Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Heima er bezt - Níels Árni Lund
    Heima er bezt, 10. apríl
    Níels Árni Lund
    Hann ólst upp á Melrakkasléttu og heldur mikilli tryggð við æskustöðvarnar. Hefur skrifað bækur um Melrakkasléttuna og gert upp æskuheimilið. Níels Árni Lund er viðmælandi í Heima er bezt að þessu sinni.
    43 min
  • Rauður raunveruleiki - Leigjendasamtökin, húsnæðiskerfi braskara og baráttan fyrir réttlæti
    Guðmundur Hrafn Arngrímsson er formaður Leigjendasamtakanna.
    Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson ætla að ræða við Guðmund um húsnæðiskerfið á Íslandi í dag, um þörfina á öflugum leigjendasamtökum, um brotin loforð stjórnmálastéttarinnar og ríkjandi hagsmuni braskara á markaðnum og stjórnkerfinu í dag.
    Hvernig berjumst við gegn einokun og ofríki fjármálaaflanna í húsnæðiskerfinu?
    Þetta og fleira í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18 í kvöld!
    Skráið ykkur í Leigjendasamtökin á vefsíðu samtakanna leigjendasamtokin.is
    1 hr 41 min
  • Rauða borðið 10. apríl - Ráðherraspjall, sniðganga og kona í framboði
    Ráðherraspjall, sniðganga og kona í framboði verða meðal efnis við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld.
    Tveir ráherrar ríða á vaðið í samtali við Björn Þorláksson. Guðlaugur Þór Þórðarson fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og Lilja Dögg Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins.
    Auður Styrkársdóttir eftirlaunakona og Lóa Hjálmtýsdóttir koma einnig að Rauða borðinu og ræða sniðgöngu á Rapyd og Júróvision. Hver eru áhrifin á samfélagið og okkur sjálf?
    Í lok þáttarins kynnum við forsetaframbjóðanda til leiks, röðin er komin að Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur leikkonu.
    3 hr 22 min
  • Rauða borðið 9. apríl - Nýr forsætisráðherra, strandeldi og forsetaframboð
    Við fáum góðan hóp til að greina atburði dagsins við Rauða borðið: Inga Sæland, Kristinn Hrafnsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Sigmar Guðmundsson meta nýja ríkisstjórn, framtíð hennar og heilsu. Sigurður Jóhannesson forstöðumaður Hagfræðastofnunar Háskólans kemur að borðinu og ræðir hagrænan ávinning af strandeldi og hvers virði leyfin eru í raun sem fiskeldisfyrirtækjum voru gefin. Guðmundur Felix Grétarsson hefur átt magnaða ævi og mátt þola margt. Nú ætlar hann í forsetaframboð og segir okkur við Rauða borðið hvers vegna.
    3 hr 11 min
  • Þingið - 8. apríl
    Brynjar Níelsson, Sjálfstæðisflokki og Jóhann Pál Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar takast á um stöðuna í ríkisstjórninni og þingmál fram undan. Auður Önnu Magnúsdóttir tekur þátt í umræðunni en hún er framkvæmdastýra Kvenréttindafélagsins, fyrrum Landverndarkona.
    1 hr
  • Rauða borðið 8. apríl - Þingið, samkennd grunnskólabarna og forsetaframboð
    Þingkosningar í haust, Jón Gnarr forsetaframbjóðandi og skortur á samkennd íslenskra grunnskólabarna verður til umræðu við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld, mánudaginn 08. apríl.
    Brynjar Níelsson, Sjálfstæðisflokki og Jóhann Pál Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar takast á um stöðuna í ríkisstjórninni og þingmál fram undan. Auður Önnu Magnúsdóttir tekur þátt í umræðunni en hún er framkvæmdastýra Kvenréttindafélagsins, fyrrum Landverndarkona.
    Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla kemur og ræðir mælingar sem staðfesta minni samkennd meðal íslenskra nemenda í grunnskólum en hjá öðrum nemendum á hinum Norðurlöndunum. Hvað veldur?
    Undir lok þáttarins ræðir Gunnar Smári ítarlega við Jón Gnarr, leikara rithöfund og forsetaframbjóðanda. Jón segir framboð Katrínar Jakobsdóttur orka tvímælis.
    3 hr 21 min
  • Synir Egils: Afsögn, framboð og stjórnarkreppa
    Sunnudagurinn 7 . apríl
    Synir Egils: Afsögn, framboð og stjórnarkreppa
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Benedikt Erlingsson leikstjóri, Ragnheiður Ríkarðsdóttir fyrrum þingkona og bæjarstjóri og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona og ræða afsögn forsætisráðherra, myndun nýrrar ríkisstjórnar í kjölfar hennar og mögulegar þingkosningar ofan í forsetakosningar. Þá munu þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni. Og í lokin verður flutt spjall við Ólaf Þ. Harðarson prófessor og Þórð Snæ Júlíusson ritstjóra frá föstudeginum um ákvörðun Katrínar, stöðu ríkisstjórnar og Vg.
    2 hr 49 min
  • Rauður raunveruleiki - Pressenza: Nonviolent journalism, humanism and truth
    Gestir Rauðs raunveruleika eru Pía Figueroa og Antonio Cravollo. Pía er einn stofnenda alþjóðlega fréttamiðilisins Pressenza og húmanisti.
    Antonio Cravalo er skipuleggjandi húmanistahreyfingarinnar og er, meðal annars, virkur í heimsþingum húmanista í Asíu og Suður - Ameríku.
    Við töluðum við Píu og Antonio um Pressenza, tilgang þess, húmanistahreyfinguna og um þörfina fyrir frið, sannleik, tengingu og grasrótarvirkni á síkvikum tímum.
    29 min
  • Mótmæli í morgunmat: Snæfellsjökul fyrir forseta!?!
    Í friðarviðræðum sunnudagsmorgunsins fáum við frammæli frekar en mótmæli og framboðsumræðu fulltrúa og fylgisfólks Snæfellsjökuls sem er í framboði fyrir forsetakosningar 2024. Er það séns? Hvernig? Af hverju svo bráð(n)-nauðsynlegt? Hvernig forseti yrði jökullinn? Sko í alvöru! Þau koma og segja okkur allt af létta, þau Aðalheiður Kristbjörg, fjölbreytileika-stefnumótunarsérfræðingur, Angela Snæfellsjökuls, framboðsstjóri, Dögg Sigmarsdóttir, fylgjandi Snæfellsjökuls, Goði Blöndal Hermannsson, sérlegur ráðgjafi og stjórnarskrárlesari og Juan Camilo, heimsskautsrefurinn og Snæfellsjökull.
    1 hr 17 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 14
    Föstudagurinn 5. apríl
    Vikuskammtur: Vika 14
    Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Anton Helgi Jónsson skáld, Margrét Kristín Blöndal aka Magga Stína tónlistarkona, Natalie G Gunnarsdottir plötusnúður og hlaðvarpstjórnandi og Sigurður Ingólfsson skáld og bókmenntafræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af bið eftir yfirlýsingu Katrínar Jakobsdóttur um framboð til forseta, framboði annarra, afmæli Nató, stríð og engum friði.
    1 hr 28 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners