Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Grimmi og Snar - Segðu það steininum 🪨
    Hvað segir auði spástokkurinn forsetaframbjóðandanum? 🙇🏿‍♀️
    🖖🏼🫥🤚🏼Farið varlega í hlustun á Grimma og Snar og lækkið alveg þegar Steinunn Ólína byrjar að hvísla í hljóðnemann 💋
    1 hr 27 min
  • Rauða borðið 4. aprí - Katrín, Nató, forsetakjör og Úkraína
    Fimmtudagurinn 4. apríl
    Katrín, Nató, forsetakjör og Úkraína
    Rauða borðið byrjar á vangaveltum Gunnars Smára Egilssonar og Björns Þorlákssonar um stöðu stjórnmála í kjölfar löngunar Katrínar Jakobsdóttur til að verða forseti. Nató á afmæli í dag. Af því tilefni fáum við Ögmund Jónasson til að fara yfir sögu og stöðu þessa hernaðarbandalags. Við höldum áfram að ræða við forsetaframbjóðendur. Röðin er komin að Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar. Í lokin kemur Hilmar Örn Hilmarsson prófessor og fer yfir stríðið í Úkraínu.
    3 hr 52 min
  • Maður lifandi 4. apríl: Vigdís Hafliðadóttir
    Vigdís Hafliðadóttir söngkona í hljómsveitinni Flott er gestur vikunnar hjá feðgunum Starkaði og Birni. Textar Vigdísar hafa ekki síst vakið athygli - hún er hugsandi ung manneskja - en Maður lifandi er þáttur sem einblínir á hugðarefni ungra Íslendinga.
    1 hr 1 min
  • Heima er bezt - Trausti Valsson
    Heima er bezt, 3. apríl
    Trausti Valsson
    Trausti Valsson arkitekt og skipulagsfræðingur sýnir fram á að um 80 prósent þjóðarinnar býr við margskonar náttúruógnir.
    37 min
  • Rauða borðið 3. apr - Ólög, forsetaframboð, fæðingartíðni og geðlyf
    Miðvikudagurinn 3. apríl
    Ólög, forsetaframboð, fæðingartíðni og geðlyf
    Við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld setjast þeir Ólafur Stephensen og Breki Karlsson og ræða nýsamþykkt lög sem þeir segja að megi kalla spillingu. Við höldum áfram að ræða við forsetaframbjóðendur. Í kvöld er komið að Baldri Þórhallssyni prófessor sem leiðir baráttuna samkvæmt skoðanakönnunum. Fæðingartíðni hefur fallið á Íslandi eins og víðast hvar í heiminum. Við ræðum við Gylfa Magnússon um hverju sætir og hvaða afleiðingar það hefur. Svava Arnarsdóttir er nýr formaður Geðhjálpar. Hún ræðir við okkur um geðlyf og reynslu sínu og annarra af þeim, ekki síst af því að hætta á þessum lyfjum.
    3 hr 26 min
  • Frelsið er yndislegt - #5 Skaðaminnkun og vímuefnavandi
    Frelsið er yndislegt 26. mars
    #5 Skaðaminnkun og vímuefnavandi
    Í þessum þætti er skaðaminnkun rædd og útskýrð vel. Einnig er farið almennt í umræðu um vímuefnavanda og neysluskammta. Farið er í hvernig staðan er í þeim löndum sem vinna eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði sem og bjóða upp á fjölbreyttar viðhaldsmeðferðir. Þá eru fangelsin auðvitað rædd sérstaklega að vanda. Við lofum virkilega skemmtilegum og áhugaverðum þætti!
    Gestirnir að þessu sinni eru: Svala Jóhannesardóttir, formaður Matthildar – samtaka um skaðaminnkun, Halldóra Mogensen, alþingiskona Pírata og baráttukona fyrir breytingum á vímuefnalöggjöfinni og Þórir Tony Guðlaugsson, varðstjóri í Fangelsinu á Hólmsheiði. Stjórnendur þáttarins eru: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson
    1 hr 9 min
  • Heimsmyndir - Gustav Adolf
    Heimsmyndir 29. mars
    Gustav Adolf
    Gestur þáttarins er Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, nýdoktor í heimspeki. Gústav hefur skrifað afar áhugaverða doktorsritgerð um eðli samskipta þegar kemur að #Metoo og #BLM, um tilhneigingu okkar til að meðtaka ekki efnislega frásagnir þolenda ofbeldis og óréttlætis. Þeir Kristinn ræddu síðan allskyns tengdar vangaveltur um að segja frá og að meðtaka. Frábær gestur hann Gústav. Nýr uppáhalds, eins og í hverri viku.
    1 hr 23 min
  • Maður lifandi 28. mars: Grímur Atlason
    Grímur Atlason formaður Geðhjálpar verður gestur dymbilvikunnar hjá feðgunum Starkaði og Birni í Maður lifandi. Hann ræðir brotna æsku sumra barna og hvað það kostar að takast sífellt á við afleiðingar fremur en orsakir andlegra meina.
    1 hr 2 min
  • Heima er bezt 27. mars: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
    Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og þjóðfræðingur, er gestur í Heima er bezt að þessu sinni.
    Ólína hefur frá mörgu að segja. Meðal annars kveður hún rímu í þættinum.
    Margt ber á góma. Svo sem þátttaka hennar í stjórnmálum sem og í björgunarsveitum.
    1 hr 22 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners