Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 26. mars - Biskup, sjálfbærni húsa og forsetaframboð
    Þriðjudagurinn 26. mars
    Biskup, sjálfbærni húsa og forsetaframboð
    Elínborg Sturludóttir Dómkirkjuprestur, Guðmundur Karl Brynjarsson prestur í Lindakirkju og Guðrún Karls Helgudóttir prestur í Grafarvogskirkju eru í biskupskjöri. Þau koma að Rauða borðinu og ræða stöðu kirkjunnar, erindi kristninnar og hlutverk biskups. Jón Kristinsson fór ungur til náms í Hollandi og hefur starfað þar alla tíð, í meira en sextíu ár, sem arkitekt og uppfinningamaður á svið sjálfbærni og orkunýtingar. Hann kemur til okkar og segir fá lífshlaupi sínu og uppgötvunum. Halla Tómasdóttir fékk næst flest atkvæði í forsetakosningum fyrir átta árum og ætlar nú að reyna öðru sinni að verða forseti lýðveldisins. Við spyrjum hana hvers vegna.
    3 hr 23 min
  • Rauða borðið 25. mars - Tveggja ríkja lausn, þingið, morðin á Sjöundá og sveltistefna
    Mánudagurinn 25. mars
    Tveggja ríkja lausn, þingið, morðin á Sjöundá og sveltistefna.
    Magnús Bernharðsson prófessor ræðir hörmungarnar á Gaza og hvort nokkur von sé um frið. ÞINGIÐ - umræðuliður um pólitík og þingmál verður á sínum stað. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þinkona pírata takast á og Höskuldur Kári Schram þingfréttaritari kemur í heimsókn og ræðir breytta tíma á Alþingi. Már Jónsson sagnfræðingur ræðir morðin á Sjöundá, réttarskjölin sjálf en ekki síður af hverju við erum enn að hugsa um Steinunni og Bjarna. Sveinn Máni Jóhannesson nýdoktor ræðir svo niðurskurðarhyggju eða sveltistefnu, ekki í dag heldur fyrir hundrað árum þegar hér komst til valda ríkisstjórn sem skar gríðarlega niður ríkisútgjöld
    3 hr 36 min
  • Þingið 25. mars
    Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þinkona pírata takast á um ýmis mál og Höskuldur Kári Schram þingfréttaritari kemur í heimsókn og ræðir breytta tíma á Alþingi.
    1 hr 15 min
  • Red reality - World Humanist Forum and the march for peace and non-violence
    The World Humanist Forum just took place in Reykjavík ahead of the world march for peace and non - violence. A recording of the meeting, which took place in the national library of Iceland, will be published on Solidarity Station in the coming week.
    We spoke to some of the main organizers of the forum and the march, Antonio Carvallo and Rafael de la Rubia. Antonio is a Chilean and one of the organizers of WHF-Asia. He has a background in law and has been engaged in humanist work since 1969. Rafael is a Spanish Humanist, founder of the organization World without Wars and Violence and spokesperson of the world march for peace and nonviolence.
    Visit theworldmarch.org for more information on the growing peace movement. Both Antonio and Rafael work in collaboration with the international press agency, Pressenza.
    42 min
  • Synir Egils 24. mars: Ríkisbankar, einkarekstur, pólitík, stríð og enginn friður
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum á pálmasunnudegi og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Andri Snær Magnason rithöfundur og skáld, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Snorri Másson ritstjóri og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og ásökunum, framboði og eftirspurn, stríð og litlum friði. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni og fá síðan Hilmar Þór Hilmarsson prófessor til að fara yfir stríð í heiminum og áhrif þeirra á öryggismál og heimspólitíkina.
    Vettvangur dagsins:
    Andri Snær Magnason rithöfundur og skáld
    Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands
    Snorri Másson ritstjóri
    Bræður spjalla
    Umfjöllun: Stríð og alþjóðamál
    Hilmar Þór Hilmarsson
    2 hr 44 min
  • Mótmæli í morgunmat - Hvað nú?
    Mótmæli í morgunmat, 24. mars
    Hvað nú?
    Listadúóið Libia Castro og Ólafur Ólafsson hafa hafið tímabært ferli afbyggingar á óvirka stóriðjuverinu í Helguvík sem stendur eins og minnisvarði um úrelta byggða- og atvinnuþróunarstefnu, nýlenduhyggju og afstöðu til nýrra Íslendinga. Þau hafa gert Listasafn Reykjaness að eins konar safni fyrir niðurstöður óformlegrar rannsóknar á því sem fór úrskeiðis og að vettvangi nýrrar sýnar og samræðu íbúa á svæðinu sem margir koma til Íslands frá löndum illa förnum eftir suddaskap stóriðjufyrirtækja sem hafa forsmáð viðkvæm samfélög og náttúru. Reynsluþekkingin er því mikil á svæðinu og áhugavert að hefja samtal við alla málsaðila, hagsmunafyrirtækin og stofnanirnar sem bera ábyrgð og alla þá sem láta sig framtíð svæðisins og heimsins varða.
    Í Friðarviðræðum á sunnudagsmorgni ræða Libia og Ólafur um sýningu sína í Listasafni Reykjanesbæjar sem nú stendur yfir og frá fyrirhuguðum opnum fundi 4. apríl næstkomandi sem er hluti af sýningunni og baráttu fyrir aukinni meðvitund um það sem gerðist og það sem hægt er að gera. Hvað nú? Við ræðum líka um afbyggingu á starfi og hlutverki listafólks og hefð mótmæla eða viðspyrnu listafólks á Spáni á alræðistímanum.
    1 hr 14 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Inga Bjarnason
    Laugardagurinn 23. mars
    Helgi-spjall: Inga Bjarnason
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Inga Bjarnason leikstjóri okkur frá uppeldi sínu í horfinni veröld nítjándu aldar, listrænni menntun sinni í gegnum þrjá eiginmenn, ævisagnaritun sinni og lesblindu og uppgötvun sinni á að hún er allt önnur manneskja en hún hélt.
    2 hr 31 min
  • Heimsmyndir - Arngrímur Vídalín
    Heimsmyndir, 22. mars
    Arngrímur Vídalín
    Gestur þáttarins er Arngrímur Vídalín lektor í íslenskum bókmenntum. Arngrímur sagði frá afar áhugaverðri rannsókn sinni á elstu íslensku handritum, þar sem höfundar virðast hafa reynt að færa Ísland nær Evrópu til að afskrísmslavæða okkur. Þeir Kristinn létu svo gamminn geysa um ýmsar fornar hugmyndir og áhrif þeirra á heimsmynd fólks á miðöldum. Mjög fróður maður hann Arngrímur.
    1 hr 12 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 12
    Föstudagurinn 22. mars
    Vikuskammtur: Vika 12
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Friðrik Þór Guðmundsson blaðamaður og sjálfstætt starfandi fræðimaður á sviði fjölmiðla, Sólveig Ásta Sigurðardóttir nýdoktor, Bergsteinn Sigurðsson sjónvarpsmaður og Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður Samtakanna 78 og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum um kaup banka á tryggingafélagi, engri vaxtalækkun þrátt fyrir litlar launahækkanir, forsetaframboðum, menningarstríði og tómri hamingju.
    1 hr 50 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners