Samstöðin

Samstöðin

Download on the App Store

Samstöðin episodes

  • Rauða borðið 31. jan - Leigjendur, Gaza, sjúkrasaga og biskupskjör
    Miðvikudagurinn 31. janúar
    Leigjendur, Gaza, sjúkrasaga og biskupskjör
    Við ræðum stöðu leigjenda í kjarasamningum við Ragnar Þór Ingólfsson formann VR og Guðmund Hrafn Arngrímsson formann Leigjendasamtakanna. Allar kjarabætur leigjenda á undanförnum árum hafa runnið til leigusala. Verður það svo áfram? Elín Jakobína Oddsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á skurðstofum á Gaza og tók á móti fórnarlömbum aðgerða Ísraelshers. Hún segir okkur frá sárum þessa fólks og raunum. Yngvi Ómar Sighvatsson kemur og segir okkur sjúkrasögu þriggja ættliða, hans sjálfs, móður hans og sonar, og reynslu þeirra af heilbrigðiskerfinu. Sem er ekki góð. Í lokin kemur Helga Soffía Konráðsdóttir prestur í Háteigskirkju og prófastur í Reykjavikurprófastdæmi vestra, ein þeirra sem rétt hafa upp hönd og boðið sig fram til biskups, og ræðir um erindi kristni og kirkju til samfélagsins og einstaklinganna innan þess.
    3 hr 2 min
  • Rauða borðið 30. jan - Spilling, Kína og hinir fátæku sem munu landið erfa
    Þriðjudagurinn 30. janúar
    Spilling, Kína og hinir fátæku sem munu landið erfa
    Transparency International sendi frá sér spillingarvísitölu fyrir öll lönd heims í morgun og þá kom í ljós að vísitala Íslands lækka enn. Við fáum Atla Þór Fanndal framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Transparency til segja okkur hvers vegna. Kjartan Pétur Sigurðsson fjarskiptatæknifræðingur hefur búið lengi í Kína og við fáum hann að Rauða borðinu til að lýsa sinni upplifun af samfélaginu þar og hvert það stefnir. Sigurvin Lárus Jónsson fríkirkjuprestur hefur skrifað greinar um kirkjuna sem pólitíska hreyfingu. Við fáum hann til að segja okkur frá pólitík kirkjunnar.
    2 hr 54 min
  • Reykjavíkurfréttir - Almenningsbókasöfn
    Við ræðum fréttir vikunnar og fáum svo innsýn inn í almenningsbókasöfnin og mikilvægi þeirra. Við kíkjum í hljóðvarpsstúdíó þar sem Dögg Sigmarsdóttir segir okkur frá lýðræðisverkefnum. Svo kemur Barbara Guðnadóttir safnstjóri og segir okkur frá mikilvægi safnsins og félagslegu rými þess.
    1 hr 9 min
  • Leigjandinn - Þjónusta við leigjendur, réttindi þeirra og álitaefni í leigusambandi
    Einar Bjarni Einarsson lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum og stjórnandi Leigjendaaðstoðarinnar ræðir við okkur um þjónustu Leigjendaaðstoðarinnar, réttindi leigjenda og álitaefni sem komið upp í leigusambandi. Við förum yfir réttindi leigjenda eins og þau birtast húsaleigulögunum, algengustu álitaefni sem geta risið á leigutíma og við lok leigusambands.
    Við fjöllum líka um hvernig kjör lágtekjuhópa á leigumarkaði hafa þróast á undanförnum árum. Við leitumst við að setja þau í samhengi við þróun á almennu verðlagi og hækkun útborgaðra launa hjá lágtekjuhópum með tilliti til hækkunar á húsaleigu.
    1 hr 38 min
  • Rauða borðið - Trump, Grindavík, biskup og mannát
    Mánudagurinn 29. janúar
    Trump, Grindavík, biskup og mannát
    Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur kemur að Rauða borðinu og ræðir um sigurgöngu Donald Trump, hvaða hann kemur og hvert hann ætlar og hvað veldur því að bandarísk stjórnmál snúast um þennan mann. Pétur Rúrik Guðmundsson er einn þeirra Grindvíkinga sem hefur farið fram á að bæjarstjórnin boði til íbúafundar. Við spyrjum hann hvers vegna. Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti er einn þeirra presta sem vilja verða næsti biskup. Við ræðum við hann um kirkju og kristni og hlutverk þessa í samfélaginu í dag. Kannibalen er leikrit um mannát og einmanaleika sem sýnt er í Tjarnarbíói. Leikararnir Fjölnir Gíslason og Adolf Smári Unnarsson og leikstjórinn Adolf Smári Unnarsson segja okkur hvers vegna maður sem vill éta annan mann og annar sem vill verða étinn eiga erindi við okkur í dag.
    3 hr 30 min
  • Rauður raunveruleiki - Skuldaþrælkun og frétt vikunnar
    Í kvöld mun Karl Héðinn greina frá versnandi skuldastöðu heimilanna í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hvernig skuldir heimilanna og ríkissjóða hafa stóraukist á undanförnum árum og fjalla um þá pólitísku hagstefnu sem liggur þar á bakvið.
    Einnig verður sagt frá frétt vikunnar, að okkar mati. Utanríkisráðherra hefur svipt Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fjárhagsaðstoð núna þegar hún hefur aldrei verið mikilvægari.
    16 min
  • Synir Egils: Þjóðarmorð, stjórnarkreppa og kjarabarátta
    Sunnudagurinn 28. janúar
    Synir Egils: Þjóðarmorð, stjórnarkreppa og kjarabarátta
    Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Bjarni Karlsson guðfræðingur, Drífa Snædal talskona Stígamóta og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingkona og ræða stórar fréttir, mikil tíðindi og eldfimt ástand hér heima og innanlands. Þeir bræður munu meta stöðuna í pólitíkinni og svo sláum við á þráðinn til Helenar Ólafsdóttur öryggisráðgjafa og berum undir hana ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að frysta framlög til Hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna á Gaza. Í lokin fáum við Þórdís Ingadóttir lagaprófessor og segir okkur frá Alþjóðadómstólnum og túlkar úrskurð hans um þjóðarmorð Ísraelsstjórnar á Gaza.
    2 hr 49 min
  • Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 04
    Föstudagurinn 26. janúar
    Vikuskammtur: Vika 04
    Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Birgir Þórarinsson aka Biggi veira tónlistamaður, Esther Bíbí Ásgeirsdóttir tónlistarkona, Freyr Eyjólfsson upplýsingafulltrúi og Karen Kjartansdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af jarðhræringum, skjálfta í stjórnmálum, óvæntum tíðindum, deilum, stríði og vonbrigðum.
    1 hr 29 min
  • Björn Þorsteinsson
    Gestur þáttarins er Björn Þorsteinsson prófessor í heimspeki við HÍ. Hann hefur skrifað bókina Verufræði um verufræði, skammtafræði og fyrirbærafræði. Sem allt eru mikil áhugamál þáttarstjórnanda. Þeir Björn reyndu í glettni að koma efnishyggju fyrir kattarnef, en raunverulega stóð aðeins til að kynna fyrir áheyrendum gráa svæðið milli efnishyggju og hughyggju, eða milli skyns og efnis.
    1 hr 2 min

About Samstöðin

From the publisher's feed

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.

More shows like Samstöðin

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners