Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Reykjavíkurfréttir - Mótmæli í borgarlandinu
    Reykjavíkurfréttir 20. febrúar
    Mótmæli í borgalandi
    Í þætti dagsins ræðum við um nýtingu almannarýmis til mótmæla og samstöðufunda og einblínum á nýlega viðburði í Reykjavík til stuðnings Palestínu.
    Hjálmtýr Heiðdal formaður félagsins Ísland-Palestína kemur í þáttinn og ræðir við Sönnu Magdalenu og Halldóru um samstöðuaðgerðir og hvernig borgarrýmið nýtist til þess.
    49 min
  • Synir Egils: Pólitískar vendingar og Gaza
    Sunnudagurinn 18. febrúar
    Synir Egils: Pólitískar vendingar og Gaza
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Viktor Pétur Finnsson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ráða í stöðuna. Þeir bræður munu líka greina ástandið á þinginu og á eftir vindum við okkur í Háskólabíó og hlýðum á stórfund til stuðningi Palestínu.
    3 hr 26 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall: Steinunn Sigurðardóttir
    Laugardagurinn 17. febrúar
    Helgi-spjall: Steinunn Sigurðardóttir
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Steinunn Sigurðardóttir skálf og rithöfundur okkur frá lífi sínu, uppvexti og mótun, baráttu og sigrum en líka frá okkur Íslendingum, hvernig við stöndum okkur sem hópur.
    2 hr 26 min
  • Heimsmyndir - Atli Harðarson
    Gestur þáttarins er Atli Harðarson heimspekingur og prófessor í Deild faggreinakennslu. Þeir Kristinn ræddu 17. aldar heimspekinginn Baruch Spinoza, frumspeki hans og tilraunir til endurbóta á trúarhugmyndum samtíma síns. Mun sannleikurinn gera okkur frjáls? Hvað er sannleikur? Atli leiðir okkur í allan... sannleikann.
    1 hr 17 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 07
    Föstudagurinn 16. febrúar
    Vikuskammtur: Vika 07
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Jovana Pavlović mannfræðingur, Margrét Örnólfsdóttir leikstjóri, Gunnar Helgason rithöfundur og Árni Pétur Guðjónsson leikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af afrekum sjálfboðaliða og járnsuðumanna, deilum og átökum, viðsnúningi, hótunum og uppkaupum á Grindavík.
    1 hr 44 min
  • Rauða borðið 15. feb - Mannbjörg, ríkissjóður, stríð og enginn friður
    Fimmtudagurinn 15. febrúar
    Mannbjörg, ríkissjóður, stríð og enginn friður
    Við sláum á þráðinn til Kairó þar sem Sema Erla Serdaroglu, formaður hjálparsamtakanna Solaris, vinnur með hópi fólks sem bjarga fólki frá Gaza sem hefur dvalarleyfi á Íslandi. Nú þegar hefur tekist að bjarga átta manns og von er á tólf til viðbótar á nstu dögum. Við förum yfir stöðu og getu ríkissjóðs með Ásgeiri Brynjari Torfasyni ritstjóra Vísbendingar. Höfum við efni á aðgerðum á Reykjanesi, vegna kjarasamninga og til að leysa húsnæðiskreppuna, svo dæmi séu tekin. Og hversu lengi er hægt að reka ríkissjóð með halla? Úkraínustríðið heldur fram að boðaður sigur Úkraínu og Vesturveldanna á vígvellinum er orðin fjarlægur draumur. Hvað tekur þá við? Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um stríðið í Evrópu og hver er áhrif þess á Úkraínu, Evrópu og heimsmálin.
    3 hr 23 min
  • Rauða borðið 14. feb - Saknaðarilmur, lestarsamgöngur, mótmæli og biskupskjör
    Miðvikudagurinn 14. febrúar
    Saknaðarilmur, lestarsamgöngur, mótmæli og biskupskjör
    Unnur Ösp Stefánsdóttir hefur skrifað leikgerð upp úr tveimur bókum Elísabetar Jökulsdóttur og leikur í henni aðalhlutverkið, eina hlutverkið. Við fáum Unni og Elísabetu til að ræða Saknaðarilm og öll þau mál sem þetta magnaða verk snertir. Björn Þorláksson ræðir við Elliða Vignisson bæjarstjóra í Ölfuss um áhrif Reykjaneselda á uppbyggingu nágrannasveitarfélaganna. Á laugardaginn verður stórfundur um Palestínu í Háskólabíói, sem Samstöðin mun senda út beint. Salvör Gullbrá Þórarinsson er ein þeirra sem skipuleggur fundinn og hún mun segja okkur frá honum, en ekki síður þeim fjölbreytilegu stjórnmálum götunnar sem orðið hafa til vegna andstöðu almennings við árásir Ísraels á Gaza. Í lokin kemur Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf og segir okkur hvers vegna hann vill verða biskup og hvert erindi Krists og kirkju er við samtímann.
    4 hr 17 min
  • Rauða borðið 13. feb - Kjaraviðræður, laskaðir innviðir, biskupskjör og Vaðlaheiðargöng
    Þriðjudagurinn 13. febrúar
    Kjaraviðræður, laskaðir innviðir, biskupskjör og Vaðlaheiðargöng
    Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins skýrir stöðuna í kjarasamningum. Á hverju strandar og hvers vegna? Verða verkföll eða ekki? Björn Þorláksson tekur á móti þingkonunni Hönnu Katrínu Friðriksson frá Viðreisn og ræðir við hana um hrörnandi innviði, einkum í heilbrigðiskerfinu. Ninna Sif Svavarsdóttir, prestur í Hveragerði, vill verða biskup. Hún segir okkur hvers vegna. Leikhópurinn Verkfræðingarnir hafa sett saman sýningu um Vaðalheiðargöngin, verk sem fjallar um göngin og reyndar miklu meira til. Leikararnir Kolbeinn Arnbjörnsson og Hilmir Jensson segja okkur hvers vegna þessi göngu eru svona merkileg og saga þeirra fjarstæðukennd.
    3 hr 16 min
  • Reykjavíkurfréttir - Staðan í borginni
    Í þætti dagsins ræðum við fjölbreytt mál sem hafa verið á dagskrá borgarstjórnar. Sanna Magdalena Mörtudóttir, Andrea Helgadóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir kafa ofan í umræðu í kringum tillögu Sósíalistaflokksins um að hætta við fyrirhugaðar sumarlokanir borgarbókasafna, tillögu um umboðsmann borgarbúa. Þá fjöllum við einnig um umræður um mótmæli í borgarlandi og tekju- eignamörk til að komast í íbúðir Félagsbústaða.
    58 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners