Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Heimsmyndir - Eyja Margrét
    Heimsmyndir 15. mars
    Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir
    Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki við HÍ er gestur þáttarins. Hún sagði frá frumspeki kynja og kynþátta, hvað verufræði og frumspeki eru og ræddi ýmsar bækur um feminínska heimspeki og feminískar útópíur. Þau Kristinn rifjuðu upp feminísku rökræðurnar á samfélagsmiðlum og veltu fyrir sér árekstrum og árangri í þeim umræðum. Mikil og skemmtileg umræða um eldfim málefni.
    1 hr 26 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 11
    Föstudagurinn 15. mars
    Vikuskammtur: Vika 11
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Kristín Eiríksdóttir rithöfundur, Sherry Ruth verkakona, Viktor Orri Valgarðsson stjórnmálafræðingur og Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson nýdoktor í heimspeki og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af undirritun kjarasamninga og deilum um þá, vangaveltum um forsetaframboð, mansali, hryðjuverkum og Eurovison á tímum þjóðarmorðs.
    1 hr 28 min
  • Rauða borðið 14. mars - Vondir samningar, baráttuleiðir, hnignun Bretlands og fíklar
    Fimmtudagurinn 14. mars
    Vondir samningar, baráttuleiðir, hnignun Bretlands og fíklar
    Ragnar Þór Ingólfsson kemur að Rauða borðinu og segir hvers vegna hann er óánægður með samningana sem hann var að undirrita. Hjörtur Hjartarson frá Stjórnarskrárfélaginu, Salvör Gullbrá Þórarinsson frá Félaginu Ísland-Palestína og Guðmundur Hrafn Arngrímsson frá Leigjendasamtökunum ræða um baráttuleiðir sem samtök þeirra nota. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur segir okkur frá hrörnun Bretlands. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir og Jón K Jacobsen aka Nonni Lobo frá samtök aðstandenda og fíknisjúkra og Gunnar Ingi Valgeirsson, sem heldur úti þáttunum Lífið á biðlista, koma í lokin og ræða stöðu fíkla í samfélaginu.
    3 hr 36 min
  • Maður lifandi 13. mars: Margrét Tryggvadóttir
    Margrét Tryggvadóttir rithöfundur og fyrrum þingkona verður gestur þáttarins Maður lifandi þessa vikuna. Hún ræðir ýmis brýn samfélagsmál sem varða ungt fólk og kúnstina að skrifa.
    Þátturinn Maður lifandi sem er í umsjá feðganna Starkaðar og Björns Þorláks, hverfist um málefni ungra Íslendinga og er frumsýndur klukkan 16 á fimmtudögum á Samstöðinni.
    1 hr 6 min
  • Heima er best - Gunnar Hjördísarson
    Heima er best, 13. mars
    Gunnar Hjördísarson
    Gestur Heima er bezt að þessu sinni er Gunnar Hjördísarson gítarsmiður. Sigurjón M. Egilsson er stjórnandi þáttarins.
    Þeir ræða um æskuna, sjómennsku og gítara. Gunnar hefur smíðað þá ófáa.
    Hann segir meðal annars frá vandræðum við að komast á sýningu í Bandaríkjunum.
    Bæði Gunnar og Sigurjón er aðdáendur Bítlanna.
    49 min
  • Rauða borðið 13. mars - Leigumarkaður, Chris Smalls og moldin
    Miðvikudagurinn 13. mars
    Leigumarkaður, Chris Smalls og moldin
    Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dregur upp mynd af íslenskum leigumarkaði sem hann segir að sé á vondum stað. Margt bendir til að miklar hækkanir séu fram undan. Andrea Helgadóttir er áhugamanneskja um alþjóðlega verkalýðshreyfingu. Hún segir okkur frá verkalýðshetjunni Chris Smalls sem er að koma til landsins. Ólafur Arnalds prófessor segir okkur svo frá moldinni sem bæði nærir okkur og mótar. Hvað verður um okkur þegar næringamáttur moldarinnar hverfur?
    2 hr 26 min
  • Rauða borðið 12. mars - Kjarasamningarnir, kulnun og baráttan um háskólann
    Þriðjudagurinn 12. mars
    Kjarasamningarnir, kulnun og baráttan um háskólann
    Þau koma til okkar hagráð verkalýðsins, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB, Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM og fara yfir stöðu efnahagsmála í kjölfar nýgerðra kjarasamninga. Eru þeir sögulegir? Munu lífskjör almennings batna? Kristín Þóra Haraldsdóttir er höfundur, leikstjóri, leikari og umfjöllunarefni einleiksins Á rauðu ljósi, sem er allt í senn leikrit, uppistand og fyrirlestur um kulnun. Við ræðum við hana um hvernig við örmögnumst og hvaða leið er út úr því standi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskólaráðherra er að breyta fjármögnun háskólanna til að stýra uppbyggingu þeirra. Eiríkur Smári Sigurðarson rannsóknastjóri og sérfræðingur við hugvísindasvið Háskóla Íslands kemur að Rauða borðinu og ræðir um átökin um háskólanna, um hver eigi að stýra þróun þeirra.
    2 hr 50 min
  • Rauða borðið 11. mars - Kjarasamningar, hommasýning og ópíum
    Mánudagurinn 11. mars
    Kjarasamningar, hommasýning og ópíum
    Við byrjum á að fá Stefán Ólafsson prófessor og starfsmann Eflingar til að skýra út kjarasamningana sem voru undirritaðir fyrir helgi. Þeir þykja sögulegir fyrir hversu mikið af kjarabótunum eiga að koma frá stjórnvöldum. Við ræðum síðan við þá Rúnar Guðbrandsson leikstjóra og leikarana Árna Pétur Guðjónsson og Sigurð Edgar Andersen um verkið …..og hvað með það? Þetta er verk um homma, ofbeldi og ást. Og við ræðum þetta allt við þá félaga. Það geisar ópíóðafaraldur á Íslandi og fólk deyr af hans völdum. Við ræðum við Valgerði Rúnarsdóttur, yfirlækni á Vogi, um hvað veldur og hvað beri að gera? Og spyrjum um sjúklinga Árna Tómasar Ragnarssonar læknis, sem fengu dagleg morfínskammt en fá hann ekki lengur.
    2 hr 53 min
  • Rauður raunveruleiki - 14 ár í Guantanamo án saka / Mohamedou Ould Slahi & Dr. Deepa Driver
    Mohamedou Ould Slahi var fangelsaður og pyntaður hryllilega í fangabúðum Bandaríkjanna við Guantanamo-flóa frá 2002 til 2016 án allra saka.
    Í fjórtán ár var hann sviptur frelsi sínu, smánaður og beittur grimmilegu ofbeldi af margvíslegum toga.
    Mohamedou var í heimsókn á Íslandi um helgina og sagði frá upplifun sinni og reynslu á fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn var liður í fundarseríu Ögmundar Jónassonar, „Til róttækrar skoðunar“. Fundinn má finna og horfa á á rásum Samstöðvarinnar undir titlinum „Reynslan frá Guantanamo“.
    Dr. Deepa Govindarajan Driver sat einnig fundinn. Hún kennir um regluvæðingu fjármagns, um ábyrgð og ábyrgðarleysi stjórnvalda og fyrirtækja og hefur verið í miðjunni á baráttunni fyrir mannréttindum blaðamannsins Julian Assange og frelsi frjálsa heimsins.
    Við ræddum við Mohamedou og Deepu um upplifun Mohamedou, Guantanamo, stríðið gegn hryðjuverkum og um mikilvægi frelsis og samkenndar á háskalegum tímum.
    51 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners