Rauða borðið

Rauða borðið

By Gunnar Smári EgilssonNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Rauða borðið episodes

  • Rauða borðið 4. nóv - Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni
    Miðvikudagur 4. nóvember
    Trumptíminn, fæðingarorlof, pendúlhreyfingar, tónlist og lagaleg álitaefni
    Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Magnús Helgason sagnfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir kosningaúrslitin í Bandaríkjunum í spjalli við Gunnar Smára í auka-Trumptíma. Marka kosningarnar endalok Trumptímans? Ásdís Olsen ræðir við Karítas Ólafsdóttur móður og sálfræðing en hún neitar að láta stjórnvöld ráða hennar eigin barneignum. Forgangsröðun fjármuna tekur ekki mið af þörfum barna. Þetta segir Grímur Atlason hjá Geðhjálp. Hann og Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði ræða við Björn Þorláks um muninn á vistun barns og brú yfir fljót. Á föstudag verður frumflutt stórvirkið ANOK eftir Högna Egilsson í Hallgrímskirkju. Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona er í aðalhlutverki í flutningnum og ræðir ásamt tónskáldinu Högna verkið í samtali við Björn Þorláks. Grímur Atlason hjá Geðhjálp og Margrét Valdimarsdóttir, dósent við HÍ, ræða kosningarnar í Bandaríkjunum í gær, áhrif þeirra á heiminn og þar á meðal hér á Íslandi. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Uppsagnir og uppsagnarákvæði, minnkandi samkeppni á matvörumarkaði og Landsvirkjunarmálið eru þar á meðal. Björn Þorláks ræðir við Gísla.
    4 hr 36 min
  • Rauða borðið 3. nóv - Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar
    Þriðjudagur 3. nóvember
    Uppsagnir, norðurslóðir, ópera og lækningar
    Þorvaldur Ingi Jónsson ráðgjafi rýnir í hópuppsagnirnar hjá borginni og gefur aðferðafræðinni laka einkunn. Björn Þorláks heldur áfram umfjöllun Samstöðvarinnar um starfsmannamál og mannúð. Gunnar Smári ræðir við Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø um Grænlandssamning Bandaríkjanna, símtal forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands til Putín og önnur mál tengt norðurslóðum. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri, Íris Björk Gunnarsdóttir sópran og Bjarni Thor Kristinsson bassi segja Gunnari Smára frá óperunni 27 sem fjallar um lesbísku hjónin Gertrude Stein og Alice B. Toklas. Ásgeir Böðvarsson læknir og íslenskufræðingarnir Solveig Brynja Grétarsdóttir og Jón Torfason segja Gunnari Smára frá Jóni Jónssyni prest og lækni í Árskógi og á Grenjaðarstað, en hann lærði ekki til prests en fékk leyfi til að lækna gegn því að halda dagbækur, sem voru að koma út.
    4 hr 23 min
  • Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar
    Mánudagur 2. nóvember
    Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar
    Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú í fyrsta skipti þeirri bitru reynslu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Degi fyrir kosningar í Bandaríkjunum spá sagnfræðingarnir Sveinn Máni Jóhannesson, Magnús Helgason og Guðmundur Hálfdanarson í spilin með Gunnari Smára. Munu Repúblikanar tapa kosningunum svo illa að marki endalok Trumptímans? Hvað er að gerast í Evrópu og meðal ungs fólks víða um heim? Róttæklingarnir Ólafur Páll Sigurðsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Lúkas Lilliendahl ræða við Gunnar Smára um uppreisn ungs fólks, hverju þau mótmæla og hvers vegna. Er gamli heimurinn að líða undir lok? Gísli Bachmann stjórnspekingur hefur fengið sýnir sem hann tengir við Völuspá, Ragnarök og upphaf nýrrar aldar. Hann telur að erfiðir tímar séu fram undan, átök og upplausn, en að úr þeim hreinsunareldi geti sprottið nýr heimur og andleg vakning mannkyns. Ásdís Olsen ræðir við hann. Halldóra Mogensen fyrrum þingmaður, sérfræðingur í gervigreind, ræðir samfélagsmiðla og hvernig stjórnvöld sváfu á verðinum gagnvart börnunum okkar. Björn Þorláks ræðir við Halldóru.
    5 hr 15 min
  • Synir Egils 1. nóv - Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf
    Sunnudagurinn 1. nóvember
    Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf
    Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins, María Rut Kristinsdóttir þingkona Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar og ræða helstu fréttir og stöðu mála, stöðu flokka, ríkisstjórnar og sveitarstjórna. Þá koma þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ræða pólitíska strauma vestan hafs og austan og áhrif þeirra á íslensk stjórnmál. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 38 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson
    Laugardagur 31. október
    Helgi-spjall: Haraldur Erlendsson
    Hvar liggja mörkin milli geðrænna einkenna og andlegrar reynslu? Haraldur Erlendsson geðlæknir hefur frá barnæsku upplifað andlegan veruleika, orðið fyrir margs konar dulrænni reynslu, upplifað eigin fæðingu, fengið innsýn og vitranir en umfram allt upplifað mikinn unað og kærleika. Haraldur fagnar sjötugsafmæli sínu um þessar mundir og segist loksins frjáls til að tjá sig um ýmislegt sem sumum gæti þótt skrýtið og ekki endilega fræðilegt. Í þessu opinskáa Helgispjalli við Ásdísi Olsen ræðir hann geðsjúkdóma, andlegar og trúarlegar hefðir, hugvíkkandi efni, mikilvægi þjáningar og þrautsegju fyrir andlegan þroska, nær-dauðareynslu, daoisma og tilgang lífsins. Haraldur er starfandi geðlæknir og formaður Lífspekifélags Íslands og hefur meðal annars kennt trúarlífssálfræði við guðfræðideild Háskóla Íslands og var lengi yfirlæknir og forstjóri Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands,
    1 hr 35 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 44
    Föstudagur 30. október
    Vikuskammtur: Vika 44
    Vikuskammtur, umræða um fréttir líðandi stundar, er í umsjá Björns Þorláks. Gestir hans, Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður, Jón Trausti Reynisson blaðamaður, Jasmina Vazjovic ráðgjafi og Ólafur Arnarson blaðamaður rýna í uppsagnir í borginni, niðurstöður kosninga utan landsteinanna, pólitík og efnahagsmál innanlands, fordóma, nýjar og áhugaverðar bækur og fleira.
    1 hr 24 min
  • Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir
    Fimmtudagur 29. október
    Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir
    Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um fréttir og stöðu samfélagsins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um símtal Støre og Stubb til Pútín, Úkraínu, smáríki og norðurslóðir. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, ræðir við Björn Þorláks um nýja bók sem fjallar um hryðjuverk, efnahagshrun og endalok heimsveldis. Valur blandar heimssögu sína persónulegum frásögnum. Lýðskrum í íslenskum miðlum - innreið woke frá 1917 er heiti á erindi sem Lars Lundsten fræðimaður flytur á Þjóðarspegli á morgun. Björn Þorláks ræðir við hann um þá sem veifuðu vók-trénu oftast. Mímir Kristjánsson er hálfur Íslendingur á norska þinginu, rithöfundur, blaðamaður og sósíalisti. Hann talar við Gunnar Smára um vinstrið á Norðurlöndum, ysta hægrið og mótmæli í Evrópu. Sigríður Björk Þormar sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum ræðir við Ásdísi Olsen um hvernig annað fólk getur stjórnað líðan okkar, magnað upp reiði, sorg og höfnun langt umfram sýnilegt tilefni, ýtt á takka sem kveikja á okkur.
    5 hr 37 min
  • Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs
    Miðvikudagur 28. október
    Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs
    Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína, Qussay Odeh, Íslendingur af palestínskum ættum og Laufey Líndal Ólafsdóttir ræða við Gunnar Smára um heimildarmyndina Naza sem fjallar um hvernig ísraelski herinn notar gervigreind og háþróaða tækni til að fremja þjóðarmorð á Gaza. Gauti B Eggertsson hagfræðiprófessor við Brown háskólann ræðir við Gunnar Smára um horfur í heimshagkerfinu, verðbólgu og vaxandi ríkisskuldir og þær áskoranir sem íslenskt efnahagslífs stendur frammi fyrir. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi bregst við ummælum forstjóra ÁTVR um að stofnunin sé að skoða heimsendingu á áfengi. Björn Þorláks ræðir við hann fleiri álitamál er varða lýðheilsu, forvarnir, frelsi og fíkn. Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson er enfants terrible íslenskrar myndlistar, sýningar þeirra vekja yfirleitt skjálfta og mikil viðbrögð. Þeir ræða við Gunnar Smára um listina, manneðlið og sýningu sem þeir opnuðu í gær. Guðmundur S. Brynjólfsson rithöfundur og djákni segir Gunnari Smára frá bók sinni Pár Guðs sem fjallar um ris og fall Finn Magnússonar, eins frægasta Íslendings sinnar tíðar.
    4 hr 28 min
  • Rauða borðið 27. okt - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin
    Þriðjudagur 27. október
    Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin
    Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður Sameykis og oddvitar úr minnihlutanum; Pétur Marteinsson Samfylkingu og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vinstrinu ræða við Gunnar Smára um stöðuna. Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður og rektor telur rétt að breyta skólum í fangelsi í stað þess að byggja alltaf ný. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann einnig sinn gamla flokk. Sjálfstæðisstefnan sigraði en Sjálfstæðisflokkurinn er í bullandi vandræðum, segir Vilhjálmur. Landbrot og uppbygging tengd mannfjölgun og ferðaþjónustu á Suðurlandi gæti leitt til árekstra í sambandi manns og náttúru. Björn Þorláks ræðir við Þóri Kjartansson ljósmyndara. Jósep Ó Blöndal læknir heldur áfram að segja Gunnari Smára frá ferð sinni um heilbrigðiskerfið og hvernig það hefur breyst um hans starfsævi. Og fræðir hann um heilbrigði og sjúkleika. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur hefur skrifað bók um ástina. Nándin er okkur eins mikilvæg og matur, segir hann. Björn Þorláks ræðir við höfundinn. Mygluvandi í húsi í Mývatnssveit hefur valdið miklu tjóni og lasleika og hefur heimafólk ákveðið að leggja íbúum lið með stórtónleikum í kirkju á morgun. Björn Þorláks ræðir við Stebba Jak um framtakið.
    4 hr 52 min
  • Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn
    Mánudagur 26. október
    Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn
    Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræða við Gunnar Smára um stöðu Trump í aðdaganda þingkosninga í Bandaríkjunum. Sigursteinn Másson fréttamaður og Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur ræða aukinn rasisma og leiðir til úrbóta. Björn Þorláks ræðir við þau. Magnea segir bæjarstjórann í Öfusi hafa framið brot á lögum með orðræði sinni um múslima. Drífa Snædal talskona Stígamóta og Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir ráðgjafi og stofnandi Áfram stelpur ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og afleiðingar hans. Jovana Pavlović forseti bæjarstjórnar í Borgarbyggð segir Gunnari Smára frá serbnesku kosningunum þar sem listi stúdenta vann stórsigur og Luciano Dutra þýðandi segir Gunnari Smára frá brasilísku kosningunum þar sem Lula vann sigur í seinni umferð eftir að hafa tapað þeirri fyrri. Gísli Bachmann, stjörnuspekingur mætir aftur í viðtal til Ásdísar Olsen og útskýrir hvernig stjörnuspekin virkar og Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur ræðir nýjustu bók sína og ferilinn við Björn Þorláks.
    5 hr 15 min

About Rauða borðið

From the publisher's feed

Róttæk samfélagsumræða.

Best of Rauða borðið

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Rauða borðið

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eyjan by Eyjan

Eyjan

1 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

9 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners