Rauða borðið

Rauða borðið

By Gunnar Smári EgilssonNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Rauða borðið episodes

  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 41
    Föstudagur 9. október
    Vikuskammtur: Vika 41
    Atlaga gegn mennsku og menningu, aftökur í beinni, hroki og hleypidómar í verkalýðshreyfingunni og árshátíðarferð atvinnulífsins til Króatíu eru meðal umræðuefna í fréttaþættinum Vikuskammti. Tengist þetta kannski allt? Gestir eru Gunnar Alexander Ólafsson hjá ÖBÍ, Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, Valgerður Árnadóttir hvalavinur og baráttukona og Jökull Sólberg Auðunsson sósíalisti. Leigubremsur og framtíð hvalveiða verða einnig til umræðu. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks.
    1 hr 26 min
  • Rauða borðið 8. okt - Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn
    Fimmtudagur 8. október
    Menntastefna, reynsluboltar, öldrun, Brasilía, hamingja og bekkurinn
    Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins, Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara, Jónína Hauksdóttir formaður skólamálaráðs KÍ og Anton Már Gylfason formaður félag stjórnenda í framhaldsskólum útskýra sýn verkalýðshreyfingar kennara á menntastefnuna. Gunnar V. Andrésson, Einar Kárason og Kristín Ástgeirsdóttir voru gestir þáttarins að þessu sinni. Helstu mál samfélagsins voru rædd af þekkingu og reynslu. Fyrir nokkrum árum skrifaði Sigrún Huld Þorgrímsdóttir hjúkrunarfræðingur bókina Ný menning í öldrunarþjónustu. Í bókinni hvetur hún til bættrar og breyttrar hugsunar gagnvart umönnun aldraðra, en gæti niðurstaðan hafa reynst þveröfug? Björn Þorláks ræðir við hana. Luciano Dutra fer yfir liðnar kosningar í Brasilíu með Gunnari Smára og ræður í áhrifin af þeirri hægri bylgju sem þar reið yfir. Í viðtali við Ásdísi Olsen ræðir Reynir Grétarsson um nýju bókina sína, Bókasafn gagnslausra hugsana, þar sem hann veltir fyrir sér huganum, hugsunum sem halda okkur föstum og því hvernig öðlumst frelsi og tengjum við okkur sjálf. Guðmundur Torfason og Víðir Sigurðsson töluðu um landsliðin, karla, kvenna og undir 21 árs sem og fyrirkomulag Íslandsmótsins. Þeir eru sáttir með árangur karla landsliðsins og bíða og vona að konurnar færist nær næsta heimsmeistaramóti sem verður í Brasilíu.
    4 hr 49 min
  • Rauða borðið 7. okt - Grænland, menningarstefna, skólar, Þórarinn og trú
    Miðvikudagur 7. október
    Grænland, menningarstefna, skólar, Þórarinn og trú
    Valur Ingimundarson prófessor ræðir við Gunnar Smára um nýjan samning um Grænland, mögulegt sjálfstæði Grænlands og hvað staða Grænlands segir okkur um stöðu Íslands. Tónlistarfólkið og skólastjórnendurnir Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Edda Austmann og Róbert Þórhallsson ræða niðurskurð til tónlistarskólanna. Börn sem vilja stunda tónlistarnám geta lent í því að fá hvergi inni í Reykjavík eða bíða lengi, lengi. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Kristján Kristjánsson prófessor í heimspeki við háskólann í Birmingham segir Gunnari Smára frá stöðu menntamála á Íslandi og Eistlandi. Skáldaæð Þórarins Eldjárns er galopin sem stendur og sendir hann frá sér þrjár bækur um þessar mundir, hvorki meira ná minna. Björn Þorláks ræðir við Þórarin um lífið, listina, bækurnar og íslenskuna. Séra Dagur Fannar Magnússon fríkirkjuprestur ræðir við Ásdísi Olsen um trú.
    5 hr 14 min
  • Rauða borðið 6. okt - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó
    Þriðjudagur 6. október
    Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó
    Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stundakennari, Bogi Ágústsson sjónvarpsmaður og Guðmundur Hálfdanarson prófessor ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump og stjórnar hans á Bandaríkin og heiminn, kosningarnar framundan, heimsókn Marco Rubio til Íslands og fleiri tengt Trump. Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari stúlknaliðsins Aþenu, segir Ásdísi Olsen frá köllun sína að gefa börnum í Efra-Breiðholti tækifæri til valdeflingar. Viðar Halldórsson félagsfræðingur ræðir normalíseringu áfengisdrykkju í samtali við Björn Þorláks. Rósa Magnúsdóttir prófessor ræðir við Gunnar Smára um Kaldastríðsborgina, bók sína um leiðtogafundinn fyrir fjörutíu árum og hvernig kalda stríðið mótaði mannlífið í Reykjavík. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands ræðir við Björn Þorláks um rekstur hljómsveitarinnar.
    4 hr 22 min
  • Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind
    Mánudagur 5. október
    Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind
    Gylfi Zoega prófessor ræðir um efnahaginn við Gunnar Smára, eru að verða straumhvörf hér heima og enn frekar erlendis? Krísan innan SÁÁ vindur enn upp á sig. Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Dóra Jóhannsdóttir leikkona, Ásdís Olsen fjölmiðlakona og Björn Þorláks blaðamaður þekkja öll vel til starfa innan SÁÁ. Þau ræða vandann með hispurslausum hætti. Pálmi V. Jónsson prófessor ræðir umönnun aldraða við Gunnar Smára út frá umfjöllun um geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum. 65% íslenskra karla tengja það við karlmennsku að leysa ágreining með ofbeldi, samkvæmt nýrri rannsókn sem Norræna ráðherranefndin lét gera. Þórður Kristinsson, mannfræðingur og doktor, segir karlmennskuboxið óþarflega þröngt á Íslandi og tengir þessar niðurstöður við skelfileg skilaboð samfélagsmiðla um að karlmennska feli í sér að vera sterkur, hafa stjórn og standa uppi sem sigurvegari. Ásdís Olsen ræddi við Þórð. Hafsteinn Einarsson dósent við tölvunarfræðideild HÍ ræðir við Gunnar Smára um gervigreind, hvort þróun hennar sé stjórnlaus og geti frekar skaðað en bætt mannlífið.
    5 hr 48 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson
    Laugardagur 3. október
    Helgi-spjall: Stefán Pálsson
    Stefán Pálsson sagnfræðingur sem hefur verið áberandi í borgarmálunum er gestur Björns Þorlákssonar í helgi-spjalli. Stefán ræðir æsku sína og uppvöxt og sem mótar einstakling, svo sem Gettur betur!
    1 hr 59 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 40
    Föstudagur 2. október
    Vikuskammtur: Vika 40
    Þær koma að Rauða borðinu, þær Lína Thoroddsen kvikmyndagerðarkona, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona, Stefanía Silfá Sigurðardóttir nemi í blaðamennsku og Brynhildur Bolladóttir formaður samtaka um bíllausan lífsstíl og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af róandi lyfjum, upplausn, efnahagslegum sársauka, mislukkuðum aftökum, deilum og tilraunum til samtals.
    1 hr 34 min
  • Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi
    Fimmtudagur 1. október
    Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi
    Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við reynsluboltana Sigurð Ágúst Sigurðsson, formann Félags eldri borgara í Reykjavík, Drífu Sigfúsdóttur, fyrrum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og Guðbrand Stíg Ágústsson um fréttir líðandi stundar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað að leynd skuli ríkja um samning Sjúkratrygginga og SÁÁ. Björn Þorláks ræðir við Kristínu I. Pálsdóttur, talskonu Rótarinnar sem kærði leyndina. Á sunnudag verða sýndar saman í Bíó Paradís heimildarmyndirnar Lalli Johns og Hlemmur, báðar veita innsýn í undirheima Reykjavíkur. Ólafur Sveinsson leikstjóri Hlemms, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir verkefnastjóri á Kvikmyndasafni, Jón Gunnar Bernburg félagsfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða myndirnar og undirheimana við Gunnar Smára. Hvað gerist þegar karlmenn sem hafa alla ævi vanist því að vera sterkir og sjálfstæðir þurfa skyndilega að þiggja hjálp? Matti Osvald markþjálfi hefur um árabil leitt karlahópa í Ljósinu, þar sem krabbameinsgreindir menn koma saman og deila reynslu sinni. Umsjón hefur Ásdís Olsen. Í tilefni af umræðu um gervigreind ræðir Gunnar Smári um mannlega hugsun við Finn Déllsen prófessor í heimspeki, en það er einmitt mannleg greind sem vélunum er ætlað að líkja eftir. Þarf að fjölga þingmönnum til að jafna atkvæðavægi? Þeirrar spurningar spyr doktor Þóroddur Bjarnason byggðafræðingur vegna hugmynda um breytingar. Björn Þorláks ræðir við hann.
    5 hr 2 min
  • Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar
    Miðvikudagur 30. september
    Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar
    Ísak Einar Rúnarsson forstöðumaður málefnasviðs SA og Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins fara yfir efnahagsmál hér heima og erlendis í spjalli við Gunnar Smára. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin. Þurý Gísladóttir, sérfræðingur í tíðnimeðferð útskýrir fyrir Ásdísi Olsen þessa athyglisverðu tækni. María Reyndal höfundur og leikstjóri, Mikael Emil Kaaber leikari og Rebecca Lív Biraghi barnastjarna og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona segja Gunnari Smára frá Svikasögum í Borgarleikhúsinu. Ingveldur Ýr Jónsdóttir, formaður KÓRÍS, Margrét Bóasdóttir frá Landssbambandi blandaðra kóra, Arnar Halldórsson frá Karlakórasambandinu og Sunna Karen Einasdóttir frá Ungíkór- nýju sambandi barna og ungmennakór ræða við Björn Þorláks um kórsöng og kórstarf og nýjan áfanga og viðurkenningu.
    4 hr 52 min
  • Rauða borðið 29. sept - Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar
    Þriðjudagur 29. september
    Trumptíminn, verðbólga, skyr, SÁÁ og töfrar
    Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur fara með Gunnari Smára yfir hvernig stefna og orð Trump móta Bandaríkin og heiminn. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum bregst við verðbólgumælingu dagsins. Hann spyr í samtali við Björn Þorláks hvort högg skuldugra sé verjandi vegna ofurvaxta Seðlabankans þótt markmið bankans séu göfug. Þjóðfræðingarnir Vilborg Bjarkadóttir og Auður Viðarsdóttir kynna rannsókn sem nú stendur yfir á skyri. Skyrgerð til forna lýsir samlífi örveru og manna. Í samtali við Björn Þorláks kallar þær almenning til aðstoðar í þágu vísindanna. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitaefni með Birni Þorláks. Í kvöld ræða þeir skuldbindingar SÁÁ og Bókun 35. Guðmundur Ragnar fór til Brasilíu til að læra shamanisma hjá töfralækni Huni Kuin-frumbyggja í Amazonregnskóginum. Í samtali við Ásdísi Olsen ræðir hann hjónaband sitt með dóttur töfralæknisins í Pinuya-þorpinu. Þar hefur hann fundið innri frið, sátt og langþráða tilfinningu að tilheyra.
    3 hr 55 min

About Rauða borðið

From the publisher's feed

Róttæk samfélagsumræða.

Best of Rauða borðið

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Rauða borðið

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

475 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

23 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Eyjan by Eyjan

Eyjan

1 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners