Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Lísa Páls
    Laugardagurinn 24. febrúar
    Helgi-spjall: Lísa Páls
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Lísa Pálsdóttir okkur frá sjálfri sér, fólkinu sínu og hippakynslóðinni, frá óþekkt og óreglu, seiglu og skemmtilegheitum.
    2 hr 33 min
  • Heimsmyndir - Bjarni Randver Sigurvinsson
    Heimsmyndir 23. febrúar
    Bjarni Randver Sigurvinsson
    Gestur þáttarins er Bjarni Randver Sigurvinsson trúar- og guðfræðingur. Bjarni lenti harkalega upp á kant við herskáa guðleysingja árið 2010 og úr því spunnust miklar deilur í um tvö ár. Kristni þótti gleðilegt að fá tækifæri til að biðjast afsökunar á sínum þætti í þeim deilum. Það má deila um allt sem viðkemur réttu og röngu í þeim árekstri hugsuða, en allir hefðu þeir átt að setjast niður og kynnast frekar en að takast á úr fjarlægð.
    1 hr 21 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 08
    Föstudagurinn 23. febrúar
    Vikuskammtur: Vika 08
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fjölmiðlakona, Elísabet Ronaldsdóttir klippari , Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og Gunnar Lárus Hjálmsson aka Dr. Gunni tónlistarmaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af umræðum um innflytjendur og innviði, fréttum að stríðum og glæpum, samningum og sáttum.
    1 hr 31 min
  • Rauða borðið 22. feb - Rasismi, rúmdýnur, Grindavík og framhaldsskólakrakkar
    Hvöss gagnrýni á vendingar í innflytjendamálum, stytting náms til stúdentsprófs sem hryðjuverk og stormasamt viðtal við Jón Steinar Gunnlaugsson er meðal efnis við Rauða borðið í kvöld.
    Drífa Snædal, talskona Kvennaathvarfsins, ríður á vaðið sem fyrsti viðmælandi Samstöðvarinnar í beinni útsendingu klukkan 20 í kvöld. Umræðuefnið er rasismi, innflytjendamál og staða VG.
    Lífið í Grindavík verður á dagskrá. Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrum hæstaréttardómari ræðir opnun bæjarins sem hann þakkar málsókn sem hann sinnti fyrir Grindvíking. Hann segir morgunljóst að lokun bæjarins hafi verið brot á stjórnarskrá.
    Ársæll Guðmundsson, skólameistari sem var yfir námstímanefnd sem stytti nám til stúdentsprófs, skýrir sjónarmiðin að baki hinum umdeildu breytingum. Fyrrverandi kennari við Menntaskólann á Akureyri verður á línunni en hann kallar styttinguna hryðjuverk.
    Vilmundur Möller Sigurðsson slær svo botninn í þáttinn en hann heldur fram að tugþúsundir Íslendinga sofi illa vegna kemískra efna í rúmdýnum.
    1 hr 51 min
  • Ungliðaspjallið - #11 Útlendingar og Ísland
    Í Ungliðaspjalli kvöldsins ræðum við um innflytjendur, hælisleitendur og um umræðuna í samfélaginu. Réttindi fólks á flótta og um innviði Íslands
    Ungliðar þáttarins verða Askur Hrafn Hannesson, aðerðarsinni, Aníta Sóley Scheving Þórðardóttir, jafnréttisfulltrúi LÍS og ötul baráttukona fyrir réttindum barna og mannréttinda, Gabríel Ingimarsson, formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar og Karl Héðinn Kristjánsson, forseti Roða, ungliðahreyfingar ungra Sósíalista.
    42 min
  • Maður lifandi 22.febrúar - Bubbi Morthens

    Sérlega góður gestur sækir Starkað og Björn heim á Samstöðinni þessa vikuna, sjálfur Bubbi Morthens. Rætt verður um hlutskipti ungs fólks í dag miðað við tímana sem Bubbi spratt úr; söguna, listina, draumana og margt fleira.

    1 hr 12 min
  • Rauða borðið 20. feb - Víkingur Heiðar, heimurinn, Grindavík og Gaza
    Tímamót í Grindavík með opnun bæjarins, viðbrögð við breyttri innflytjendastefnu ríkisstjórnarinnar, umhverfismál, Víkingur Heiðar konsertpíanisti og fleira verður á dagskrá við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld.
    Við hefjum leik í Grindavík þar sem bærinn er ekki lengur rammlæstur. Við ræðum við íbúa.
    Annar válegur veruleiki sem margir eru að tala um þessa dagana eru loftslagsmálin. Stærstu hita- og kuldamet falla nú um víða um völl svo nemur jafnvel fráviki upp á 6-7 gráður. Stefán Jón Hafstein, höfundur bókar um umhverfismál, kemur og ræðir andvaraleysið í heiminum gagnvart ógninni sem nú er smám saman að fá á sig andlit og rödd.
    Það verður einnig fjallað um menningu við Rauða borðið. Undrið Víkingur Heiðar Ólafsson píanisti er á margra vörum þessa dagana, jafnt innan sem utan landsteinanna. Við fáum einn þekktasta tónlistarkrítíker landsins, Arndísi Björk Ásgeirsdóttur í heimsókn, hún ætlar að segja okkur söguna alla á bak við Víking.
    Síðast í þættinum kemur svo Hjálmtýr Heiðdal fyrir hönd Ísland-Palestínu, hann ætlar að greina nýjustu vendingar í stríðinu á Gaza og segja okkur frá mikilli fjögun félagsmanna undanfarið. Við fáum líka viðbrögð hans við einu stærsta fréttamáli dagsins sem er breytt stefna ríkisstjórnarinnar í innflytjendamálum.
    2 hr 3 min
  • Frelsið er yndislegt - # 2 Hringiða neyslu, glæpa, fangelsa og heimilisleysis.
    Umræðuþáttur um fangelsismál og réttarvörslukerfið á breiðum grunni. Umsjón: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
    Umræðuefni dagsins er hringiða neyslu, glæpa, fangelsa og heimilisleysis og eru gestir þáttarins að þessu sinni þau Jón Þór Kvaran, meðferðarfulltrúi Fangelsismálstofnunar með aðsetur á Litla hrauni, Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri í málefnum heimilislausra hjá Reykjavíkurborg og Ingi Þór Eyjólfsson, forstöðumaður Gistiskýlisins á Lindargötu í RVK.
    1 hr 7 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners