Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 6. feb - Reykjavíkurflugvöllur, heilabilun, bændur og frjálshyggja
    Þriðjudagurinn 6. febrúar
    Reykjavíkurflugvöllur, heilabilun, bændur og frjálshyggja
    Örn Sigurðsson arkitekt og Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafa ólíkar hugmyndir um Reykjavíkurflugvöll og Vatnsmýrina. Björn Þorláksson stýrir samræðum þeirra um þetta hitamál. Leikritið Með Guð í vasanum fjallar um heilabilun, áhrif hennar á einstaklinginn og fjölskyldu hans. María Reyndal höfundur og leikstjóri og Katla Margrét Þorgeirsdóttir aðalleikkona koma að Rauða borðinu og ræða verkið, erindi þess og reynslu sína af veikindum aldraðs fólks. Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi Austur-Hlíð í Biskupstungum vill verða formaður Bændasamtakanna, hefur boðið sig fram gegn sitjandi formanni, Gunnari Þorgeirssyni garðyrkjubónda í Ártanga í Grímsnesi. Hvað vill Trausti með samtökin? Hvernig sér hann íslenskan landbúnað þróast. Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur hefur skrifað greinar um frjálshyggjuna. Við grípum tækifærið og ræðum við hann um þennan landsins forna fjanda.
    3 hr 54 min
  • Frelsið er yndislegt - #1 Geðheilbrigðismál fanga
    Frelsið er yndislegt - #1 Geðheilbrigðismál fanga
    Umræðuþáttur um fangelsismál og réttarvörslukerfið á breiðum grunni. Viðmælendur koma víða að úr þjóðfélaginu og öllum steinum verður velt við. Umsjón: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson.
    Viðmælendur fyrsta þáttarins eru þau Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði, Halldór Kjartansson, fangavörður á Litla-Hrauni, og Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur.
    59 min
  • Rauða borðið 5. feb - Palestína, stjórnarskrá, biskup og fíknisjúkir
    Mánudagurinn 5. febrúar
    Palestína, stjórnarskrá, biskup og fíknisjúkir
    Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi hafa allar reynslu og þekkingu af málefnum Palestínu og Mið-Austurlanda og draga upp fyrir okkur hver staðan er í dag, hver er ástæða hennar og hvernig hún getur þróast. Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði veltir fyrir sér mikilvægi stjórnarskráa og hvers vegna svona seint gengur að breyta núgildandi stjórnarskrá. Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur í Grafarvogskirkju vill verða biskup og ræðir við okkur um erindi Krists, kristni og kirkju og hlutverk biskups. Kristinn Magnússon og Jón K Jacobsen aka Nonni Lobo eru fíklar í bata sem þekkja heimilisleysi, fangelsi og veruleika uppkominna barna alkóhólista. Þeir ræða við okkur um stöðu fíknisjúkra í samfélagi sem hefur fordóma gagnvart fíklum.
    4 hr 10 min
  • Synir Egils: Hrun ríkisstjórnar, átök, rasismi og Íslamófóbía
    Sunnudagurinn 4. febrúar
    Synir Egils: Hrun ríkisstjórnar, átök, rasismi og Íslamófóbía
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks fólksins, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Margrét Tryggvadóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar en ekki síst stöðuna í stjórnmálunum, hrun í trausti til ríkisstjórnar og flokkanna sem mynda hana. Þeir bræður taka stöðuna á þingi. Mahdya Malik háskólanemi, Zahra Mesbah starfskona í samræmdri móttöku flóttafólk hjá Reykjavíkurborg og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi koma síðan og ræða reynslu sína og þekkingu á fordómum í íslensku samfélagi, rasisma og Íslamófóbíu.
    2 hr 41 min
  • Rauða borðið - Helgi-spjall - Lára Martin
    Laugardagurinn 3. febrúar
    Helgi-spjall: Lára Martin
    Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Lára Marteinsdóttir frá lífi sínu, hugmyndum og baráttu; hvernig það var að koma út úr skápnum fyrst lesbía og hvernig stjörnur, erkitúpur og lófalestur getur veitt okkur leiðsögn.
    3 hr 19 min
  • Heimsmyndir - Ólafur í Hvarfi Ragnarsson
    Að þessu sinni kemur í þáttinn uppáhalds net-vinur Kristins sem hann hafði aldrei hitt. Mikill þúsundþjalasmiður og hugsuður, hann Ólafur í Hvarfi Ragnarsson. Þeir ræða ævintýrakennda sögu Ólafs, sem og ýmsar engu að síður ævintýrakenndar hugmyndir um heiminn og tilveruna.
    1 hr 21 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 05
    Föstudagurinn 2. febrúar
    Vikuskammtur: Vika 05
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður, Harpa Kristbergsdóttir aðgerðarsinni, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir uppistandari og handritshöfundur og Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af óveðri, ósætti og óróa, framboðum og óljósri eftirspurn, hávaða og þöggun.
    1 hr 44 min
  • Rauða borðið 1. feb - Kristni, MÍR, æxli og fátækt
    Fimmtudagurinn 1. febrúar
    Kristni, MÍR, æxli og fátækt
    Við höldum áfram að ræða við biskupsefni um samfélagið okkar og erindi kristni og kirkju við það. Nú er komið að Elínborgu Sturludóttur dómkirkjupresti. Það er deilt um MÍR, Menningartengsl Íslands og Rússlands, fyrir héraðsdómi. Alexandra Argunova aka listakonan Kjurigej, Sigurður Þórðarson eftirlaunamaður og Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður koma að Rauða borðinu og segja okkur hvers vegna stór hópur félagsmanna er ósáttur við ákvörðun stjórnar að leggja niður félagið. Hrafnkell Karlsson organisti segir okkur sjúkrasögu sína en hann fékk æxli innan hryggjarsúlunnar fyrir fáeinum árum og er að komast til fullrar heilsu. Í lokin kemur Sæmundur Þór Helgason myndlistarmaður og segir okkur frá sýningu sinni: Af hverju er Ísland svona fátækt?
    2 hr 45 min
  • Ungliðaspjallið # 10 - Halldóra Mogensen
    Halldóra Mogensen er þingkona Pírata. Halldóra hefur skrifað þingsályktunartillögu um skilyrðislausa grunnframfærslu eða borgaralaun. Halldóra hefur líka talað fyrir afglæpavæðingu fíkniefna.
    Í Ungliðaspjallinu munum við fara yfir málefni vikunnar og ræða síðan við Halldóru um afglæpavæðingu, borgaralaun og rísandi popúlisma
    57 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners