Rauða borðið

Rauða borðið

By Gunnar Smári EgilssonNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Rauða borðið episodes

  • Sunnudagurinn 30. ágúst Bridgeþátturinn - Bermúda
    Sunnudagurinn 30. ágúst
    Bridgeþátturinn - Bermúda
    Jón Hersir Elíasson læknir og landsliðseinvaldur ræðir heimsmeistaramótið í bridds næsta ár en Íslendingar taka þá í þriðja skipti þátt í keppninni um hina víðfrægu Bermúdaskál. En hvernig verður landsliðið í opna flokknum skipað? Breytingar verða frá EM. Björn Þorláks sér um þáttastjórn.
    37 min
  • Synir Egils 30. ágúst - Dagurinn eftir þjóðaratkvæði
    Sunnudagurinn 30. ágúst
    Synir Egils: Dagurinn eftir þjóðaratkvæði
    Við förum yfir stöðu samfélagsins daginn eftir þjóðaratkvæði um Evrópusambandið. Fyrst með þeim Kristján Kristjánssyni fyrrum umsjónarmanns Sprengisands, nú umsjónarmanns Kastljóss, Aðalsteini Kjartanssyni aðstoðarritstjóra Heimildarinnar og Sirrý Hallgríms fyrrverandi aðstoðarkonu ráðherra. Síðan koma þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, María Rut Kristinsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og meta áhrifin af niðurstöðunni. Þá fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 14 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 35
    Föstudagur 28. ágúst
    Vikuskammtur: Vika 35
    Við förum yfir fréttir vikunnar með góðum hópi fólks; Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðslistakona ræða við Gunnar Smára um fréttir sem einkennast af spennu, átökum og von um góða niðurstöðu.
    1 hr 43 min
  • Rauða borðið - 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði
    Fimmtudagur 27. ágúst
    Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði
    Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrum þingkona, Sigurður Már Jónsson blaðamaður og Sigurður Þór Salvarsson blaðamaður eru gestir Sigurjóns Magnúsar. Evrópumál, uppsagnir hjá borginni og önnur fréttamál ber á góma. Steinar Harðarson, fyrrum svæðisstjóri vinnueftirlits, ræðir sögu vinnuverndar í samtali við Björn Þorláks. Hann segir að umbætur hafi að jafnaði komið að utan. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir álitamál í Evrópurétti og hvaða breytingar gætu orðið til góðs eða ills ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu. Björn Þorláks ræðir við hann. Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur ræðir árin frá seinni stríði í Evrópu. Þeir sem nú hamast mest gegn ESB myndu verða þeir fyrstu til að krefjast aðstoðar þaðan ef eitthvað hræðilegt myndi gerast hérlendis, segir Valur í samtali við Björn Þorláks.
    3 hr 7 min
  • Rauða borðið 26. ágúst - ESB, samvinna, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar
    Miðvikudagur 26. ágúst
    ESB, samvinna,, Múlakaffi, samræðusiðfræði og kennarar
    Svandís Svavarsdóttir fyrrum ráðherra, þingmaður, borgarfulltrúi og formaður VG segir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Þóroddur Ingvarsson svæfingalæknir á Akureyri ræðir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu í tengslum við björgun sjúklinga og tengir við þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan. Björn Þorláks ræðir við hann. Allir viðmælendur Samstöðvarinnar í slembiúrtaki á Múlakaffi ætla að kjósa eins á laugardag. Björn Þorláks og Pétur Fjeldsted kynntu sér raddir fullorðinna karla. Vilhjálmur Árnason prófessor ræðir við Gunnar Smára um samræðusiðfræði, gildi samtalsins fyrir mennskuna og samfélagið og hvað gerist þegar við týnum samræðunni. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, telur ekki ástæðu til að kennarar biðjist afsökunar á bágri frammistöðu nemenda skv. Pisa. Björn Þorláks ræðir við hann um raddir þar að lútandi og mörg önnur mál sem varða skólastarf.
    4 hr 1 min
  • Rauða borðið 25. ágúst - Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending
    Þriðjudagur 25. ágúst
    Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending
    Nei eða já í Evrópukosningunni, uppsagnir í borginni, menntamál og fleira verður krufið í fréttaspjalli Björns Þorlákssonar við Jón Trausta Reynisson blaðamann, Lárus Guðmundsson athafnamann og Margréti Tryggvadóttur rithöfund. Brýn þörf er á að auka við hjúkrunarrými og legupláss. En hvaða fólk á að starfa þar? Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, hittu Sigurjón Magnús. Að lækka sakhæfisaldur minnkar ekki endilega glæpi heldur þvert á móti. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræðir við Björn Þorláks um skref Svía að fara niður í 14 ár. Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona fór í háskólanám eftir að hafa verið Þjóðeikhússtjóri og ver doktorsritgerð sína á næstu dögum. Hún segir Gunnari Smára frá náminu, þýðingum, leikhúsi og lífinu.
    3 hr 25 min
  • Rauða borðið 24. ágúst - ESB, já eða nei, evra, króna og allt það
    Mánudagur 24. ágúst
    ESB, já eða nei, evra, króna og allt það
    Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar útskýrir fyrir Gunnari Smára hvers vegna hún ætlar að segja nei á laugardaginn. Er ESB bandalag hnignunar eða á minni hagvöxtur sér eðlilegar skýringar? Jean-Rémi Chareyre, sjálfstætt starfandi blaðamaður, ræðir við Björn Þorláksson. Ólafur Margeirsson hagfræðingur í Sviss ræðir ESB við Gunnar Smára, en Sviss er bæði utan ESB og EES. Auðunn Arnórsson alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir ESB-mál en hann segir að kosningin um næstu helgi gjaldi fyrir veika fjölmiðlun hér á landi. Björn Þorláks ræðir við hann.
    3 hr 19 min
  • Synir Egils 23. ágúst - Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur
    Sunnudagurinn 23. ágúst
    Synir Egils: Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur
    Við ræðum fréttir og stöðu samfélagsins við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og þrjá prófessora: Sigrún Ólafsdóttur félagsfræðing og stjórnmálafræðingana Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Síðan reyna þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek að sannfæra okkur að segja nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta laugardag. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 10 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Óttar Guðmunds
    Laugardagur 22. ágúst
    Helgi-spjall: Óttar Guðmunds
    Óttar Guðmundsson geðlæknir kemur í Helgi-spjall og segir okkur frá æsku sinni og uppruna, mótunarárum og því ýtti undir þroska hans og hefti hann.
    2 hr 34 min

About Rauða borðið

From the publisher's feed

Róttæk samfélagsumræða.

Best of Rauða borðið

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Rauða borðið

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

138 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

23 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Eyjan by Eyjan

Eyjan

1 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners