Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 18. apríl - Seðlabanki, ríkissjóður, brennivín og klerkar
    Fimmtudagurinn 18. apríl
    Seðlabanki, ríkissjóður, brennivín og klerkar
    Gunnar Jakobsson sagði upp sem vara Seðlabankastjóri fjármálastöðugleika og er kominn með starf hjá ítölskum banka. Hann kemur við á Rauða borðinu og ræðir vexti, fyrirferð banka og öryggi þeirra, greiðslumiðlun og annað sem tengist Seðlabankanum. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mætir síðan og ræðir fjármálaáætlun, hallan á ríkissjóð og dauða nýfrjálshyggjunnar, sem yfirvöld á Íslandi virðast ekki hafa frétt af. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá landlækni, ræðir síðan skaðsemi áfengis, en rannsóknir sýna æ betur hvurslags eitur það er. Og í lokin kemur Kjartan Orri Þórsson sérfræðingur í málefnum Írans og segir okkur frá landinu, þjóðinni og stjórnvöldum. Og hvernig þau skilgreina öryggishagsmuni sína.
    3 hr 38 min
  • Rauða borðið 17. apríl - Mótmæli, barátta og skattar
    Miðvikudagurinn 17. apríl
    Mótmæli, barátta og skattar
    Margrét Kristín Blöndal aka Magga Stína tónlustarkona og Sigtryggur Ari Jóhannsson aka Diddi ljósmyndari koma til okkar og ræða mótmæli, ekki síst af því tilefni að Magga Stína var fjarlægð af þingpöllum fyrir að grípa fram í fyrir Bjarna Benediktssyni. Við höldum áfram að tala um stjórnmál alþýðunnar og fáum Guðmund Hrafn Arngrímsson formann Leigjendasamtakana til að segja okkur frá skipulagi baráttusamataka, sem hefur alltaf verið forsenda aukinna réttinda almennings. Og í lokin kemur Haukur Viðar Alfreðsson doktorsnemi í hagfræði og ráðgjafi hjá Ráðsölu og fræðir okkur um alþjóðlegan lágmarksskatt.
    2 hr 53 min
  • Rauða borðið 16. apríl - Vantraust, ólögmætar kosningar, breyskt fólk og kratar
    Þriðjudagurinn 16. apríl
    Vantraust, ólögmætar kosningar, breyskt fólk og kratar
    Við byrjum á spjalli við Björn Leví Gunnarsson og Ingu Sælandi um vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Síðan koma þeir Guðmundur Gunnarsson og Magnús Davíð Norðdahl og ræða um sigur sinn fyrir Mannréttindadómstólnum. And Björk of course eftir Þorvald Þorsteinsson er komið í Borgarleikhúsið frá Akureyri. Við ræðum við aðstandendur verksins: Grétu Kristínu Ómarsdóttur leikstjóra og leikarana Sverri Þór Sverrisson og Maríu Hebu Þorkelsdóttir um erindi verksins. Í lokin kemur Gylfi Þór Gíslason krati og formaður verkalýðsmálafélags Samfylkingarinnar og ræðir breytingar á flokknum.
    3 hr 50 min
  • Frelsið er yndislegt - #6 Konur í afplánun og Fangaverk
    Frelsið er yndislegt, 16. apríl
    #6 Konur í afplánun og Fangaverk
    Í þessum þætti ræðum við um konur í afplánun og þeirra aðstæður. Þá skoðum við nokkur verk frá Fangaverk sem er vöruframleiðsla í fangelsunum.
    Viðmælendur þessa þáttar eru: Kristín Pálsdóttir, formaður Rótarinnar, Auður Guðmundsdóttur, Deildarstjóri hjá Fangelsismálastofnun og Matthías Matthíasson, teymisstjóri hjá geðheilsuteymi fangelsanna.
    Þáttastjórnendur eru að venju Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
    1 hr 6 min
  • Rauða borðið 15. apríl - Forsetaframboð, Þingið, undrabarn og færeysk tónlist
    Rauða borðið, 15. apríl
    Forsetaframboð, Þingið, undrabarn og færeysk tónlist
    Þátturinn hefst með ítarlegu viðtali við Höllu Hrund Logadóttur forsetaframbjóðanda. Liðurinn ÞINGIÐ verður á sínum stað eins og alltaf á mánudögum. Andrés Ingi, Þorbjörg Sigríður og Hafdís Hrönn þingmenn ræða átakamál. Þá kemur Eva H. Önnudóttir stjórnmálafræðingur og ræðir stöðu stjórnarinnar. Færeyskar bókmenntir verða til umfjöllunar, ný bók frá vinum okkar í suðri. Og við ræðum við Daða Logason, undrabarn í stærðfræði – nema í grunnskóla sem er ekki bara langbestur í raungreinum hér á landi heldur einnig Íslandsmeistari í bardagaíþróttum.
    3 hr 10 min
  • Rauður raunveruleiki - Eimreiðarelítan: Auðvaldsklíkur og Spilling / Þorvaldur Logason
    Nýverið kom út bók eftir félagsfræðinginn og heimspekinginn Þorvald Logason sem ber nafnið Eimreiðarelítan - Spillingarsaga.
    Í þeirri bók er rakin saga þess hvernig fámennum hóp á Íslandi tókst að grípa óheyrileg völd og beita þeim til þess að hagnast sér og sínum, á kostnað almennings.
    Í þættinum í kvöld spjöllum við við Þorvald um sögu Eimreiðarinnar, spillingu, auðvaldsklíkur, um nýfrjálshyggju í heiminum og hvernig Eimreiðin naut hugmyndafræðilegs stuðnings af henni.
    Við munum einnig ræða um hvað sé til ráðs til að taka á slíkri spillingu, hvernig hægt er að fyrirbyggja hana og auðræði almennt.
    Kynnist spillingarsögu undanfarinna áratuga á Íslandi, fáum samhengið um hvernig við komumst hingað þar sem við erum stödd, í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18:00
    52 min
  • Synir Egils: Ríkisstjórn, Alþingi, forseti og biskup
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingkona, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ráða í stöðu nýrrar ríkisstjórnar, stefnu hennar og lífslíkur, persónur og leikendur. Í seinni hluta þáttarins verður endursýnt samtal við þau þrjú sem eru í biskupskjöri, en þau eru: Elínborg Sturludóttir, Guðmundur Karl Brynjarsson og Guðrún Karls Helgudóttir.
    2 hr 28 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 15
    Föstudagurinn 12. apríl
    Vikuskammtur: Vika 15
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fjölmiðlakona, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Sólveig Arnarsdóttir leikkona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust að myndun nýrrar ríkisstjórnar, forsetakosningum og vangaveltum um framtíð lands og lýðræðis.
    1 hr 35 min
  • Rauða borðið 11. apríl - Pólitískur óstöðugleiki, Indland og forsetakosningar
    Við byrjum á stjórnmálaástandinu hér heima Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Transparency International á Íslandi, Arnar Sigurðsson vínkaupmaður, Erna Bjarnadóttir varaþingkona Miðflokksins og Karen Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi koma að Rauða borðinu og ræða stöðu stjórnar, flokka og stjórnmálanna almennt. Það verður kosið innan skamms á Indlandi, fjölmennasta ríki heims. Jón Ormur Halldórsson fer með okkur í ferðalag um stjórnmálin á Indlandi. Og við fáum forsetaframbjóðanda í heimsókn. Það er komið að Ásdísi Rán Gunnarsdóttur fyrirsætu, áhrifavaldi og frumkvöðli.
    3 hr 18 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners