Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 21
    Föstudagurinn 24. maí
    Vikuskammtur: Vika 21
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, stríðum og átökum.
    1 hr 52 min
  • Grimmi og Snar #15 - Hver er númer hvað?
    Í mystery boxinu 🌫️ hjá Grimma og Snar les talnaspekingurinn 🎰Estrid Þorvaldsdóttir í tölur forsetaframbjóðandanaog gefur þeim ráð. Sérstakur þáttur fyrir frambjóðendur og aðra forvitna 🎲
    1 hr 43 min
  • Rauða borðið 23. maí - Forsetakjör, smáríki, húsaleigulög og sinfónía
    Fimmtudagurinn 23. maí
    Forsetakjör, smáríki, húsaleigulög og sinfónía
    Við ræðum forsetakjör við Rauða borðið. Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður, Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og Helga Arnardóttir fjölmiðlakona ræða ýmsar hliðar baráttunnar. Síðan kemur Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi og ræðir um stöðu smáríkis í viðsjárverðum heimi. Steinunn Þóra Árnadóttir formaður velferðarnefndar ræðir frumvarp um húsaleigulög, sem leigjendur segja lítil hænuskref í átt að réttlæti. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur vakið athygli og verið til umræðu í erlendum fréttamiðlum síðustu vikur. Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri kemur og segir okkur hvers vegna.
    3 hr 45 min
  • Heima er bezt - Helgi Máni Sigurðsson
    Miðvikudagur, 22. maí
    Heima er bezt - Helgi Máni Sigurðsson
    Helgi Máni Sigurðsson er gestur Heima er bezt að þessu sinni. Mest er talað um trébáta síðustu aldar og eins nokkuð um fornbáta. Helgi Máni hefur frá mörgu að segja.
    37 min
  • Rauða borðið 22. maí - Fátækt, forsetakjör, fiskar og auðlindir
    Miðvikudagurinn 22. maí:
    Fátækt, forsetakjör, fiskar og auðlindir
    Við ræðum við tvö forsetaframbjóðendur um mál sem þeir hafa lagt áherslu á. Halla Tómasdóttir segir okkur hvers vegna samfélagið er á villigötum og frá þeirri vakningu sem hún telur nauðsynlega. Halla Hrund Logadóttir segir okkur frá sinni sýn á auðlindir þjóðarinnar og hvers vegna við þurfum að móta stefnu um nýtingu þeirra. Í byrjun þáttar kemur Guðmunda Greta Guðmundsdóttir öryrki að Rauða borðinu, en hún hefur lýst kjörum öryrkja í pistlaskrifum. Útgerðarmenn og sjómenn segja að fiskurinn sé að horast upp. Við fáum Jón Kristjánsson til að segja okkur hvað það merkir. Og Benedikt Sigurðarson kemur við og ræðir auðlindanýtingu, til sjávar og sveita en ekki síst í ferðaþjónustu.
    3 hr 32 min
  • Með á nótunum - 99
    Þriðjudagur 21. maí
    Með á nótunum - 99
    Velheppnaðir Rottweiler tónleikar voru um helgina og fórum yfir það. Möguleg nýjung fyrir djammið var fundin upp í leiðinni. Cannes kvikmyndahátíðinn er í fullum gangi og Demi Moore er að slá þar í gegn. Óvænt heilsuhorn þáttarins var mætt aftur farið yfir þau mál. Björk Guðmundsdóttir veldur usla með Dj setti en við höldum með okkar konu. Aðeins lítið brot af því sem farið var yfir að ógleymdum afmælisbörnum.
    1 hr 12 min
  • Rauða borðið 21. maí - Forsetakosningar og stúdentauppreisn
    Þriðjudagurinn 21. maí
    Forsetakosningar og stúdentauppreisn
    Forsetakosningarnar setja sitt mark á þátt kvöldsins. Fyrst koma þau Sigmundur Ernir Rúnarsson skáld og blaðamaður, Ásgeir Friðgeirsson PR-maður, Guðmundur Andri Thorsson rit- og pistlahöfundur og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor og fyrrum blaðakona og ræða kosningabaráttuna frá ýmsum sjónarhólum. Jón Gnarr forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hann á við þegar hann segist vilja beita sér gegn leiðindum. Við sláum á þráðinn til Ísabellu Lenu Borgarsdóttur í Nijmegen í Hollandi þar stúdentar hafa reist tjaldbúðir á háskólalóðinni til stuðnings Palestínu. Og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hún á við þegar hún segir að forseti verði að standa gegn þeim sem eiga og ráða.
    3 hr 27 min
  • Rauða borðið 21. maí: Aukaþáttur - Grindavík
    Þeir Sigurbjörn Daði Dagbjartsson blaðamaður, Aðalgeir Jóhannsson netagerðanmaður og Magnús Gunnarsson trillukarl eruí hópi örfárra íbúa sem sem enn gista í Grindavík og hafa engin áform uppi um að gefast upp. Þeir eru mjög ósáttir við margt og ræða hispuslaust tilfinningar sínar pg skort sem þeir upplifa á mannlegu viðmóti í samtali við Björn Þorláks.
    1 hr 9 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Harpa Njáls
    Laugardagurinn 18. maí
    Helgi-spjall: Harpa Njáls
    Harpa Njáls félagsfræðingur er gestur Helgi-spjalls, segir okkur frá baráttu sinni fyrir að samfélagið og stjórnmálin horfist í augu við fátæktina en líka frá uppvexti sínum á Suðureyri við Súganda, áföllum sem riðu yfir, basli og erfiðri lífsbaráttu, þátttöku sinni verkalýðsbaráttu og annarri baráttu fyrir betra lífi lágstéttanna.
    2 hr 43 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners