Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 6. mars - Fátækt fólk, Eimreið, byssur og forsetaframboð
    Miðvikudagurinn 6. mars
    Fátækt fólk, Eimreið, byssur og forsetaframboð
    Varða, rannsóknarsetur vinnumarkaðarins, hefur sýnt fram á að stórir hópar vinnandi fólks búa við fátækt, draga fram lífið frá launatékk til launatékka. Kristín Heba Gísladóttir forstöðukona Vörðu segir okkur frá hvaða fólk þetta er og hvers vegna það er svona fátækt. Nýfrjálshyggjan er áfram á dagskrá Rauða borðsins. Kristin Vala Ragnarsdóttir prófessor og Þorvaldur Logason höfundur Eimreiðarelítunnar koma og segja frá áætlunum sem gerðar voru til að skipuleggja yfirtöku þessarar hugmyndafræði, sem átti eftir að kalla miklar hörmungar yfir samfélögin. Skotveiðimenn segjast mæta fordómum og skilningsleysi. Áki Ármann Jónsson upplýsir okkur um það og mikilvægi útvistar. Við höldum áfram að ræða við forsetaframbjóðendur. Röðin er komin að Agnieszku Sokolowska.
    2 hr 44 min
  • Rauða borðið 5. mars
    Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur lagt fram breytingar á útlendingalögum. Hún mætir við Rauða borðið og færir rök fyrir sínu máli. Eiríkur Bergmann prófessor hefur skoðað uppgang hægri popúlista áratugum saman. Hann greinir áhrif stefnubreytinga Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í innflytjendamála á stjórnmálaumræðuna. Jónas Guðmundsson fyrrum rektor á Bifröst, kemur og ræðir um nýfrjálshyggjuna, sem hann segir að leiði til aukinnar samkeppni heldur þvert á móti til fákeppni og einokunar. Í lokin koma Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, heimspekingur og kynjafræðingur, og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá landlæknisembættinu og doktor í lýðheilsu, og ræða áhrif áfengis á samfélagið og einstaklinginn.
    4 hr 44 min
  • Frelsið er yndislegt - #3 Hvert geta aðstandendur fanga leitað?
    Frelsið er yndislegt, 5. mars
    #3 Hvert geta aðstandendur fanga leitað?
    Gestir þáttarins eru þær Jenný Þótkatla Magnúsdóttir, fjölskyldufræðingur hjá Bjargráð, þjónusta við aðstandendur fanga, og Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir, aðstandandi fyrrverandi fanga og einn stofnandi Aðgátar.
    Bent er á að aðstandendur fanga geta leitað aðstoðar hjá fjölskyldufræðingum Bjargráðar hjá þeim Jennýju (s: 771-4966) og Eiríki (s: 867-2450).
    1 hr 3 min
  • Rauða borðið - Dauði nýfrjálshyggju, hatur, Guantanamo, umhverfi og kjaraviðræður
    Mánudagurinn 4. mars
    Dauði nýfrjálshyggju, hatur, Guantanamo, umhverfi og kjaraviðræður
    Þorvaldur Gylfason prófessor kemur að Rauða borðinu og segir okkar frá Joseph Stiglitz og erindi hans í Háskólanum, um dauða nýfrjálshyggjunnar og þörf fyrir nýtt stýrikerfi í samfélaginu. Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International ræðir hatur og rasisma. Ögmundur Jónasson segir okkur frá Máritínumanninn Mohamedou Ould Slahi sem heldur erindi á laugardaginn og bíómyndinni sem gerð var um hann. Auður H. Ingólfsdóttir sviðstjóri hjá Umhverfisstofnun kemur að Rauða borðinu og bregst meðal annars við spurningunni hvort heimurinn sé að óbreyttu að fara til helvítis. Og Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir kjaraviðræður og greinir átökin sem þar birtast.
    3 hr
  • Red reality - Nordic Baltic Sustainability Conference
    The Nordic Baltic Sustainability Conference was held in Iceland this year and we have the pleasure to speak to the attendees just following the close of the conference.
    We will speak about the environment, the statement of the conference and what the future might hold for Nordic and Baltic cooperation as it relates to climate change and the ecology
    50 min
  • Synir Egils: Innflytjendur, orka, efnahagur, Vg og Sjálfstæðisflokkurinn
    Sunnudagurinn 3. mars
    Synir Egils: Innflytjendur, orka, efnahagur, Vg og Sjálfstæðisflokkurinn
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri í Vík í Mýrdal, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, og ræða innflytjendamál, orkumál, efnahagsmál og önnur mál sem hafa verið ofarlega í umræðunni í vikunni. Bræðurnir fá að því búnu til sín Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og spyrja hana um þær breytingar sem hún stendur fyrir og hefur staðið fyrir, stöðuna á flokknum hennar og ríkisstjórninni. Fyrir hvað stendur Áslaug Arna í pólitíkinni? Að lokum spjalla þeir bræður um stöðu mála og samfélagsins og draga saman umræður dagsins.
    2 hr 31 min
  • Rauður raunveruleiki - Mótmælt fyrir Palestínu / umræða vikunnar
    Karl Héðinn og Oliver Axfjörð segja frá samstöðumótmælum fyrir Palestínu sem fóru fram í dag á öllum Norðurlöndunum. Við sýnum myndbönd þaðan og fjöllum um ástandið á Gaza og í heiminum.
    Einnig munum við velta fyrir okkur af hverju Sjálfstæðismenn telja sig þurfa sérsveitargæslu og hvers vegna ráðamenn Bandaríkjanna tala eins og við séum að fara rakleiðis í þriðju heimsstyrjöldina.
    48 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Oddsson
    Laugardagurinn 2. mars
    Helgi-spjall: Björn Oddsson
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Björn Oddsson jarðfræðingur okkur frá bókinni sem hann kemur með til landsins, eftir langdvalir í Sviss í meira en hálfa öld, frá muninum á samfélaginu á Íslandi og í Sviss, frá sprungunum í Grindavík, samfélaginu sem hann kom frá og mörgu öðru.
    2 hr 52 min
  • Heimsmyndir - Nanna Hlín Halldórsdóttir
    Heimsmyndir 1. mars
    Nanna Hlín Halldórsdóttir
    Nanna Hlín Halldórsdóttir, doktor í heimspeki, er gestur þáttarins. Þau Kristinn ræddu vestræna heimspeki og meginlandsheimspeki. En þó aðallega bókina Giving an Account of Oneself eftir Judith Butler. Judith er hán og það fornafn þurftu þau aðeins æfa sig að nota. Gekk ekki snuðrulaust
    1 hr 13 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 09
    Föstudagurinn 1. mars
    Vikuskammtur: Vika 09
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Matthías Matthíasson klínískur sálfræðingur og teymisstjóri Geðheilsuteymis fangelsa, Heiða Eiríksdóttir aka Heiða í Unun, útvarps- og tónlistarkona, doktorsnemi í heimspeki, Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum um dýrahald, kjaradeilum og deilum um innflytjendastefnu, heimsóknum stjórnmálafólks til almúgans á tímum stjórnarmálalegra hræringa.
    1 hr 54 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners