Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 13. maí - Kaupmáttur, vextir, þingið, fjölmiðlar og Nató
    Mánudagurinn 13. maí
    Kaupmáttur, vextir, þingið, fjölmiðlar og Nató
    Hagráð verkalýðsins kemur að Rauða borðinu: Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM og Stefán Ólafsson sérfræðingur Eflingar taka stöðuna á vaxta stefnu Seðlabankans og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og velta fyrir sér hvort forsendur kjarasamninga muni halda. Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir settust saman á þing fyrir 25 árum, árið 1999. Björn Þorláks fær þær í heimsókn í Þingið og líka tvo blaðamenn sem nýverið réðu sig í þjónustu þingflokka; Atla Þór Fanndal starfsmann Pírata og Sunnu Valgerðardóttir starfsmann Vg. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og ræðir varnar- og öryggisstefnu stjórnvalda út frá yfirlýsingum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.
    4 hr 3 min
  • Sjávarútvegsspjallið - Hafrannsóknir á Íslandi
    Sjávarútvegsspjallið, mánudaginn 13. maí
    Hafrannsóknir á Íslandi
    Gestir þáttarins að þessu sinni eru Arnar Atlason, Árni Sveinsson og Ólafur Jónsson (Óli ufsi) sem munu ræða hafrannsóknir á Íslandi og íslenska kvótakerfið. Þáttarstjórandi er Grétar Mar Jónsson.
    1 hr 8 min
  • Synir Egils: Vaxtaokur, forsetakjör, pólitík og völd
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessu sinni koma þau Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi, Sunna Sæmundardóttir fréttakona og Viðar Eggertsson leikstjóri og ræða vexti, forseta, söngvakeppni, pólitík og samfélagsmál. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni og fá síðan Ragnhildi Helgadóttur rektor í spjall um valdsvið forsetans og hversu mikið megi teygja það og toga.
    2 hr 22 min
  • Heimsmyndir - Grétar Halldór Gunnarsson
    Gestur þáttarins er Grétar Halldór Gunnarsson prestur í Kópavogskirkju. Hann kom í þáttinn til að ræða við Kristin um eðli trúar, sem hægt er að skoða bæði trúarlega, sálfræðilega og heimspekilega. Er kristnin með góða nálgun við þetta óræða eitthvað sem við köllum guð? Eru trúarbrögðin viðbrögð við meðvitund um takmarkanir tungumáls og skilnings? Þetta varð flókið og skemmtilegt spjall ólíkra huga.
    1 hr 2 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Fida
    Laugardagurinn 11. maí
    Helgi-spjall: Fida
    Fida Abu Libdeh er frumkvöðull, palestínskur Íslendingur, sem ólst upp í Jerúsalem en kom hingað ung kona. Hún segir okkur frá ætt sinni og uppruna, æsku og mótun, reynslu hennar sem innflytjandi á Íslandi og hvernig henni tókst að yfirvinna margvíslega erfiðleika.
    2 hr 18 min
  • Vikuskammtur 10. maí
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur, Lóa Björk Björnsdóttir útvarpskona, Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson verkefnastjóri við HÍ og Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjóri og ræða fréttir vikunnar sem voru markaðar af baráttunni um Bessastaði, af þjóðarmorði á Gaza, háum vöxtum og deilum um frammistöðu fjölmiðla og stjórnmálafólks.
    1 hr 43 min
  • Heima er bezt - Helgi Pétursson
    Miðvikudagur 8. maí
    Heima er bezt - Helgi Pétursson
    Helgi Pétursson tónlistarmaður og formaður Landssambands eldri borgara er gestur í Heima er bezt að þessu sinni. Barátta fyrir hagsmunum eldra fólks á hug hans allan. Auk þess að ræða um þá baráttu verður einnig talað um árin hans í Ríó tríóinu og sorgleg endalok þeirrar sveitar.
    59 min
  • Rauða borðið 8. maí - Vextir, kynlaust mál og samfélagsmál við eldhúsborðið
    Miðvikudagurinn 8. maí:
    Vextir, kynlaust mál og samfélagsmál við eldhúsborðið
    Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins er agndofa yfir að Seðlabankinn lækkar ekki vexti. Hann hvetur til fjöldamótmæla við Seðlabankann. Við fáum Völu Hafstað, umtalaðasta greinahöfund dagsins, til okkar en hún hafnar kynhlutleysi íslenskunnar. Í lokin fáum við hjónin Helgu Völu Helgadóttur og Grím Atlason og dóttur þeirra, Ástu Júlíu Grímsdóttur körfuboltakonu, til að segja okkur frá hvernig rætt er um samfélagsmál við eldhúsborðið á þeirra heimili, til dæmis hvernig þar er nú rætt um forsetakosningar.
    2 hr 31 min
  • Rauður raunveruleiki - Umhyggja, siðferði, samfélag og Marx / Gústav Sigurbjörnsson
    Í Rauðum raunveruleika í kvöld tölum við við nýdoktor í heimspeki, hann Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson. Doktorsverkefnið hans snérist um frásagnir fórnarlamba af ofbeldi. Um tengsl frásagna og samkenndar og hvaða takmörkunum við erum háð þegar við reynum að koma orðum að reynslu okkar þvert á lífheima.
    Við ræddum við Gústav um hryllinginn á Gaza, um siðrof, samkennd, firringu og Marxisma. Um misskiptinguna í heiminum, kapítalisma, arðrán og um hugmyndafræði. Rætt um stóru málin og spurningarnar á Samstöðinni klukkan 19:00.
    1 hr 7 min
  • Með á nótunum - 97
    Gerðum forsetakappræðunum góð skil og fórum yfir hvernig Ásdís Rán er að fjármagna sína baráttu. Laufey Lín var á Met Gala mögulega fyrst Íslendinga. Dóttir söngkonunnar úr Mamas & the Papas stígur fram og leiðréttir dánarorsök móður sinnar. Whoopie Goldberg er að gefa út ævisögu sína og Starfsmenn kvikmyndahátíðarinnar Cannes eru á leiðinni í verkfall. Þátta og kvikmyndameðmæli að ógleymdum afmælisbörnum.
    1 hr 6 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners