Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Ráðherra, ópera, góðverk, kynslóðir og forseti
    Þriðjudagurinn 7. maí
    Ráðherra, ópera, góðverk, kynslóðir og forseti
    Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg og félagsmálaráðherra kemur að Rauða borðinu og ræðir um breytingar á almannatryggingum og eilítið um pólitík. Þórunn Gréta Sigurðardóttir tónskáld, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leikstjóri og Herdís Anna Jónasdóttir sópran ræða við okkur um Óperuna hundrað þúsund og Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir, Salvör Árnadóttir og Vésteinn Gunnarsson nemendur í Hagaskóla um samfélagslega ábyrgð. Einar Lövdahl Gunnlaugsson skrifaði bókina Gegnumtrekkur sem Hallgrímur Helgason las. Þeir koma til okkar og ræða bókina, kynslóðir, karlmennsku og margt annað. Í lokin segir Viktor Traustason okkur frá forsetaframboði sínu.
    3 hr 53 min
  • Rauða borðið 6. maí - Átök í þinginu, auðlindir, Gaza og maður í framboði
    Mánudagurinn 6. maí
    Átök í þinginu, auðlindir, Gaza og maður í framboði
    Björn Þorláks fær fjóra þingmenn og einn varaþingmann til að ræða málin í Þinginu, þar sem einn þingmaður ásakar annan um að vera eitrið sem hafi átt að uppræta. Þingmennirnir Jódís Skúladóttir frá Vg, Andrés Ingi Jónsson frá Pírötum, Dagbjört Hákonardóttir úr Samfylkingunni og Ingibjörg Isaksen frá Framsókn og Brynjar Níelsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins takast á. Þorvaldur Gylfason prófessor gagnrýnir frumvarp um lagareldi af ákefð og ekki síður tilraunir Katrínar Jakobsdóttur til að breyta stjórnarskránni. Fida Abu Libdeh orkuumhverfistæknifræðingur og frumkvöðull er íslenskur Palestínumaður og ræðir við okkur um ástandið á Gaza og afstöðu íslenskra stjórnvalda. Í lokin fáum við forsetaframbjóðanda að Rauða borðinu. Eiríkur Ingi Jóhannsson rafvirki segir okkur hvers vegna hann vill verða forseti.
    3 hr 37 min
  • Synir Egils 5. maí - Forseti, mútur, spilling og almannatryggingar
    Sunnudagurinn 5 . maí
    Synir Egils: Forseti, mútur, spilling og almannatryggingar
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan rannsóknarritstjóri á Heimildinni, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og ræða fréttir vikunnar, stöðu stjórnmála og samfélags. Síðan taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni. Alma Ýr Ingólfsson formaður ÖBÍ, Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar og Unnur Helga Óttarsdóttir formaður Þroskahjálpar koma síðan að borðinu og fjalla um frumvarp til breytinga á almannatryggingum
    2 hr 30 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur - Vika 18
    Föstudagur, 3. mai
    Vikuskammtur - Vika 18
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður, Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem voru litaðar af mikilli umfjöllun um forsetakosningar og lítilli um Júróvision, af deilum um hver ætti að eiga firðina, af landrisi á Reykjanesi og pólitísku sigi Vg.
    1 hr 33 min
  • Rauða borðið 2. maí - Kennarastofan á Bifröst, Atli Örvars, strandeldi og vinstrið
    Fimmtudagurinn 2. maí
    Kennarastofan á Bifröst, Atli Örvars, strandeldi og vinstrið
    Við byrjum á því að heyra hvernig kennarastofan á Bifröst ræðir um landsins gagn og nauðsynjar. Dr Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og forseti félagsvísindadeildar; dr. Njörður Sigurjónsson, prófessor og fagstjóri i menningarstjórnun; dr. Magnús Árni Skjöld, dósent og fagstjóri stjórnvísinda; og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, lektor og fagstjóri skapandi greina komaað Rauða borðinu. Við sláum á þráðinn til Atla Örvars sem nýverið vann til Bafta-verðlauna og ræðum við Jóhannes Sturlaugsson líffræðing um strandeldi. Í lokin ræðum við um pólitík og vinstrið sérstaklega við Rósu Björk Brynjólfsdóttur sem bæði hefur setið á þingi fyrir Vg og Samfylkingu.
    4 hr 11 min
  • Með á nótunum - 96
    Með á nótunum 30. apríl
    Britney Spears er komin í vandræði og stefnir í gjald og andlegt þrot. Spáð í spilin með forsetakosningarnar. Kanye West er að byrja í klámbransanum og eltihrellirinn úr Baby Reindeer þáttunum er allt annað en sátt. Bíó meðmæli og afmælisbörn vikunnar.
    1 hr 5 min
  • Rauða borðið 30. apríl - Kristrún og Samfylkingin, dánaraðstoð, strandeldi og Fúsi
    Þriðjudagurinn 30. apríl
    Kristrún og Samfylkingin, dánaraðstoð, strandeldi og Fúsi
    Við byrjum á viðtali við Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar um einmitt þettta, Kristrúnu og Samfylkinguna. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins kemur síðan að Rauða borðinu og ræðir um dánaraðstoð, sem hún er alfarið á móti. Alfreð Sturla Böðvarsson ljósamaður tók sig til og skrifaði gegn strandeldi vegna þess að honum ofbauð. Hvað fær svokallaðan venjulegan mann til að láta í sér heyra? Þeir frændur Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, kallaður Fúsi, hafa sett um heimildarleikrit um Fúsa. Við ræðum við þá um verkið, erindi þess og forsögu.
    2 hr 43 min
  • Rauður raunveruleiki - Kvennaverkföll, feminismi og stéttarbarátta

    Í dag ætlum við að ræða um kvennaverkföll, feminisma og stéttarbaráttu með Sonju Þorbergsdóttir, formanni BSRB, Söru Stef Hildardóttur, verkefnastjóra hjá Landsbókasafni Íslands, Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins og Valgerði Þ. Pálmadóttir, nýdoktor í hugmyndasögu. 

    Við byrjum á því að horfa á stutt brot frá kvennaverkfallinu 1975 og ræðum um árangur baráttunnar, um stöðuna í dag, um hugmyndasögu femínisma og um leiðina fram á við í baráttunni fyrir jöfnuði, réttlæti og mannsæmandi lífi fyrir öll!

    1 hr 2 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners