Rauða borðið

Rauða borðið

By Gunnar Smári EgilssonNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Rauða borðið episodes

  • Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir
    Miðvikudagur 9. september
    Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir
    Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppistandari, segir Gunnari Smára frá nýju bókinni sinni sem fjallar um mennsku og gervigreind. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Víði Sigurðsson íþróttasérfræðing um fótbolta.
    3 hr 58 min
  • Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar
    Þriðjudagur 8. september
    PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar
    Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, koma til okkar til að ræða nýjustu PISA-könnunina. Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Ólafur Þ. Harðarson prófessor velta fyrir sér í spjalli við Gunnar Smára hvað Trump er að hugsa og hvað hann ætli að gera. Þingmennirnir Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, og Stefán Vagn Stefánsson, annar varaformaður nefndarinnar, mæta til að ræða fjárlög ríkisstjórnarinnar. Víst er að þeir eru fjarri því að vera sammála. Sigmundur Ernir Rúnarsson, eitt þekktasta andlit sjónvarpsfrétta sögunnar, ræðir einokunarstöðu Rúv í sjónvarpsfréttum. Hann ræðir einnig þingveturinn fram undan og svartar niðurstöður PISA í samtali við Björn Þorláks. Sú óvænta staða er uppi að allir þingflokksformenn flokka sem eiga sæti á Alþingi lýsa yfir stuðningi við hvalveiðar. Samt er stefna Samfylkingarinnar að hætta hvalveiðum. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir þessa þversögn í samtali við Björn Þorláks.
    3 hr 33 min
  • Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi
    Mánudagur 7. september
    Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi
    Margt bendir til að hefðbundin nálgun heilbrigðiskerfisins dugi ekki í öllum tilvikum gagnvart þeim sem líður illa andlega. Of mikil áhersla er á lyfjagjöf. Sjálfsvíg eru þjóðarmein. Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli ræðir við Björn Þorláksson. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur fer yfir helstu fréttir í Bretlandi með Gunnari Smára; landsfund Umbótaflokksins, dauða Jason Arday og fyrstu daga nýs forsætisráðherra. Kvenska og karlmennska voru til umræðu í viðtali Ásdísar Ólsen við Hönnu Björk Vilhjálmsdóttur, brautryðjanda í kynjafræði framhaldsskólanna. Þar kom fram að reiði og ofbeldi geta verið afleiðing af tilfinningabælingu hjá strákum. Einnig var rætt um kvensku og mæðrahyggja, og hve mikilvægt er að allir uppeldisaðilar séu meðvitaðir um kynjaskekkjurnar. Sverrir Jakobsson prófessor segir Gunnari Smára frá myndun ríkisvalds á Íslandi og fyrstu öldum landsins undir Noregskóngi. Kórstjórarnir Sunna Karen Einarsdóttir og Magnús Ragnarsson ræða gildi söngsins, Jón Stefánsson organista og kórstjóra; arfleifð hans, tónleika og minningasjóð. Björn Þorláks ræðir við þau.
    5 hr 19 min
  • Synir Egils 6. sept - Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi
    Sunnudagurinn 6. september
    Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi
    Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafur Adolfsson og ræða stöðu mála, flokka og ríkisstjórnar við upphaf haustþings. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
    2 hr 21 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Ágústa
    Laugardagur 5. september
    Helgi-spjall: Guðrún Ágústa
    Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, hefur frá mörgu að segja. Hún trúir á Jesús og er skírð í Fíladelfíu. Hún hefur víða komið við. Sat i bæjarstjórn Hafnarfjarðar og varð fyrsta konan til að vera bæjarstjóri þar. Sem framkvæmdastjóri Samhjálpar hefur hún mætt miklu andstreymi vegna kaffistofu Samhjálpar sem átti að verða við Grensásveg en flutningur þangað stöðvaður á síðustu stundu. Þetta og svo margt annað ber á góma.
    1 hr 33 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 36
    Föstudagur 4. september
    Vikuskammtur: Vika 36
    Eva Halldóra Guðmundsdóttir sviðslistakona, Magnús Scheving frumkvöðull, Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastýra Vesturports og Sigurlaug Didda Jónsdóttir skáldkona ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkendust af sigrum og svekkelsi, verðbólgu og hækkandi vöxtum, slysum, rannsóknarheimildum, listum og menningu.
    1 hr 50 min
  • Rauða borðið 3. sept - Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland
    Fimmtudagur 3. september
    Vald hinna veiku, drengirnir, áfallameðferð og Þýskaland
    Guðni Th. Jóhannesson prófessor ræðir við Gunnar Smára um þorskastríðin í tilefni að útgáfu bókar hans um útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Tryggvi Hjaltason hefur gert sig gildandi í umræðu um æsku og skólamál. Hann lýsir afstöðu sinni í samtali við Gunnar Smára. Nú er í boði sérhæfð tíu vikna áfallameðferð fyrir konur sem glíma við fíkn, kvíða, þunglyndi og skömm, en Margrét Louise Gunnarsdóttir sálmeðferðarfræðingur og Harpa Katrín Gísladóttir sálfræðingur leiða námskeiðið á vegum Rótarinnar og Grænuhlíðar. Ásdís Olsen ræðir við þær. Jóhanna Ýr Bjarnadóttir doktor í stjórnmálafræði í Berlín ræðir við Gunnar Smára um kosningar í Saxony-Anhalt þar sem flest bendir til stórsigurs AfD, Valkost fyrir Þýskaland, sem er flokkur útlendingaandúðar yst á hægrinu.
    3 hr 58 min
  • Rauða borðið 2. sept - Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós
    Miðvikudagur 2. september
    Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós
    Þórunn Sigurðardóttir, Þröstur Ólafsson og Guðmundur Þ. Ragnarsson ræða helstu mál samfélagsins við Sigurjón Magnús. Kári Sigurðsson formaður Sameykis ræðir uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og stöðu kjarasamninga við Gunnar Smára. Jón Kalman rithöfundur ræðir bók, Maríuklefann, sem er að koma út eftir Eirík Guðmundsson, útvarpsmann. Jón ritar eftirmála að bókinni og lýsir fyrir Birni Þorláks hvers konar rit er um að ræða. Eiríkur lést um aldur fram fyrir nokkrum árum. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif þjóðaratkvæðagreiðslunnar á utanríkisstefnu Íslands. Ættu stjórnvöld að draga úr samþættingu stefnunnar við stefnu Evrópusambandsins? Víðir Sigurðsson ræðir íslenska knattspyrnu við Sigurjón Magnús. Þar er af nógu að taka þegar Íslandsmótið stendur hvað hæst. Við getum verið miklu meira vakandi fyrir því sem vel er gert og þjálfað taugabrautir í heilanum til að sjá það góða og fallega í lífinu, segir Ingrid Khulman. Hún hræðir við Ásdísi Olsen og kennir okkur að hrósa.
    4 hr 49 min
  • Rauða borðið 1. sept - Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó
    Þriðjudagur 1. september
    Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó
    Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, segir að fram undan sé stór gengisfelling. Krónan sé allt of sterk. Hann ráðleggur fólki að flytja peningana sína yfir í aðra mynt. Hann ræðir þetta mál og úrslit Evrópukosningarinnar í samtali við Sigurjón Magnús Heimir Már Pétursson og Lára Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttamenn á fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar, ræða við Björn Þorláks og Sigurjón Magnús þá stöðu sem upp er komin að sjónvarpsfréttir keppinautar Rúv heyra sögunni til. Hvaða áhrif verða af því á samfélagið? Ingibjörg Ottesen eldri borgari, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Kristín Erna Arnardóttir hjá Sameyki ræða fréttir líðandi stundar. Þórný Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur fann leið út úr alvarlegu þunglyndi og segir Ásdísi Olsen frá því. Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, ræðir nýjan aðalhljómsveitarstjóra, Barböru Hannigan, og fer yfir hluta af dagskrá sveitarinnar fram að áramótum. Sól Björnsdóttir og Björn Þorláks ræða við Guðna.
    4 hr 13 min
  • Rauða borðið 31. ágúst - Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir
    Mánudagur 31. ágúst
    Eftir kosningar, Stuðlagil, Trump, Landhelgisgæsla og uppsagnir
    Gunnar Smári ræðir við fólk með víðtæka reynslu úr stjórnmálum og fjölmiðlum um stöðu stjórnmála og samfélags eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður ræðir öryggismál í Stuðlagili. Hann segir samspil nokkurra þátta kunna að skýra banaslys við náttúruperlur. Björn Þorláks ræðir við Pál. Það er stutt í mikilvægar þingkosningar í Bandaríkjunum og við endurvekjum af þeim sökum upp Trumptímann. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump, komandi kosningar, áhrif Trump á Evrópu og Evrópusambandið, viðskiptastríð við Kanada o.s.frv. Persónulegt viðtal við forseta Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, sem útskýrir brestina í röddinni sinni og hvernig hann þarf stundum að berja í borð til að fá hlustun. Georg rifjar upp hvernig var að alast upp í einangrun á prestsetri í Önundarfirði, þar sem varðskip kom oft til bjargar. Hann fagnar 20 ára starfsafmæli og segist vera í draumastarfinu sínu í viðtali við Ásdísi Olsen. Valgeir Þór Jakobsson hjá Samfés ræðir við Björn Þorláks um uppsagnir á velferðar- og frístundasviði hjá borginni. Hann fordæmir öfugþróun og tekur undir áhyggjur lögreglu f vaxandi unglingadrykkju.
    4 hr 30 min

About Rauða borðið

From the publisher's feed

Róttæk samfélagsumræða.

Best of Rauða borðið

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Rauða borðið

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

138 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

23 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Eyjan by Eyjan

Eyjan

1 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners