að breyta öllu til góðs og bjarga jólunum.


    - Hræðileg tengdamamma: Ég er giftur góðri og yndislegri konu. Hún á einstaklega erfiða móður sem þrífst ekki nema hún geti komið illu til leiðar.


    - Í klóm fjársvikara: Ég er hamingjusöm sjálfstæð kona sem nýtur lífsins þótt vissulega komi stundir þegar ég óska þess að ég ætti maka. Mér fyndist það bónus ef ég kynntist einhverjum góðum manni en almennt er ég ekki að leita. Um daginn lét ég hins vegar undan þrábeiðni vinkonu minnar og skráði mig á vinsæla stefnumótasíðu. Það sem fylgdi í kjölfarið kom mér gersamlega í opna skjöldu.


    - Stærstu mistök lífs míns: Ég var hamingjusamlega gift honum Nonna þegar ég ákvað að ganga kór. Starfið var líflegt og skemmtilegt og kórfélagar hittust oft utan æfinga til að gera eitthvað saman. Aðalsprautan í því var Friðrik og ég verð að játa að mér fannst hann heillandi. Ég hóf ástarsamband við hann og það kostaði mig hjónabandið, virðingu barnanna minna og sjálfsvirðinguna.


    - Nýja fjölskyldan: Ég var átján ára gamall þegar ég komst að leyndarmáli sem snerti mig mikið og nánast sneri lífi mínu við. Ég brást illa við og ákvað að reyna að endurheimta það sem mér fannst ég hafa verið sviptur.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    42 min
  • Lífsreynslusögur Vikunnar

    Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: 


    - „Þessi draumur er fyrir eldgosi“: 

    Ég er alin upp á frekar litlum stað úti á landi. Pabbi var læknir þar og við bjuggum í læknisíbúð á sjúkrahúsinu. Í þessari frásögn er bæði aðstæðum og nöfnum breytt án þess að sagan sjálf breytist við það. 


    - Mögnuð björgun: 

    Fyrir fjölmörgum árum sagði þáverandi kærastinn minn frá undarlegu og óútskýranlegu atviki sem gerðist á því tímabili lífs hans þegar hann upplifði algjört svartnætti. 


    - Besta ákvörðunin: 

    Ég bjó í Reykjavík fyrstu 33 ár ævi minnar og giftist manni sem einnig er af höfuðborgarsvæðinu. Við hrunið breyttust aðstæður okkar mjög til hins verra og þegar okkur fannst allt komið í hnút tókum við ákvörðun sem við höfum ekki séð eftir. 


    - Kolröng ákvörðun: 

    Þegar ég hóf störf hjá litlu fyrirtæki fyrir mörgum árum leist mér vel á samstarfsfólk mitt og ekki liðu margir mánuðir þar til ég var orðin heiftarlega ástfangin. Sú ást varð mér til lítillar gæfu. 


    - Furðuleg heimsókn: 

    Bróðir minn er tvígiftur og missti seinni konu sína fyrir nokkrum árum. Daginn eftir jarðarförina fékk hann óvænta heimsókn frá manneskju sem gerði honum afskaplega undarlegt tilboð, svo vægt sé til orða tekið.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    44 min

About Lífsreynslusögur Vikunnar

From the publisher's feed

Lífsreynslusögur með Guðrúnu Óla

Guðrún Óla blaðamaður hjá Vikunni, les upp lífsreynslusögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíðina, en hér er sannleikurinn lyginni líkastur!…

More shows like Lífsreynslusögur Vikunnar

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

122 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Mystík by Ghost Network®

Mystík

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners