Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Frelsið er yndislegt - #7 Karlar og fangelsi
    Frelsið er yndislegt - #7 Karlar og fangelsi
    Menn sem setið hafa í fangelsi ræða fangavistina. Í þessum þætti koma saman nokkrir menn sem allir hafa setið í fangelsi, og ræða fangavistina frá upphafi til enda. Upphaf afplánunar, þrepaskipting afplánunar, svört menning í fangelsum, meðferðarstarf, nýtt öryggisfangelsi, áhyggjur af ungu fólki á fangelsum, hvaða vímugjafar eru mest notaðir og hvað tekur við eftir afplánun. Viðmælendur þáttarins eru: Ingólfur Snær, Ásgeir Þór og Andri Ástráðs. Stjórnendur þáttarins eru: Guðmundur Ingi Þóroddsson og Ásdís Birna Magnúsdóttir
    1 hr 22 min
  • Reykjavíkurfréttir - Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa
    Reykjavíkurfréttir, 30. apríl
    Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa.
    Sanna Magdalena Mörtudóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir fjalla um það helsta sem hefur átt sér stað í borgarmálum upp á síðkastið. Við fjöllum um fyrirhugaða 16 hæða hóteluppbyggingu sem á að reisa á Skúlagötu, umræður um byggingarfélag Reykjavíkurborgar, laun á leikskólum og fræðslumyndband velferðarsviðs um einhverfu.
    36 min
  • Rauða borðið 29. apríl - Strandeldi, auðlindir, Breiðholt og árshátíð Samstöðvarinnar
    Mánudagurinn 29. apríl
    Strandeldi, auðlindir, Breiðholt og árshátíð Samstöðvarinnar
    Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar kemur til okkar og ræðir lagareldi og önnur auðlinda- og umhverfismál. Síðan kemur kemur Óskar Dýrmundur Ólafsson framkvæmdastjóri hverfismiðstöðvar Reykjavíkurborgar í Breiðholti og ræðir um stöðuna í hverfinu, áskoranir og aðgerðir. Síðan breytist Rauða borðið í eldhúspartí á árshátíð Samstöðvarinnar sem er í kvöld, við heyrum í fólkinu sem býr til þætti stöðvarinnar og ræðum fjölmiðla, samfélag og hlutverk Samstöðvarinnar.
    3 hr 10 min
  • Synir Egils 28. apríl: Forseti, pólitík og Breiðholt
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Hulda Þórisdóttir prófessor í stjórnmálafræði, Oddný Harðardóttir þingkona Samfylkingarinnar og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og ræða fréttir vikunnar. Þeir bræður taka síðan stöðuna og fá svo Eðvarð Hilmarsson kennara í heimsókn til að ræða um hvort Breiðholt brenni.
    2 hr 51 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynjar Karl
    Laugardagurinn 27. apríl
    Helgi-spjall: Brynjar Karl
    Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari kemur í Helgi-spjall og leyfir okkur að kynnast sér og sínum skoðunum, átökum og stríðum. Hvers vegna er hann alltaf í stríði? Hann segir okkur frá fjölmenningunni í Efra Breiðholti í dag og barnaveröld þess Breiðholts sem ól hann upp, segir hvað borgaryfirvöld eru getulaus til að mæta henni og frá goðsögunni um Aþenu, körfuboltafélagi.
    4 hr 19 min
  • Heimsmyndir - Sveinn Guðmundsson
    Heimsmyndir, 26. apríl
    Sveinn Guðmundsson
    Gestur þáttarins er Sveinn Guðmundsson, mannfræðingur við HÍ. Þeir Kristinn reyndu að rýna í heimspeki vinsæls vísindaskáldskapar: Dune, Star Trek og Star Wars. Þessir heimar eru um margt ólíkir. En hugsanlega tengjast þeir engu að síðar þegar betur er að gáð. Sveinn var afar viðræðugóður og skemmtilegur viðmælandi.
    58 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 17
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Atli Bollason myndlistarmaður, Óli Hjörtur Ólafsson kvikmyndagerðarmaður og hlaðvarpsstjarna, Tinna Jóhannsdóttir kaffihúsaþjónn, aðgerðarstjóri og ráðgjafi og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks og ræða fréttir vikunnar, sem einkenndust af landsölu, morðum, forsetakosningum og pólitískum átökum.
    1 hr 33 min
  • Heima er bezt - Jakob Frímann Magnússon
    Heima er bezt, 24. apríl
    Jakob Frímann Magnússon
    Jakob Frímann Magnússon er gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Heima er bezt, sem er á dagskrá klukkan tíu í kvöld. Þeir ræða stjórnmálin og tónlistin kemur einnig við sögu. Stórtónleikar eru fram undan og ýmislegt fleira er í farvatninu. Jakob Frímann hefur frá mörgu að segja og margt fólk ber á góma.
    1 hr 9 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners