Rauða borðið

Rauða borðið

By Gunnar Smári EgilssonNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Rauða borðið episodes

  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38
    Föstudagur 18. september
    Vikuskammtur: Vika 38
    Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri, Freyr Eyjólfsson öskukarl og poppari, Hólmfríður Gísladóttir fréttakona og Nína Helgadóttir fulltrúi í málsvarastarfi Rauða kross Íslands koma í Vikuskammt og ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af átökum, deilum og upplausn, stríðum, mögulegum heimsenda og langdrægnum markmiðum.
    1 hr 45 min
  • Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa
    Fimmtudagur 17. september
    Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa
    Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senunni með öllum sínum tilskipunum. Ýmislegt fleira bar þó á góma. Dr. Magnús Thorson segir Ásdísi Olsen allt um Cannabis Entrepreneurship. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, kom og sagði okkur frá veiði sumarsins. Hvar veiðimenn voru kátastir með aflann og hvar ekki. Einn dagur í góðri á kostar frá 4 til 500 þúsund krónur. Heildræn heilsuhátíð fer fram í Mosfellsbæ um helgina í 16. sinn, þar sem boðið er upp á allskonar andlegt og óhefðbundið, skrítið og skemmtilegt. Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrilífsdáleiðari segir Ásdísi Olsen frá því helsta sem verður á dagskrá.
    4 hr 6 min
  • Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal
    Miðvikudagur 16. september
    Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal
    Kristinn Rúnar Þórisson prófessor í tölvuvísindum við HR ræðir um gervigreind við Gunnar Smára, hvort tæknin geti vaxið manninum yfir höfuð og eytt honum. Björn Bjarnason fyrrum þingmaður og ráðherra sendir frá sér þrjár þýðingar í ár, allt á bókum sem fjalla um breytta stöðu heimsmála. Hann segir Gunnari Smára frá þessum bókum og einkum Einræði hf. eftir Anne Applebaum. Henry Alexander Henrysson heimspekingur svarar Birni Þorláks hvort það sé í lagi að ljúga til að ná fram niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þórarinn Ævarsson athafnamaður segir Ásdísi Ólsen frá glíma sinni við OxyContin-fíkn, skömmina og óttann og sátt við föður sinn. Jón Ólafsson tónlistarmaður ræðir hljómsveit Ingimars Eydal við Björn Þorláks, sveit sem átti sér engan líka.
    3 hr 41 min
  • Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing
    Þriðjudagur 15. september
    Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing
    Flugvirkjar hafa boðað verkfall og mikið ber á milli þeirra og Icelandair. Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands skýrir stöðuna fyrir Gunnari Smára. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við menntavísindasvið, Magnús Helgason sagnfræðingur og Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump á samfélagið og heiminn. Baktal er hreinlega líkamlega skaðlegt, líkt og um útskúfun sé að ræða segir Lára G. Sigurðardóttir læknir og nemi í taugavísindum í samtali við Ásdísi Olsen. Jón Kaldal blaðamaður ræðir sundrungu innanlands og utan og hvernig öfl róa að því að tvístra fólki. Hann varar við málflutningi sem ætlað er að skapa gjá milli landsbyggðanna og höfuðborgarsvæðisins. Björn Þorláks ræðir við hann. Breki Karlsson ræðir illa þokkuð gjöld og hvort dómur sem féll í Noregi gæti orðið íslenskum neytendum búbót. Svokallaða hrakvæðingu ber einnig á góma. Hvað er það? Björn Þorláks ræðir við Breka.
    3 hr 35 min
  • Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga
    Mánudagur 14. september
    Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga
    Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi á Austurlandi gagnrýnir suma fyrrverandi félaga í VG harðlega í tengslum við áform um laxeldi á Seyðisfirði. Björn Þorláks ræðir við Jódísi. Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor á menntavísindasviði ræðir við Gunnar Smára um stöðuna á grunnskólanum í ljósi PISA. Stjórnskipuleg, söguleg, þjóðréttarleg og leikjafræðileg álitamál verða til umfjöllunar vegna áhuga Trump á að Ísland verði eitt af fylkjum Bandaríkjanna. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Skúli Sigurðsson jógakennari er giftur inn í eina merkilegustu jógafjölskyldu heims. Eiginkona Skúla, dr. Kamini Desai, er merkilegur frumkvöðull sem starfar víða um heim og hefur kennt hundruðum Íslendinga Yoga Nidra. Skúli segir frá einstakri ástarsögu þeirra Kamini í samtali við Ásdísi Olsen.
    3 hr 41 min
  • Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál
    Sunnudagurinn 13. september
    Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál
    Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga, fjölmiðla og fleira. Síðan koma að ræða öryggis- og utanríkismál þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Albert Jónsson fyrrum sendiherra og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðis og landakorts og símtals Donald Trump. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 21 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Lýður Árna
    Laugardagur 12. september
    Helgi-spjall: Lýður Árna
    Lýður Árnason læknir er litríkur persónuleiki sem hefur komið víða við. Hann ræðir sjálfan sig, læknisfræðina, pólitík og samfélagið í helgi-spjalli við Björn Þorláks.
    1 hr 47 min
  • Föstudagur 11. september - Vikuskammtur: Vika 37
    Föstudagur 11. september
    Vikuskammtur: Vika 37
    Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor, Valgerður Árnadóttir aktívisti, Lísa Margrét Gunnarsdóttir stúdent og Bubbi, nemi við Verzló, ræða við Björn Þorláks um fréttir vikunnar. Verður Ísland innlimað í Bandaríkin? Eru nemendur í háskólanum að verða vitlausari og vitlausari? Hvert stefnir ríkisstjórnin? Þessi mál og fleiri til umræðu.
    1 hr 18 min
  • Rauða borðið 10. sept - Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni
    Fimmtudagur 10. september
    Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni
    Erna Indriðadóttir, Helga Jónsdóttir og Magnús Stefánsson voru reynsluboltarnir að þessu sinni. farið yfir stefnuræðu forsætisráðherra og mál tengd henni, stöðu Reykjavíkurborgar, mismunin á þéttbýlinu og landsbyggðinni, ESB kosningarnar og ýmislegt annað. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um heimsmálin og ekki síst Trump; viðskiptastríð hans við Kanada og viðbrögð íslenskra stjórnvalda við korti sem hann dundaði sér við að gera. Rithöfundar eru enn og aftur settir í óvissu vegna niðurskurðar á bókasafnssjóði. Rithöfundarnir Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins, og Kristín Helga Gunnarsdóttir fyrrverandi formaður Rithöfundarsambandsins, komu og töluðu um óvissu um afkomu rithöfunda. Þórir Baldursson er að fara að gefa út tvær plötur og halda tónleika með Gömmum, gamla tónlist sem hann fann í fórum sínum. Hann kom við á Samstöðinni og ræddi við Gunnar Smára. Sigurpáll Ingibergsson, áhugamaður um íslenska jökla, ræðir við Björn Þorláks um skaflinn í Esju og válegar vísbendingar í umhverfismálum. Líkur eru á að skaflinn gufi upp næsta mánudag.
    3 hr 17 min
  • Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir
    Miðvikudagur 9. september
    Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir
    Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppistandari, segir Gunnari Smára frá nýju bókinni sinni sem fjallar um mennsku og gervigreind. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Víði Sigurðsson íþróttasérfræðing um fótbolta.
    3 hr 58 min

About Rauða borðið

From the publisher's feed

Róttæk samfélagsumræða.

Best of Rauða borðið

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Rauða borðið

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

475 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

23 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Eyjan by Eyjan

Eyjan

1 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners